Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1944, Qupperneq 19

Samvinnan - 01.06.1944, Qupperneq 19
5.-6. HEFTI SAMVINNAN / Fangbrekku 17. júní 1944 LYÐVELDISHÁTÍÐIN Eftir Guðlaug Rósinkranz Þegar ákveðið var á Alþingi síðastliðinn vetur, að gengið skyldi að fullu frá stofnun lýðveldis á íslandi þann 17. júní, á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar, var jafnframt ákveðið að efna til hátíðaha] da í sambandi við lýðveldisstofnunina. Nokkru síðar eða þann 10. marz voru eftirtaldir menn skipaðir eftir tilnefningu stjórnmálaflokkanna af ríkisstjórninni í hátíðanefnd til þess að undirbúa hátíðahöldin: Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóri fyrir Alþýðuflokkinn, Guðl. Rósinkranz, yfirkennari fyrir Framsóknarflokkinn, Einar Olgeirs- son fyrir Sósíalistaflokkinn og Jóhann Hafsteen fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Alexander Jóhannesson, prófessor var tilnefndur af ríkisstjórninni og var hann jafn- framt formaður nefndarinnar. Nefndin hélt fyrsta fund sinn þann 13. marz, sama daginn og hún fékk bréfin um nefndarskipunina í hendur og tók þegar á þeim fundi margar ákvarðanir um framkvæmdir, er enga bið þoldu, enda var þetta stuttur tími til stefnu, til undirbúnings stórfelldum hátíðahöldum. Einkum var þessi undirbúningstími stuttur, þegar þess er gætt, hve miklir örðugleikar eru á að fá flesta hluti nú á stríðstímunum og erfið- leikar á að fá vörur fluttar milli landa á skömmum tíma. Flest það, sem útvega þurfti frá útlöndum kom því á síðustu stundu og var í raun og veru undravert, að takast skyldi að ná til landsins í tæka tíð flestu af því, er nauðsynlegt var til hátíðahaldanna, svo sem fánum, þó að þeir væru að vísu færri en æskilegt hefði verið, fánastöngum og hátíðamerkjum. En með að- stoð sendiráðanna og utanríkisráðuneytisins tókst það. Ekki verður hér sagt nánar frá undirbúningi há- tíðahaldanna, en í stuttu máli skal nú reynt að lýsa hátíðahöldunum sjálfum. 151

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.