Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 10
-36 -34 %„
7. mynd. Samfellt súrefnissamsœtusnið GRIP-kjarnans er
sýnt í tveimur hlutum á línulegum dýptarkvarða: A) frá
yfirborði niður á 1500 m og B) frá 1500 m niður á 3000
m dýpi. Hver punktur á myndinni stendur fyrir 2,2 m
kjarnabúts. Mildu tímabilin á jökulskeiðunum eru tölu-
sett hægra megin við kúrfu B. Tímakvarðinn, sem sýndur
er á miðri mynd, erfenginn með því að telja árlög í isnum
fyrir yngsta hluta kjarnans en fyrir eldri hluta hans með
líkanreikningum.
speglar nokkurra ára ákomu næst yfirborði
en meðaltal 20 ára við 10.000 ára mörkin
(neðst á 7. mynd A). Mælingarnar benda til
að veðurfar hafi verið óvenju stöðugt síð-
astliðin 10.000 ár að frátöldu stuttu og
köldu tímabili fyrir u.þ.b. 8200 árum. Allt
aðra sögu segja hins vegar niðurstöður
mælinga úr neðri hluta kjam-
ans, sem sýndar em hægra
megin á 7. mynd (7. mynd B).
Þar sést að veðurfar hefur
sveiflast mikið og breytingar
verið örar. Vegna þess að
árlögin þynnast með dýpi
spanna neðstu 1500 m
kjamans (7. mynd B) mun
lengra tímabil en efstu 1500
m hans (7. mynd A). Efri
hlutinn spannar 10.000 ár en
sá neðri hins vegar 240.000
ár.
Hægra megin á 7. mynd em
einnig sýndir hlýindakafl-
arnir á síðasta jökulskeiði,
merktir frá 1 til 24. Einnig er
sýnd tenging við hlýviðris-
tímabil sem fundin hafa verið
með frjógreiningu í Mið- og
Suður-Evrópu. Tímabilin,
sem em yngri en 60.000 ára,
hafa verið aldursgreind með
geislakolsgreiningu (l4C).
Geislakolsgreiningarnar
(leiðréttar samkvæmt nýjustu
kvörðunum) eru í góðu sam-
ræmi við timakvarðann sem
reiknaður hefur verið út fyrir
GRIP-kjamann.
SíÐASTA HLÝSKEIÐ (EEM)
Fyrir borunina á Summit
töldu menn að veðurfar á
síðasta hlýskeiði (eem), fyrir
um 120.000 ámm, hefði verið
svipað og á okkar hlýskeiði,
þ.e. síðastliðin 10.000 ár,
tiltölulega stöðugt en e.t.v.
einni til tveimur gráðum
hlýrra. Þær miklu sveiflur
sem koma fram á þessu tíma-
bili í GRIP-kjamanum og
sýndar eru á 7. mynd B, og enn skýrar á 8.
mynd, komu því verulega á óvart. Þær sýna
að hlýskeiðið hafí i raun verið brotið upp af
kaldari skeiðum sem vöruðu í 2000 (5e2)
og 6000 (5e4) ár. Þar að auki virðist
veðurfar á hlýju skeiðunum vera brotið upp
af köldum stuttum skeiðum. Það stysta og
88