Náttúrufræðingurinn - 1995, Síða 29
3. mynd. Fundarstaðir gauka á Islandi til ársloka 1992. Tölur við punkta sýna fjölda
athugana á hverjum stað ef um er að ræða fleiri en eitt skipti. Tölur innan sviga sýna
fjölda einstaklinga. — Locations of Cuckoos recorded in Iceland. If more than one record
at a locality, the numbers are indicated and, in parentheses, the number ofbirds involved.
suðvestri til Grímseyjar í norðri. Þeir eru
þó algengastir í A-Skaftafellssýslu, eins og
oft er um evrópska flækingsfugla hérlend-
is. A 3. mynd sést hvar á landinu gaukar
hafa fundist.
Tveir þeirra gauka sem varðveittir eru á
Náttúrufræðistofnun íslands eru af brúna
litarafbrigðinu, þ.e. fuglarnir frá Vestara-
landi (7) og Eyrabæ (25), en hinir allir eru
af gráa litarafbrigðinu.
Regngaukur
(CoCCYZUS ERYTHROPHTHALMUS)
Regngaukur (4. mynd) er algengur varp-
fugl í N-Ameríku austan Klettafjalla, frá
suðurhluta Kanada suður til austurhluta
Wyoming, Kansas, Arkansas, Tennessee
og S-Karólínu. Utbreiðsla þeirra er nokkru
norðlægari en frænda þeirra spágaukanna.
Kjörlendi regngauka á varpstöðvunum er
opið skóglendi og runnagróður. Þeir hafa
vetursetu í norðvesturhluta S-Ameríku.
Haustfar regngauka hefst í lok júlí eða
byrjun ágúst og nær hámarki á tímabilinu
frá miðjum ágúst fram í miðjan september.
Þeir snúa aftur til varpstöðvanna í aprfl til
byrjun júní. Á leið til vetrarstöðva fljúga
regngaukar í suðvestur og er því fremur
ólíklegt að þeir hrekist til Evrópu.
Regngaukar eru fremur litlir gaukar, um
15% minni en evrópski gaukurinn. Lengd-
in er 27 til 31 cm en þar af er stélið 11 til
13 cm. Þeir eru grábrúnir að ofan og ljós-
gráir að neðan og hafa fremur fá einkenni.
Nef regngauka er svart og fætur ljósgráir.
Fullorðnir regngaukar hafa rauðan augn-
hring en á fuglurn á fyrsta hausti er hann
gulleitur. Á neðanverðu stéli eru litlar
hvítar skellur á annars gráum fjöðrum. í
september hafa ungfuglar náð sama lit og
259