Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1944, Síða 25

Samvinnan - 01.06.1944, Síða 25
5.-6. HEFTI SAMVINNAN JÓN AHXASOX. FBiJIKVÆMIÍASTJÓBI: F Astand og framtíðarhorfur Grein þessi er kafli úr skýrslu þeirri, er Jón Árnason flutti á aðalfundi S. í. S. i sumar. Er þar brugðið upp Ijósri mynd af sölu og fram- leiðsluhorfum á íslenzkum útflutningsvörum. Allar vörubirgðir, sem nú eru í landinu og þarf að flytja út, eru seldar, nema ull frá árinu sem leið. Ennfremur er búið að selja alla fiskframleiðslu til næstu áramóta. í sambandi við fisksölusamninginn má geta þess, að í honum er ákvæði um það, að hvor aðilinn, sem er, geti óskað framlengingar á samn- ingnum í sex mánuði eða til 1. júlí 1945. Að vísu er hér ekki um skyldu að ræða til að framlengja samn- inginn, þó vér kunnum að óska þess, en þó þótti betra að hafa þetta ákvæði í samningnum, heldur en að hafa það ekki. Annars skal þess getið, að mjög miklum erfiðleikum var bundið að fá fisksölusamninginn framlengdan með óbreyttu verði. Að þessu sinni voru Bretar aðalsamningsaðilinn, en árið 1942 voru Banda- ríkjamenn kaupendur, þótt þeir afhentu Bretum fisk- inn. Reyndar voru umboðsmenn Bandaríkjastjórnar og stjórnar Stóra-Bretlands sameiginlegir kaupendur á fiskinum nú, en eins og áður sagt, réðu Bretar mestu um samningagerðina, þar sem nokkur efnisbreyting varð á greiðsluskilmálunum frá því, sem verið hafði árið 1942. Erlendu samningamennirnir fóru eindregið fram á mikla lækkun á fiskverðinu. Kröfðust þeir 22% lækkunar, sem svarar til þess, að fiskurinn hefði verið í líku verði og hann var samkvæmt samningn- um, sem Bretar gerðu við íslendinga árið 1941. ís- lenzka samninganefndin fór hins vegar fram á dálitla hækkun á fiskverðinu (10%—15%). Gekk í miklu þófi út af þessu, bæði hér á milli nefndanna og eins með aðstoð annarra aðila. Endaði þetta þannig. eins og kunnugt er, að samningurinn var samþykktur ó- breyttur, að undanskildu því, að lítils háttar hækkun fékkst á saltfiskverði. — Verð á öllum öðrum útflutn- ingsvörum, sem samið var um á sama tíma, var ó- breytt frá árinu áður. Þá er nýbúið að ganga frá samningi um sölu á síldarlýsi og síldarmjöli. Síldarmjölsverðið er óbreytt, en með miklum erfiðismunum tókst að fá lýsisverðið þá verður hann eins að gefa gaum að viðskiptum sín- um við kaupmanninn og við félagið. // // // Vér verðum að fara nokkrum orðum um þann ótta, sem sumir þykjast hafa, ef verzlunarfélögin yrðu drottnandi, þá mundu þau einoka verzlunina miklu verr en nokkur kaupmaður nú, því oft heyra menn það á íslandi, að enginn sé verri blóðsuga á löndum sínum í kaupum og sölum en íslendingar þeir, sem gefi sig að verzlun. Vér skulum nú ekkert orðlengja um þann vitnisburð.------En vér getum einungis sagt, að hvort sem nokkuð væri hæft í honum eða ekki, þá getur hann ekki með neinu móti náð til félaganna. Þetta er, að oss virðist í augum uppi, því þegar ætti að gjöra ráð fyrir þess konar einokun, þá yrði félögin að vera sundruð og eyðilögð, og verzlun þeirra að vera komin í hendur einstakra manna. Þegar félögin væru í fullu fjöri og nálega hver maður í héraðinu ætti þátt í þeim, meiri eða minni, þá gæti slík félög aldrei orðið einokunarfélög vegna þess beinlínis, að þau gæti engan einokað nema sjálf sig. Gjörum við, að allir Húnvetningar til dæmis væri í einu félagi, þá réði þeir sjálfir félagsstjórn sinni, þeir veldi menn til að skoða reikningana og bækurnar, þeir vissi um öll við- skipti félagsins, um öll kaup þess og sölur, kaupstjór- inn og allir þeir, sem væri við verzlun félagsins, væri þjónar þess og stæði til ábyrgðar fyrir félagsmönnum; félagið sjálft réði eiginlega prísunum á allri vöru í hönd og úr; hvernig ætti þá þetta félag að geta ein- okað Húnvetninga? Það væri sama og ímynda sér, að félagið einokaði sig sjálft. Já, það gæti einokað sig að því leyti, að það bindi sig við reglur, sem það sjálft samþykkti, en vér getum varla ætlað, að menn þyrfti að óttast, að þær reglur kynni að verða svo heimsku- legar og skaðlegar félaginu, að þær yrði því til eyði- leggingar; ef svo væri, þá yrði manni víst óhætt að hugga sig við, að það væri á valdi félagsmanna sjálfra að breyta þeim og taka stjórnina af þeim mönnum, sem hefði verið upphafsmenn til þeirra.-- Það er því hið bezta ráð, sem vér að endingu get- um gefið lesendum vorum á íslandi, að tefja ekki við að ganga í verzlunarfélög, sem hafi þann tilgang að gjöra verzlun vora innlenda í eiginlegasta skilningi, Framh. á síðu 174 157

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.