Samvinnan - 01.06.1944, Blaðsíða 40
SAMVINNAN
5.-6. HEFTI
JÓJÍAS JÓXSSOX:
Mjólkurmál Gnnnar§ Thorodd§ens
Svo sem fyrr er getið, liófu kommúnistar marghátt-
aðar árásir á samvinnufélög bænda á haustþinginu
Í943. Ein af þessum árásum var krafa þeirra um að
taka allar mjólkurvinnslustöðvar landsins af bænd-
um og leggja þær undir bæjarstjórnir kaupstaðanna.
Með þessu frv. fóru kommúnistar nokkuð inn á gam-
alt veiðisvið Morgunblaðsins og Vísis. Þessi blöð og
margir fylgismenn þeirra höfðu tekið afurðasölulög-
unum frá 1934 svo illa sem verða mátti. Trúnaðar-
menn kaupfélaganna höfðu undirbúið þessa löggjöf,
og hún komst í framkvæmd með opinberri verzlun
tveggja flokka.Framsóknarmenn fengu í sinn hlut af-
urðasölulögin, en Alþýðuflokkurinn hinar almennu
tryggingar. Mbl.menn voru í andstöðu við þetta tveggja
flokka bandalag.
Hið nýja skipulag kom nokkuð við hagsmuni ein-
stakra manna í stærri bæjunum, og undu þeir því illa,
svo sem oftast verður undir þeim kringumstæðum.
Þessir menn beittu sér með harðfylgi gegn mjólkur-
skipulaginu. Og vegna flokksfylgis, drógu þeir með
sér um nokkurra ára skeið töluvert af pólitískum
samherjum, sem voru bændur í sveit og áttu fjár-
málaöryggi sitt undir, að hið nýja skipulag kæmist
á og gæti lánast vel. Bændastéttin sjálf var þess vegna,
á hinum pólitíska vettvangi, tvískipt um framkvæmd
mjólkurmálsins um nokkurra ára skeið. Samvinna
þriggja borgaraflokka um stjórn landsins frá 1939—43
dró úr gömlum ófriðareldi á ýmsum sviðum. Þetta
átti alveg sérstaklega við um mjólkurmálið. Vorið
1943 tókst að koma á samkomulagi mjólkurframleið-
enda á landinu sunnan og austan verðu um framkv.
mjólkursölunnar í Reykjavík og Hafnarfirði. Hlutverk-
unum var nú skipt þannig, að Alþýðuflokkurinn var
kominn í andstöðu við bændur og fylgdi kommúnist-
um oft nokkuð á leið í áróðri gegn sveitunum. Á hinn
bóginn voru bændur úr tveim stærstu flokkunum nú
komnir í eðlilegt samstarf um stjórn og rekstur Sam-
sölunnar í Reykjavík. Vann stjórn Samsölunnar af
alefli að því, að koma upp nýrri og ágætri mjólkur-
vinnslustöð í Reykjavík, og að mörgum öðrum fram-
kvæmdum í sömu átt.
Þegar kommúnistar létu rigna frv. og ályktunum
til óþurftar bændum landsins, svo að segja dag hvern,
þótti hinu forna bæjarvaldi Mbl.manna sennilegt,
ræður fluttar. Jafnframt var sýnd kvikmynd í kvik-
myndaskálanum. Að síðustu var dansað fram á nótt.
Hátíð þessi fór vel og virðulega fram og var hin
ánægjulegasta, og mun þarna hafa verið saman komið
yfir 2000 manns. Mættu margar slíkar samvinnuhá-
tíðir verða haldnar áþessu merkisári samvinnumanna.
Gl. R.
að hér gæti orðið um flokkslegt tjón að ræða. Mbl.
hafði árum saman flutt Reykvíkingum þann boðskap,
að mjólkurskipulagið væri byggt á kúgun og ranglæti,
og ófullkomið á allan hátt. Nú gengu kommúnistar
lengra heldur en forkólfar samkeppnisstefnunnar
höfðu látið sig dreyma um. Nú hóta kommúnistar
að ræna, og taka með eignarnámi réttmæta eign
bænda. Síðan skyldi þessi atvinnugrein þjóðnýtt. Þetta
var engan veginn að skapi hinna fornu andstæðinga
mjólkurskipulagsins. Þeir höfðu lagt stund á að brjóta
það 'niður, en ekki með þjóðnýtingu. Nú var kominn
til skjalanna nýr aðili, sem var líklegur til afla sér
kjörfylgis með því að sýna mesta ósanngirni gagnvart
mjólkurframleiðendum í landinu.
Gunnar Thoroddsen gerðist málsvari þessara manna
á Alþingi. Frv. þeirra Sigfúsar Sigurhjartarsonar, Áka
Jakobssonar og Einars Olgeirssonar, um að taka mjólk-
uriðnaðinn með ránshendi af bændum landsins, var
á þingskjali 77. En þingsályktun Gunnars Thoroddsen
var á þingskjali 173. Sá tími, sem leið milli útkomu
þessara þingskjala sýndi, hve langan tíma kommún-
istar þurftu til að kveikja árásareld í gömlum and-
stæðingum mjólkurskipulagsins. Tillaga Gunnars
Thoroddsens er á þessa leið:
„Neðri deild Alþingis ályktar að kjósa rannsóknar-
nefnd mjólkurmála, er skipuð skal 5 innandeildar-
þingmönnum. Nefndin kýs sér sjálf formann og skiptir
að öðru leyti með sér störfum.
Nefndin skal rannsaka og gera tillögur um þau at-
riði ,er hér segir:
1. Að hve miklu leyti séu réttmætar margítrekaðar
umkvartanir neytenda í Reykjavík og Hafnar-
firði um gallaða og lélega mjólk.
2. Orsakir þess tilfinnanlega skorts á mjólk og
mjólkurafurðum, svo sem smjöri, skyri og rjóma,
sem oft hefur gert vart við sig.
3. Hversu mikið mjólkurmagn hefur á hverjum
tíma verið selt hinu erlenda setuliði.
4. Hversu mikið mjólkurmagn hefur hin síðustu
ár farið til neyzlu og hversu mikið til vinnslu
mjólkurafurða.
5. Rannsaka dreifingar- og vinnslukostnað, flutn-
ingskostnað og flutningsfyrirkomulag í héraði
og til sölustaða og gera tillögur um þessi atriði.
6. Gera tillögur um, hversu auka megi mjólkur-
neyzlu íslendinga, eftir að hið erlenda setulið
hættir mjólkurkaupum hér.
7. Gera tillögur um, hversu bezt verði háttað heppi-
legu og friðsamlegu samstarfi framleiðenda og
neytenda um mjólkursölumálin.
Nefndin skal hefja störf sín og ljúka þeim svo fljótt
sem verða má. Er henni samkvæmt 34. gr. stjórnar-
skrárinnar veittur réttur til að heimta skýrslur, munn-
172