Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 21
fýlógenetísk flokkun sem mætti út-
leggja upprunaflokkun.
Hér skulu tilgreind tvö dæmi um
það hvemig þessi nýja flokkunar-
fræði gengur þvert á viðteknar hug-
myndir.
NÁNUSTU
FRÆNDUR OKKAR
Til ættbálksins Primates, prímata
eða fremdardýra, teljast menn og
þeim skyld dýr - apar og hálfapar.
Skyldastir mönnum eru mannap-
amir. Þeir eru af þremur ættkvísl-
um, Pan, simpansar, Gorílla, gór-
illur, og Pongo, órangútanar.
Simpansar, Pan troglodytes, eru
nærri svartir. Stærstu karlar verða
allt að 80 kg og 1,7 metrar frá iljum
upp að höfði þegar rétt er úr dýr-
unum. Flestir eru þó minni, svo og
apynjumar. Simpansar lifa einkum
í regnskógum Afríku en þrífast líka
ofan þeirra, allt upp í 3000 m hæð,
í fjallaskógum og á staktrjáaslétt-
um. Þetta eru félagsdýr sem ferðast
um á daginn, nokkur dýr eða tugir --------
dýra saman, ýmist á jörðu niðri eða
uppi í trjám. Á nóttunni hreiðra þeir sig í
trjám. Fæðan er að mestu gróður en þeir
taka líka egg fugla og veiða smáspendýr.
I regnskógum nærri miðbaug í Zaire,
sem áður hét Belgíska Kongó, lifa dverg-
simpansar. Þeir em ýmist taldir sérstök
tegund, Pan paniscus, eða undirtegund, P.
troglodytes paniscus (2. mynd).
Górilluapar eru líka dökkir en aldnir
karlar verða gráhærðir á baki. Þeir em
stærri og þyngri en simpansar og raunar
stærstir núlifandi prímata. Uppréttir karl-
apar mælast allt að 1,75 m en eru í raun
hærri þar sem þeir eru hoknir í hnjám. Þeir
eru í náttúrunni 135 til 275 kg en kvendýr-
in eru minni og léttari, 70 til 140 kg.
Þyngstu karlar í dýragörðum verða ein 350
kg.
Eins og simpansar eru górillur félagsdýr
og lifa allt að 30 saman. Samt lifa sumir
karlar einir. Apamir lifa nær eingöngu á
3. mynd. Órangútan, Pongo pygmaeus, fjarskyld-
asti œttingi okkar meðal mannapa, lifir í regnskóg-
um á Borneó og Súmötru (Petsch 1967).
gróðri og hafast mun meir við á jörðu niðri
en simpansar.
Sléttugórilla, Gorilla gorilla, lifir vest-
antil í hitabelti Afríku, einkum í regnskóg-
um. Austar, nær miðju meginlandinu, þar
sem saman koma Zaire, Rúanda og
Úganda, lifír fjallagórilla, Gorilla ber-
ingei, í tjallaskógum og bambusskógum.
Sumir telja íjallagórillu raunar undir-
tegund, G. gorilla beringei.
Þriðji mannapinn, órangútan1, Pongo
pygmaeus (3. mynd), lifir i regnskógum á
1 Orang hutan þýðir á malajísku „skógarmaður".
Nel'api. Nasalis larvatus, sem lifír á sömu slóðum, er
með „hlálegl og heljarslórt nef', eins og jólasveinninn
Gáttaþcfur, einkum karlapinn (sjá mynd með grein
minni um apann í vatninu í Náttúrufræðingnum, 3.-4.
hefti 1993). Innfæddir malajar eru næsta flatir i andliti
miðað við Evrópumenn, scm þeim þykja afkáralegir í
framan, og nefna því nefapann orang blanda eða
„Hollending“ eftir fyrrverandi nýlenduherrum sínum.
99