Náttúrufræðingurinn - 1992, Page 79
2. mynd. Eintökin af jötungímunni sem Sigurður Þórisson kom með frá Þríhyrningi 7.
september. Það stærra er 44 cm í þvermál og 6 kg að þyngd. Eintökin voru þurrkuð og
eru til sýnis á Náttúrufræðistofnun Norðurlands á Akureyri. The specimens of Langer-
mannia gigantea brought from Þríhyrningur on 7 September. The larger one is 44 cm in
diameter and weighs 6 kg. Mynd photo Hörður Kristinsson.
vaxnar gorkúlur á Suðurlandi. Mun sú
frétt hafa komið í blöðum og sjón-
varpi í Reykjavík. Það var 1. septem-
ber þetta haust að Guðrún Björg Eyj-
ólfsdóttir fann eintak af þessum risa-
sveppi á bænum Smárahlíð í Hruna-
mannahreppi, Árnessýslu. Óx það
skammt frá svínahúsi. Það var um 30
cm að þvermáli og vó 1,6 kg. Þetta
eintak var frostþurrkað og er nú til
sýnis t' Náttúrufræðistofnun Islands,
Reykjavík.
Að viku liðinni, eða 7. september
sama haust, kom Sigurður Þórisson
frá Auðbrekku í Hörgárdal á skrif-
stofu Dags á Akureyri með tvær risa-
vaxnar jötungímur sem teknar voru á
bænum Þríhyrningi í sömu sveit, en
þar liafði sveppurinn fundist fyrr um
sumarið (1. mynd). Sigurður hafði séð
sjónvarpsfrétt um sveppina sem fund-
ust fyrir sunnan og taldi því rétt að
koma þessum fundi á framfæri.
Annar sveppurinn sem Sigurður
kom með mældist 44 cm í þvermál og
var tæp 6 kg að þyngd samkvæmt
fréttagrein í Degi daginn eftir. Að
sögn Sigurðar voru fleiri sveppir á
staðnum og liafði hann ekki tekið þá
stærstu, þar sem þeir voru orðnir linir
í sér og illa fallnir til flutnings. Síðan
fór Sigurður með sveppina á Náttúru-
fræðistofnun Norðurlands og þar voru
þeir þurrkaðir næstu vikur. Hafa þeir
verið til sýnis í sýningarsalnum síðan.
Næsta dag fóru grasafræðingar
stofnunarinnar, Hörður Kristinsson
og Elín Gunnlaugsdóttir, á vettvang
og vísaði Þórður Steindórsson bóndi
á Þríhyrningi þeim á fundarstaðinn
221