Fréttablaðið - 15.08.2009, Side 40

Fréttablaðið - 15.08.2009, Side 40
 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR2 FERÐALANGAR á hálendi Íslands þurfa að vera vel á verði og vel útbúnir á næstunni enda er verkefninu Björgunarsveitir á hálendinu lokið í sumar. Kalla þarf því eftir aðstoð björgunarsveita úr byggð ef eitthvað kemur fyrir. „Við erum með yfir fjörutíu ketti, allt frá kettlingum til stálpaðra katta sem eru að leita að framtíðar- heimili,“ segir Valgerður Valgeirs- dóttir hjá Dýrahjálp Íslands en í dag milli klukkan 12 og 18 verður ættleiðingardagur tileinkaður kött- um í Garðheimum. Síðastliðið vor stóð Dýrahjálp Íslands fyrir ættleiðingardögum gæludýra í Garðheimum og var þar um alls kyns dýr að ræða, allt frá fuglum til hunda. Nú er dagur- inn hins vegar helgaður köttum og að sögn Ásbjargar Unu Björnsdótt- ur hjá Dýrahjálpinni er það vegna þess hve margir kettir virðast nú vera í vandræðum. „Við finnum að tíðin er allt önnur í dag en var því nú verða þarna til að mynda kettlingar sem ekki hefur gengið að eignast heimili, en það er sjaldgæft að erfitt sé að að koma ungviðinu út,“ segir Ásbjörg. Ásbjörg segir að eins og er dvelji kettirnir á fósturheimilum. Þar hýsa sjálfboðaliðar kettina á meðan þeir leita að framtíðar- heimili. Einnig eru margir kettir á eigin heimili en þurfa að finna nýtt vegna búferlaflutninga, ofnæmis eða annarra ástæðna. „Fleiri eru að flytja til útlanda en áður og því eru fósturheimilin okkar alveg full og mun fleiri sem þurfa aðstoð en áður. Kettirnir fara ekki vel út úr kreppunni.“ Kettirnir verða sem fyrr segir í Garðheimum í dag en þangað kemur fólk og kíkir og sækir svo um að fá að hýsa kött með því að fylla út umsóknareyðublað. „Við viljum vita hvert kettirnir okkar fara.“ Dýrahjálp hefur hingað til aðstoðað fjölda katta í heimilisleit en þeir eru nú orðnir um 187 tals- ins. juliam@frettabladid.is Vonast til að sem flestir kettir fái heimili í dag Hundar, naggrísir, kanínur, fuglar og kettir eru þau dýr sem Dýrahjálp Íslands hefur útvegað nýtt heimili. Á morgun er heill dagur í Garðheimum tileinkaður köttum, en aldrei hafa jafn margir verið í tölu munaðarlausra og nú. Taubleiur eru góðar fyrir barnið, umhverfisvænar og minnka útgjöld foreldra. Bleiur úr mismunandi efnum, af ólíkum stærðum og í ýmsum litum verða til sýnis og sölu á taubleiu- markaði á neðri hæð verslunar- innar Maður lifandi í Borgartúni í dag milli 11 og 17. Að honum standa netverslanirnar ISbamb- us, Kindaknús, Krútt, Montrassar, Perlur, Snilldarbörn, Tamezonline og Þumalína. Oddný Jónsdóttir, framkvæmda- stjóri Þumalínu, verður fyrir svör- um þegar spurt er nánar út í fyrir- bærið. Hún nefnir bómull, bambus, flís og hamp sem dæmi um ólík efni í bleiunum en segir þær eiga það sameiginlegt að allar þoli þvott. Hún mælir með notkun tau- bleia fyrir barnið, umhverfið og pyngjuna. „Hvert barn notar að meðaltali um sex þúsund bréfblei- ur. Það gerir um tvö tonn af sorpi sem getur tekið um 500 ár að eyð- ast í náttúrunni,“ segir hún og telur taubleiur líka minnka útgjöld foreldra umtalsvert. - gun Taubleiumarkaður í Borgartúni í dag Hampur er efnið sem Oddný notar í taubleiurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þessir kettir komu með flugi frá Akureyri á fimmtudag í von um að einhver ættleiði þá í dag. Valgerður Valgeirsdóttir hjá Dýra- hjálp Íslands tók á móti þeim á flugvellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Áttatíu prósent allra vegfarenda á Laugaveginum eru gangandi. Fyrsta laugar- dag í sept- ember verður gerð tilraun til að loka göt- unni fyrir bifreiðum og hefst hún um hádegi. www.rvk.is Mörkinni 6 • Sími 588 5518 Opnunartímar: mán.-föstud. 10-18 laugardaga 10-16 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.