Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1966, Qupperneq 44

Samvinnan - 01.12.1966, Qupperneq 44
— Tengdasonur vildi gjarnan að ég liti á aðstöðuna með hon- um, af því ég er kunnugur hér. Og svona, þér að segja, — hann skotraði augum til piltagulls- ins, sem svaf vært þessa stund- ina, — hvaða kona er þetta? — Hún er aumingi. Rugluð. Þú getur sagt hvað sem er, hennar vegna. — Já, þér að segja, Ranka, legg ég minn hlut fram. En hann verður fyrir öllu og sér um allar framkvæmdir. — Eftir þinni fyrirsögn? spurði gamla konan. Henni leið ekki vel. — Minni? Nei, síður en svo, hann hefir alveg frjálsar hend- ur. Ég skal segja þér, Ranka, að ég hef verið mikill ham- ingjumaður með það, að það er alltaf góð samvinna og sam- heldni milli minnar fjölskyldu. Alveg sérstök samheldni, ekki sízt hvað fjáröflun og viðskipt- um viðkemur. — Það hefir líklega komið þér tetur, sagði gamla unnust- an hans og hló kalt. Það hefði hún aldrei gert, ef hún hefði ekki fengið vinning. Ef hún hefði legið hér undir öðrum kringumstæðum og Stebbi komið til hennar, hefði þessi dofni kuldablettur í hug- anum þiðnað og bráðnað. En nú breiddi hann úr sér og kældi allt umhverfis sig. Hvað var orðið af Ragnhildi gömlu Jónsdóttur? — Hvað áttu við? spurði Stebbi hissa. — O, ekki neitt. Það var stundarþögn. — Þú ert kannski alltaf reið við mig, Ranka, þó við séum orðin þetta gömul, sagði hann loks. — Æi, nei, það held ég ekki, svaraði hún dræmt. — Ég hef kannski komið illa fram við þig, Ranka. En þú vildir þetta sjálf, að við hættum, þegar Beta.-------- — Æ, þetta er allt liðið. Það var allt eðlilegt. Þið voruð bæði yngri en ég. Nema loforð er loforð, þó það sé af heimsku og fljótfærni gefið. Hvernig líður Betu? — Hún er farin að tapa sjón. Og setja eitt og annað fyrir sig. Annars var hún aldrei með neinar grillur, hún Beta, ekki á fyrri árunum. Hún var mér einstaklega samhent. Við átt- um vel saman, við Beta, þú get- ur ekki borið á móti því. En hún var ekki, ja, hvað á ég að segja, — hún var svona eins og grófari en þú. Hún hefði aldrei sætt sig við það, að bera ekkert úr býtum.----- — Hefir hún þá borið eitt- hvað úr býtum? Hann spratt upp af stólnum, furðu unglega, augnaráðið hvesstist. — Úr býtum? Hún Beta! Hefir þú aldrei frétt neitt af okkur á seinni árum? Veiztu ekki að við erum — ja, — mjög vel stæð. Þú myndir kalla okkur vellrík. Hún hefir bók- staflega allt, sem ein kona á hennar aldri getur óskað sér. Og fjögur mannvænleg börn, öll vel af guði gerð og komast vel áfram. — Nú, þú sagðir að hún setti eitt og annað fyrir sig. Hvað er það þá? — Já það. Það er ellin. Það eru hennar fylgjur. — Jæja? Ranka mundi ekki eftir neinu sérstöku, sem hún hafði sett fyrir sig áður en —- nú, jæja, kannski var til í þessu. —• Heyrðu, Ranka, sagði Stebbi. — Hvað ætlastu fyrir með þessa íbúð þína? — Skúrinn? Ég flyt í hann aftur þegar ég fer héðan. — Heldurðu að ég kalli hann íbúð? Nei, ég átti við íbúðina, sem þú vannst í vetur. Mér var sagt að þú vildir selja hana. — Hver segir það? spurði Ranka og fékk hjartslátt. Mik- inn hjartslátt. — Er það kannski vitleysa? Stebba fannst bersýnilega að sögumaður hans kæmi málinu ekki við. — Já, það er vitleysa. Ranka hallaði sér að rúminu og reyndi að hafa hemil á hjartslættin- um. — Hvað ætlarðu þá að gera við hana? Ekki geturðu látið hana standa svona. — Nei. — Þú ætlar kannski að inn- rétta hana og flytja í hana sjálf? — Hvað ert þú að hugsa um það? Þú hefir ekki borið um- hyggju fyrir mér hingað til. — Nei, það er satt. Enda bjóst ég ekki við að þú vildir þiggja neitt af mér, þó ég byði þér aðstoð. — Ég hef ekki verið í neinni þörf fyrir þína aðstoð. Ekki heldur núna. — Er það þessi Jóhannes, sem sér um það fyrir þig? Nú ég ætlaði ekki að troða neinni hjálpsemi upp á þig. Bara, ef þú ætlar að selja, þá er ég fús til að kaupa og borga út í hönd. Hann hneggjaði í barm sér. — Þú færð ekki slíkan kaupanda á hverjum degi. — Ég ætla ekki að selja, sagði gamla konan fastmælt. — Hvað ætlarðu þá að gera? Innrétta íbúðina og leigja hana? Eða hvað? — Getur verið. — Og láta þá, sem taka að sér innréttinguna, hafa allt- saman af þér. Ég segi þér satt, □ * * * * * STERKIR * □ □ * DJ* IÐUHHftR skórnir eru liprir, vandaðir og þægilegir. Nylonsólarnir „DURALITE" hafa marg- falda endingu á við aðra sóla. Hið breiða lag á Iðunnar skónum tryggir yður aukna vellíðan. 44 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.