Samvinnan - 01.12.1966, Page 33
dralon
asta, sagði Lísa við Jönnu!
Komdu! Þær hlupu upp
að barnaherbergisdyrunum.
Lísa hafði töfrasprotann til-
búinn. Hún gerði rifu með
hurðinni og þuldi töfraorð-
in sín eins hratt og nokkur
galdrakall hefur nokkurn
tíma þulið töfraþulu. Þetta
gekk vel, og Lísa gat opnað
aftur upp á gátt fyrir
mömmu.
— Hvers konar útgangur
er á þér, barn, sagði mamma.
Hvar hefur þú eiginlega
fengið þessi föt.
— Bíddu aðeins, sagði Lísa
og svo beindi hún töfra-
sprotanum að maganum á
sjálfri sér. Hókus, pókus,
simmsalabimm, nú verður
þú aftur Lísa.
Og það varð hún auðvit-
að.
Svo var talað lengi um
allt saman. Afi skammaðist
sín svolítið fyrir þetta með
gluggatjaldið, og mamma
dauðskammaðist sín, þegar
hún sá hvernig umhorfs
var í barnaherberginu. En
Lísa fékk loforð um nýja
brúðu í staðinn fyrir þá
gömlu, sem var orðin ónýt,
og brúðuskápurinn var nú
orðinn gamall hvort eð var.
Og þegar Lísa og Janna
lágu í rúminu sínu alveg
einsog þú gerir núna, þá
sagði Janna, að næst trúa
allir þeir fullorðnu því sem
við segjum. Og það hélt Lísa
líka.
HP þýddi.
23. þing
Alþjóðasamvinnu-
sambandsins
Framh. af bls. 8.
— Já, ræðu dr. Bonows
hefur Samvinnan fengið og
við höfum hug á að birta
hana sem næst í heild. En
hver voru svo meginmálefni
þingsins?
— Fyrstu tvo daga þings-
ins voru ræddar skýrslur frá
miðstjórn og ýmsum nefnd-
um, sem starfað höfðu á
milli þinga, t. d. um trygg-
ingar, bankamál, húsnæðis-
mál o. fl. Á þriðja degi hóf-
ust svo umræður um skýrslu
nefndarinnar, sem haft
hafði til athugunar grund-
vallarreglur samvinnufélag-
anna og þið hafið sagt frá í
Samvinnunni. Framsögu-
maður nefndarinnar var
próf. D. G. Karve frá Ind-
landi. Grundvallarreglur
samvinnufélaga um allan
heim, sem venjulega eru
nefndar „reglur vefaranna",
voru endurskoðaðar og að
nokkru formaðar af nýju á
þingi Alþjóðasamvinnusam-
bandsins 1937, þótt „andi“
þeirra hafi alltaf verið sá
sami frá upphafi. Það voru
þessar reglur frá 1937, sem
nefndin hafði haft til at-
hugunar. Þar voru fjórar
svonefndar aðalreglur og
þrjár minni háttar. Þessar
fjórar lutu að: 1. opinni að-
ild, 2. lýðræðislegri stjórn,
3. endurgreiðslu til aðila og
4. takmörkuðum vaxta-
greiðslum af stofnfé. Hinar
þrjár, sem taldar voru skipta
minna máli, lutu að: 1. trú-
arlegu og pólitísku hlutleysi,
2. staðgreiðslu í verzlun og
3. samvinnufræðslu.
— Og hverjar voru svo
niðurstöður nefndarinnar?
— Hún gerði það að tillögu
sinni, að grundvallarregl-
urnar skyldu vera sex, allar
jafngildar: 1. frjáls aðild, 2.
lýðræðisstjórn, 3. takmark-
aðar vaxtagreiðslur af stofn-
fé, 4. réttlát skipting tekju-
afgangs, 5. öflug fræðslu-
starfsemi og 6. öflug sam-
vinna hinna ýmsu samvinnu
félaga. Þannig eru þær efn-
islega, en nánar verða þær
svo vitanlega skilgreindar á
tungumálum aðildarþjóð-
anna, og við fyrstu greinina
t. v. samþykkti þingið við-
bót á þá leið, að aðild skuli
vera frjáls án „hindrana eða
nokkurs þjóðfélagslegs,
pó!itísks, trúarlegs eða kyn-
þáttabundins manngreinar-
álits.“
— Voru ekki skiptar skoð-
anir um grundvallarreglurn-
ar?
— Umræður urðu allmikl-
ar og tillögur nefndarinnar
voru samþykktar með 600
atkvæðum gegn 149.
— Eru ekki fleiri mál, sem
þú vildir segja okkur frá?
— Jú, margt fleira kom til
umræðu og ályktana. Síð-
asta dag þingsins var rætt
um álit nefndar, sem fjallað
hafði um tækniaðstoð við
samvinnufélög í þróunar-
löndunum. Það var sam-
þykkt að hvetja til sem allra
mestrar aðstoðar aflögu-
færra þjóða við hinar lakar
settu.
Þá var rætt um heimsfrið-
inn og M. M. Brot frá Frakk-
landi mælti fyrir ályktunar-
tillögu frá miðstjórn I.C.A.
og var hún samþykkt sam-
hljcða. Ályktunin hvetur
allar ríkisstjórnir heimsins
til að lúta alþjóðalögurn og
veita alþjóðafriðargæzlu
allan hugsanlegan fjárhags-
og siðferðilegan stuðning, og
staðfestir enn fremur trú
aðildarfélaga I.C.A. á starf
Sameinuðu þjóðanna.
Þá var flutt ályktunartil-
laga frá miðstjórn um Viet-
Nam málið. Ályktunin hljóð-
aði þannig:
„Tuttugasta og þriðja þing
Alþj óðasamvinnusambands-
ins, þar sem sæti eiga full-
trúar meir en 200 millj. sam-
vinnumanna um allan heim,
LÝSIR þungum áhyggjum
vegna núverandi ástands í
Viet-Nam og hugsanlegra á-
hrifa þess á heimsfriðinn,
STYÐUR heilshugar þrot-
lausar tilraunir aðalritara
Sameinuðu þjóðanna til að
ryðja brautina að friðsam-
legri lausn deilnanna og
HVETUR alla aðila, sem
beint eða óbeint eiga hlut
að stríðinu í Viet-Nam, til að
gera sitt ítrasta til að koma
þegar í stað á vopnahléi, sem
teljast verður frumskilyrði
fyrir tilraunum til friðar
fyrir hina hrjáðu þjóð í Viet-
Nam.“
Ályktunin var samþykkt
samhljóða en fulltrúar
Sovétríkjanna, Tékkóslóvak-
íu, Búlgariu, Rúmeníu, Pól-
lands og Ungverjalands sátu
hjá.
í framhaldi af þessari á-
lyktun var þingforseta, vara-
forseta og forseta Alþjóða-
samvinnusambandsins gef-
in heimild til að beita áhrif-
um sínum í þá átt, að U
Thant fengist til að endur-
SAMVINNAN 33