Fréttablaðið - 15.08.2009, Side 68

Fréttablaðið - 15.08.2009, Side 68
44 15. ágúst 2009 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Sara McMahon Mjúka bleika angórupeysu sem er full- komin yfir sparikjólinn eða við gallabuxur. Frá GK Laugavegi. OKKUR LANGAR Í … Fullkominn blazerjakka frá Max Mara sem gengur við allt. Frá Gk Laugavegi. Ótrúlega töff blúnduhanska frá Patrizia Pepe. Fást í GK Laugavegi. Bandaríski hönnuðurinn Marc Jacobs hefur notið gífurlegra vinsælda undanfarin ár og lína hans fyrir haustið er sérlega litrík og skemmtileg. „Ég vildi ekki hugsa um kreppuna heldur langaði mig að gera eitthvað sem minnti á New York á níunda áratugnum þegar fólk var alltaf úti að skemmta sér.“ Ready-to-wear-línan hans fyrir haustið er hlýleg og hugguleg en býður engu að síður upp á líflega gula, rauða og appelsínugula tóna. - amb KVENLEGUR Flottur stuttur bleikur kjóll við svartar púffermar. GULT Frískleg gul rúllukragap- eysa við mynstraðar buxur fyrir haustið. HLÝLEG Appels- ínugul mynstruð ullarkápa. SÆTT Flott og stelpu- legt appelsínu- gult dress fyrir haustið. REIÐBUXNASNIÐ Villt „paisley“-mynstur við heklaða röndótta peysu. HAUST- LITIR Fallegur kápu- kjóll við mynstrað- ar sokka- buxur og sætan hatt. Ég reyni að fara reglulega í klippingu til að halda hárinu heilbrigðu og til að halda krullunum í skefjum. Um daginn var kominn tími á klipp- ingu og ég var svo heppin að vinur minn og gamli hárgreiðslumeistar- inn minn var staddur á landinu og gat snyrt kollinn. Ég mætti stund- víslega á hárgreiðslustofuna þar sem meistarinn hafði aðstöðu, kom mér fyrir í stólnum hjá honum og litaðist um. Þarna inni var maður sem mér þótti sérstaklega eftirtektarverður. Maðurinn var stór, vöðvastæltur og með aflitað hár. Undir hlýraboln- um sem hann klæddist mátti sjá glytta í stærðarinnar húðflúr á sól- brúnum handlegg. Þarna sat ég og hugsaði með mér hvað tíska getur verið yndislega, skemmtilega afstæð. Yngri bróður mínum finnst til að mynda við systurnar vera sérstak- lega hallærislegar í víðu kjólunum okkar og skræpóttu sokkabuxun- um. Hann gerir látlaust grín að litríku peysunum og finnst smekkur okkar vægast sagt undarlegur. Sömuleiðis hefur frænka mín haft orð á því að henni þyki ég með nokkuð sérstakan fatastíl, hún kallaði hann meira að segja einstakan. Persónulega þykir mér ég nokkuð venju- leg í klæðavali og þegar ég lít í kringum mig og virði fyrir mér vini mína og fólkið sem ég umgengst, þá finnst mér ég falla ósköp vel inn í hópinn, þar með sannast máltakið „sækjast sér um líkir“. En ætli ég mundi ekki stinga örlítið í stúf ef ég álpaðist inn á skemmtistaðinn Óliver, þar sem stelpur eru almennt betur til hafðar en ég. Tíska er á stundum eins og pólitík, það má deila um hana endalaust. Sumum þykir út í hött að eltast við tískustrauma, aðrir geta ekki án tískunnar verið. Tísk- an er svo afstæð að það sem einum manni þykir flott, finnst þeim næsta ljótt. Margir nota flíkur til að tjá sig og draga fram persónuleika sinn, flíkur geta jafnvel gefið til kynna stéttarstöðu eigandans; því dýr- ari sem flíkin er því meira hefur eigand- inn á milli hand- anna. Hvað sem menn segja um tísku þá er aldrei eitthvað eitt meira rétt en annað, einfaldlega vegna þess að tíska er afstætt hugtak. Að fanga hugtakið „tíska“ > SOKKAR FRÁ HENRY HOLLAND Breski hönnuðurinn Henry Holland, sem sló rækilega í gegn með skemmti- legum stuttermabolum fyrir tveimur árum, hefur nú snúið sér að hönnun sokkabuxna og sokka. Línan er mjög framúr- stefnuleg og litrík og skvísur eins og Agyness Deyn og Pixie Geldof eru óðar í hana. MARC JACOBS POPPAR UPP HAUSTIÐ Litadýrð og herðapúðar Verðum með sýningu nú um helgina bæði í : Beykidal 6 Reykjanesbæ og Fossabrekku 21 Snæfellsbæ og Ölkelduvegi 9 Grundarfi rði Laugardag og Sunnudag frá 13 til 17 Nú er hagstætt að kaupa vegna þess að: Þú tekur Íls lán en greiðir útborgun eftir eitt ár. Allar verðhækkanir (vísitala) falla á seljanda í eitt ár Við greiðum allan þinglýsingarkostnað. Ef þú kaupir íbúð á þessu ári færðu endurgreiðslu frá Skat- tinum sem getur verið allt að kr 408.374 ATH Þennan pening færðu ekki ef þú leigir. Kynntu þér málið á heimasíðu okkar eða mættu á sýningu um helgina þar sem við reiknum þetta út fyrir þig. www.nesbyggd.is ATH Erum einnig með nokkrar íbúðir til leigu (kaupleiga) Si savaitgali bus pristatymas siu butu : Beykidal 6 Reykjanesbæ ir Fossabrekku 21 Snæfellsbæ ir Ölkelduvegi 9 Grundarfi rði Sestadieni ir sekmadieni nuo 13 iki 17 Dabar yra naudingiausia pirki todel kad: Jus imate Íls kredita, bet pradedate moketi tik po 1. metu Visus kainos kylimus del infl iacijos (“vísitala”) vienus metus dengiame mes Mes sumokesime visus notarinius mokescius Jei pirksite buta sias metais gausite grazinima is mokesciu inspekcijos kuris gali siekti 408.374kr Demesio. Siu pinigu negaunate jeigu nuomuojates Visa informacija rasite musu interneto svetaineje arba si savaitgali ateikite i butu pristatyma kuriame mes jums padesime viska apskaiciuoti www.nesbyggd.is Demesio. Turime keleta butu issiperkamajai nuomai Obecny okres sprzyja zakupowi mieszkania, gdyż: *otrzymujesz teraz pożyczkę z Funduszu Mieszkaniowego, a zaczynasz spłacać dopiero po roku, *wszystkie infl acyjne podwyżki cen w ciągu roku pokrywa sprzedający, *sprzedający pokrywa także koszty wpisu nieruchomości do ksiąg wiec- zystych, *w przypadku zakupu mieszkania w tym roku otrzymujesz zwrot podatku, nawet do sumy 408.374 kr. Uwaga: Kwoty tej nie otrzymasz, jeżeli wynajmujesz mieszkanie. Zapoznaj się z zasadami sprzedaży na naszej stronie internetowej lub przyjdź na pokaz, gdzie pokażemy przykłady rozliczeń. www.nesbyggd.is Uwaga: posiadamy także kilka mieszkań do wynajęcia (przedsprzedaż)

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.