Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 54
5. mynd. Langtíma gostíðni, sýnd sem fjöldi gosa á hverjum 10 þúsund árum, og sam-
band hennar við breidd þess svæðis sem verður fyrir togstreitu við gliðnun á plötuskilum
hér á landi. Byggt er á reiknilíkaninu og gert ráð fyrir óbreyttum kvikuþrýstingi í þrónni.
Rekhraðinn (v) er talinn 2 cm/ári, Youngs stuðull (E) er 50 GPa, og togstyrkur skorpu
3.5 MPa (Ágúst Guðmundsson 1988). Stuðull togspennumögnunar (k) er 1.0 fyrir flata
þró (engin spennumögnun) og 3.0 fyrir þró með hringlaga lóðréttum þverskurði. Reikn-
að er með að 10% ganga nái yfirborði. Long-term extrusion frequency (langtíma gos-
tíðni) given as number of eruptions every 10,000 years, at the divergent plate boundary in
Iceland as a function of the width (u) of the zone that undergoes tensile strain. The
spreading rate is 2 cm/yr, Young’s modulus (E) is 50 GPa, and tlie tensile strength (T) is
3.5 MPa (cf. Ágúst Guðmundsson 1988). The extrusion frequency is estimated to be 10%
of the dike intrusion frequency.
fleti (3. mynd). Ekki er vitað hversu
oft hérlend eldstöðvakerfi hafa gosið
á tugþúsunda eða hundruð þúsunda
ára tímabilum. Fjöldi ganga á 500-
1500 m dýpi í skorpunni er hins vegar
sæmilega þekktur í nokkrum þyrping-
um hér á landi (Ágúst Guðmundsson
1984). Þessir gangar hafa flestir mynd-
ast neðarlega í skorpulagi 0 eða í efri
hluta lags 1. Út frá reiknilíkaninu ættu
um 20% ganga úr tiltekinni kvikuþró
að ná upp að mótum lags 0 og 1.
Reikna má með því að dæmigert eld-
stöðvakerfi sé 10 km breitt, sem er ná-
lægt meðaltali fyrir eldstöðvakerfi og
gangaþyrpingar (Ágúst Guðmundsson
1984, 1986d), og að rekhraðinn í því
sé um fjórðungur af heildarrekhraða
hér á landi (tvö samsíða rekbelti,
hvort með samsíða eldstöðvakerfi). Á
700 þúsund árum, sem er lauslegur
meðalævitími eldstöðvakerfis (Ágúst
Guðmundsson 1986c), ættu samkvæmt
þessu um 1000 gangar að ná mótum
lags 0 og 1 í tilteknu eldstöðvakerfi.
Eldstöðvakerfi sem lifði í 300 þúsund
48