Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1992, Blaðsíða 116

Náttúrufræðingurinn - 1992, Blaðsíða 116
steinn Sigurðsson og Skúli Víkings- son. Farið var á tveimur rútum frá Guðmundi Jónassyni. Þátttakendur voru um 60. Föstudag 27. júlí var ekið sem leið lá inn að Þórisvatni, nema hvað stutt hlé var gert hjá Sögualdarbænum í Þjórsárdal. Leiðsögumenn bættust í hópinn hjá Þórisvatni, en þær voru við störf sín á svæðinu. Var þar myndun- arsaga vatnsins rakin. Fljá Versölum við Stóraversskurð voru skoðaðir mal- arásar en á leiðinni þaðan í Nýjadal var staldrað við Kistuöldu. Laugardag 28. júlí var ekið norður á sandinn Sprengi og skýrt frá land- mótun og jökulsetum á Sprengisandi. Næst var stansað hjá efnismiklum jök- ulgörðum vestan Bergvatnskvíslar. Þaðan var farið að sæluhúsi í Laugar- felli, en þar var gert hádegishlé. Við laugina í Laugarfelli hefur verið plant- að öspum, í um rúmlega 800 m hæð yfir sjó (sumarið 1992 var enn þá ein þeirra lifandi). Úr Laugarfelli var ekið í átt til Kiðagils, en staldrað á stökum hól fyrir Bleiksmýrardalsdrögum, sem sumir vilja kalla „Skyggni" vegna hins góða útsýnis þaðan suður um öræfin. Ekið var út að Kiðagilshnjúk og geng- ið þaðan ofan að gilinu, sem er skorið í árkvarteran jarðlagastafla. Veður var lygnt, sólríkt og allt að 20° C heitt þennan dag. Mistur var í lofti og jókst þegar á daginn leið.Var því hætt við að ganga á Fjórðungsöldu en gerður stuttur stans í Tómasarhaga á heim- leið í Nýjadal til að líta á gróður í þeirri fögru öræfavin. Aðfaranótt sunnudags, 29. júlí, gerði um stund rokhvell með fallvindi af Tungnafellsjökli út Nýjadal. Um morguninn var lognregn og gengu þá sumir spölkorn upp í Nýjadal til að líta á gróðurteyginga í dalnum og jarðgerð í undirhlíðum Tungnafells- jökuls. Þær eru að mestu úr súru eða ísúru bergi, sem veldur hinum bjarta og rauðleita lit á fjallinu. Upp úr há- degi var haldið niður, en ekið Kvísla- veituveg upp í Þjórsárver (austan ár). Var þar litið á vötn og skurði Kvísla- veitu og horft yfir flár og fen í Þjórsár- verum. Á bakaleið voru skoðaðar rústir (palsa) í smáveri við veginn. Þaðan var ekið rakleitt til Reykjavík- ur og komið þangað síðla kvölds. Tekin var saman stutt leiðarlýsing fyrir ferðina, 3 síður með einföldu korti, auk tímasettrar ferðaáætlunar. Þessi lýsing kom þátttakendum greini- lcga að góðu gagni, þó stutt væri. Landslag er sagt lítils virði ef það heit- ir ekkert og svipað gildir einnig með náttúrufar. Þar er reginmunur á stuttri lýsingu og engri. Fyrirhuguð var helgarferð í Húsa- fell 25.-26. ágúst. Var skráning til þátttöku orðin nokkuð góð en í vik- unni fyrir brottför hætti mikill hluti hinna skráðu skyndilega við (veðurs- pá var ekki góð, þó svo að úr veðri rættist síðan, eins og oft verður). Varð þá að hætta við ferðina. Langa ferðin tókst vel en aðrar ferðir miður, eða voru ekki farnar. Leiðsögumönnum er þökkuð leiðsögn og fyrirhöfn. Ferðafélagi íslands er þökkuð vinsemd og fyrirgreiðsla í Nýjadal. Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar og ökumönnum bifreiða hennar er þökkuð lipurð og ágæt þjónusta. ÚTGÁFU STA RFSEMI Útgáfa Náttúrufræðingsins komst ekki í rétt tímahorf á árinu. Voru tvö hefti eftir af 60. árgangi, en það er sami dráttur og var í ársbyrjun. Treg efnisöflun olli mestum vandræðum og drætti á útgáfu. Mývatnsbókin komst ekki í útgáfu á árinu, eins og þó hafði verið vonast til. Önnum köfnum höfundum vannst 258
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.