Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 17

Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 17
Guðrún Larsen, Elsa G. Vilmundardóttir og Barði Þorkelsson Heklugosið 1991: Gjóskufallið og gjóskulagið frá fyrsta degi gossins INNGANGUR Fjórða gos Heklu á þessari öld hófst um kl. 17 hinn 17. janúar 1991, réttum 10 árum og 5 mánuðum eftir að næsta gos á undan, Heklugosið 1980-81, byrjaði. Segja má að Heklukerfið hafi verið óvenju virkt á þessari öld, því auk fjögurra gosa í Heklu (1947-48, 1970,1980—81,1991) varð gos við rætur hennar að austanverðu, við Munda- fell, árið 1913. Einnig mun það eins- dæmi að hún hafi gosið fjórum sinnum á tæpum 50 árum eins og nú hefur gerst. Hekla og samnefnt eldstöðvakerfi eru á mörkum eystra gosbeltis og Suð- urlandsbrotabeltis (Sveinn Jakobsson 1979, Karl Grönvold o.fl. 1983). Fjall- ið er hryggur, hlaðinn upp í eldgosum á nútíma og að einhverju leyti á ísöld. Fyrir Heklugosið 1947 reis hún hæst 1447 m y.s. en mun nú ná um 1500 m y.s. Eftir fjallshryggnum liggur Heklu- gjá, 5,5 km löng. í Heklugosunum J 947—48 og 1980-81 opnuðust sprung- ur eftir hryggnum endilöngum og auk þess opnuðust sprungur í hlíðum fjallsins í síðarnefnda gosinu (1. mynd). í Heklugosinu 1970 opnuðust hinsvegar eingöngu sprungur í hlíðum fjallsins og við rætur þess (Sigurður Fórarinsson 1968, 1970, Karl Grön- vold o.fl. 1983). Heklugosið 1991 líkist helst gosinu næst á undan hvað þetta varðar þótt nú hafi sprungur aðallega opnast í hlíðum Heklu og einungis eft- ir hluta af hryggnum (1. mynd). Flest Heklugos á sögulegum tíma hafa verið blandgos. Gosefnin eru bæði gjóska og hraun og auk þess kvikugös og vatnsgufa. Gos hefst með tiltölulega kröftugu þeytigosi af þeirri gerð sem kallast plíníanskt, eftir Rómverjanum Pljníusi yngra sem fyrstur lýsti slíku þeytigosi árið 79. Drifkrafturinn í plíníönsku þeytigosi er fyrst og fremst þensla gass í kvik- unni sjálfri, en vatn (snjór, ís) úr ná- grenni gosrásarinnar hefur lítil eða engin áhrif á goshegðunina. Fljótlega eftir að gos hefst byrjar hraun að renna og í fyrsta þætti gossins mynd- ast bæði hraun og gjóska. Gjósku- myndun er langmest fyrstu klukku- stundir gossins, en eftir það fer að draga úr henni og eftir fyrsta sólar- hringinn eða svo berst lítið af gosefnum frá fjallinu sem gjóska. Hraunrennsli Náttúrufræðingurinn 61 (3-4), bls. 159-176, 1992. 159
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.