Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 23
5.-6. HEFTI
SAMVINNAN
>
Frá hátíðahöldunum í Reykjavík 18. júní
1944
regluþjóna, er gekk hermannagöngu, og fast á eftir
fylgdi LúSrasveit Reykjavíkur, sem lék göngulög. Þá
komu börnin, sjálfsagt mikið á annað þúsund, hvert
með sinn fána og var það skrautleg og ánægjuleg
fylking, eins og raunar skrúðfylkingin öll. Síðan kornu
félagasamböndin hvert af öðru, skátar, íþróttamenn,
stúdentar, Svifflugfélagið, góðtemplarar, verzlunar-
menn, Alþýðusambandið, Iðnsambandið, Farmanna-
og íiskimannasambandið o. fl. o. fl. Fór fylkingin eftir
Bjarkargötu, Skothúsvegi, Fríkirkjuvegi, Vonarstræti,
Templarasundi, Kirkjustræti, Aðalstræti, Austurstræti
á Lækjartorg. Þar leystust fylkingarnar upp og fólkið
skipaði sér á torgið og nálægar götur. Svo löng var
fylkingin, að þeir síðustu voru að fara af stað frá Há-
skólanum, þegar fylkingarbrjóstið kom að stjórn-
arráðinu, og var þéttskipuð fylking alla leiðina.
Hve margir hafa tekið þátt í skrúðgöngunni, er ekki
gott að gizka á, en einhvers staðar mun það hafa ver-
ið milli 12 og 15 þúsund.
Á svölum Alþingishússins stóð Sveinn Björnsson,
forseti, og tók á móti kveðju skrúðfylkingarinnar, þeg-
ar hún gekk framhjá Alþingishúsinu til þess að hylla
hann. Þar fylkingin í rúman hálf tíma að ganga fram-
hjá.
Athöfnin við stjórnarráðshúsið hófst með því, að
Lúðrasveitin lék nokkur ættjarðarlög. Síðan flutti
Sveinn Björnsson, forseti, ræðu og á eftir honum
töluðu formenn allra þingflokkanna. Ólafur Thors,
form. Sjálfstæðisflokksins, Eysteinn Jónsson, form.
þingflokks Framsóknarflokksins, Einar Olgeirsson,
form. Sósíalistaflokksins og Haraldur Guðmundsson,
form. þingflokks Alþýðuflokksins. Á eftir ræðunum lék
Lúðrasveitin ættjarðarlög. Þessari hátíðlegu athöfn
lauk með því að þjóðsöngurinn var leikinn af Lúðra-
sveit Reykjavíkur.
Klukkan hálf fjögur söng þjóðhátíðakórinn í Hljóm-
skálagarðinum undir stjórn sömu söngstjóra og á
Þingvöllum daginn áður. Var þarna mikill mannfjöldi
saman kominn, sem fagnaði kórnum mjög vel.
Forsetinn tók síðan á móti gestum þeim, kl. 4—5
í hátðasal Háskólans, er óskuðu að árna honum heilla.
Gert hafði verið ráð fyrir að opna sögusýninguna
í Menntaskólanum í Reykjavík þann 18. júní kl. 4, en
undirbúningi var þá ekki lokið, svo fresta varð opnun
sýningarinnar til 20. júní. En frá þeirri sýningu mun
síðar verða sagt í Samvinnunni.
Um klukkan fimm gengu íþróttamenn fylktu liði
um bæinn í íþróttabúningum og suður á íþróttavöll.
Þar var sýnd leikfimi og keppt í nokkrum íþróttagrein-
um. Um kvöldið lék Lúðrasveit Reykjavíkur í Hljóm-
skálagarðinum kl. 10—11 og var þar mikill mannfjöldi,
er gerði góðan róm að hljómleikunum.
Um kvöldið var einnig hátíðaveizla að Hótel Borg,
er ríkisstjórn íslands hélt til þess að heiðra hinn ný-
kjörna forseta og sendiherra erlendra ríkja. Var það
fjölmenn og glæsileg veizla, er stóð til klukkan 2 um
nóttina. Fór hún hátíðlega fram, sem vera ber við slíkt
tækifæri. Þar með var lokið hátíðahöldum þeim, er
efnt var til í tilefni af stofnun lýðveldis á íslandi.
155