Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 25
2. mynd. Snið af jarðlögum í Þuríðar-
árgili í Vopnafirði. Botn neðsta hraun-
lagsins í sniðinu (merkt 0 m) er í um 330
m hæð yfir sjó. Section of the Þuríðará
gully, 330 m above sea level. 1. Basalt. 2.
Siltstone. 3. Bones. 4. Scree.
basalthraunlögum með misþykkum
setlögum á milli. í hálsinum milli
Hofsárdals og Vesturárdals er líparít á
móts við bæinn Fell og litrík líparít-
innskot eru í Egilsstaðafjalli og
Refsstaðafjalli sunnantil í dalnum,
vottur um forna megineldstöð undir
Smjörfjöllum (Jux 1960). Jarðsögulega
má skipta jarðlagastaflanum í Vopna-
firði í þrennt:
1) Neðst eru gömul blágrýtislög
með misþykkum setlögum á milli.
Lögin virðast 10-12 milljóna ára gömul
og þeim hallar um það bil 10° í vestur
(Kristján Sæmundsson 1977, 1980).
Allþykk setlagasyrpa að mestu úr túffi
með surtarbrandi hér og þar er í eldri
hluta blágrýtismyndunarinnar í Vopna-
firði. Setögin eru þykkust í Virkisvík
vestan Vindfells, um það bil 18 m, og
því nefnd Vindfellslög (Jux 1960).
2) Neðarlega í Bustarfelli er mis-
lægi og hallar blágrýtislögunum ofan
við mislægið um 2° í vestsuðvestur.
Rétt ofan við mislægið eru setlög með
surtarbrandi og virðast þau víða fylgja
mislæginu. Þessi lög eru mun yngri en
Vindfellslögin og varla meira en 5-6 m
þykk í Bustarfelli. Pflug (1959) rann-
sakaði frjókorn úr lögunum og dró þá
ályktun út frá samsetningu flórunnar
að hún væri frá mörkum tertíers og
kvarters. Lögin virðast yngri en set-
lögin undir Hengifossi í Fljótsdal, en
hraunlögin ofan á þeim eru 5-6 millj-
óna ára gömul (McDougall o.fl.
1976). Akhmetiev o.fl. (1978) töldu
aldurinn vera einhvers staðar á bilinu
3,0-5,5 milljónir ára, en Kristján Sæ-
mundsson (munnlegar uppl. 1989) og
samstarfsmenn hans létu aldursgreina
röð af sýnum úr Bustarfelli og virðast
elstu lögin ofan við mislægið vera 3,0-
3,5 milljóna ára gömul. Það virðst því
191