Samvinnan - 01.04.1969, Qupperneq 10

Samvinnan - 01.04.1969, Qupperneq 10
Sú speki bændaþjóðfélagsins, að bókvitið verði ekki látið í askana, lifir enn furðugóðu lífi meðal islendinga á miðri tækniöld, og er margt til vitnis um það, til dæmis aðbúnaðurinn að Háskóla íslands og Háskólabókasafni, og þá ekki siður afstaðan til og aðbúðin að þeim mönnum sem aflað hafa sér hvað mestrar menntunar i sínum fögum: þeir mega heita óalandi í þjóðfélaginu. Ég get af eigin kynnum nefnt heilan tug hámenntaðra manna í ýmsum greinum, ekki sízt verkiegum, sem hafa bókstaflega talað hrökklazt úr landi vegna vanskilnings ráðamanna og þjóðfélagsins í heild á þörfum þeirra og mikilvægi í nútímasamfélagi. Sumir þeirra voru hraktir burt af eldri starfsbræðrum og yfirboðurum, steinrunnum og geldum öldungum, sem máttu ekki heyra minnzt á nýmæli, breyt- ingar, tilraunir. Hvað gamlir fauskar í íslenzka mennta- og embættis- mannakerfinu hafa kostað þjóðina í beinhörðum peningum, væri fróð- legt að fá upplýst og áreiðanlega ósköp dapurlegt. Að undanförnu hafa átt sér stað allumfangsmiklar umræður um þarfir Háskóla íslands og framtíðarskipulag, og hafa stúdentar þar gengið framfyrir skjöldu að hætti stallbræðra sinna erlendis, og viti menn: þeim hefur orðið nokkuð ágengt. Hinsvegar vekur það manni hálf- gerðan hroll, að nú skuli vera rætt af eldmóði um vandamál sem hefði átt að vera búið að leysa fyrir hálfri öld. Árið 1914, í þann mund sem fyrri heimsstyrjöldin var að skella á, fóru fram umræður á Alþingi um stofnun kennarastóls ( klassískum fræðum (grlsku og latínu) við Há- skóla Islands. Sóttu ýmsir þingmenn fast að fá frumvarpið samþykkt, enda var verið að hygla stjórnmálamanni, Bjarna frá Vogi, með hægu embætti, einsog svo oft endranær, þó það kæmi hvergi fram í um- ræðum Alþingis! Bjarna var veitt embættið eftir að frumvarpið hafði verið lamið í gegn, en að honum gengnum lognaðist embættið útaf hljóðalaust! Þv( rifja ég upp þetta sláandi dæmi um afskipti Alþingis af menntamálum, að í umræðum um frumvarpið heyrðist skýrt og hvellt að minnstakosti ein raust raunsæis og framsýni, raust Guðmundar Björnssonar landlæknis, siðasta konungkjörins þingmanns (slendinga, sem meðal annars hafði þetta að segja fyrir 55 árum: „Ég heyri menn tala um, að þetta sé nytsemdarmál, þó að það sé ekki stórmál — að það sé sjálfsagt að samþykkja þetta frumvarp, bæði vegna þess að það sé þarflegt, og vegna þess að það hafi engan eða lítinn kostnað ( för með sér. Ég get nú ekki verið þessu samdóma; ég lít svo á, að hér sé stórmál á ferðinni. Ég var einn af þeim mönnum, sem vann að því að koma Háskólanum á laggirnar; ég átti þátt ( lög- gjöfinni um stofnun hans og starfssvið og fékk þv( tækifæri til þess að hugsa háskólamálið rækilega. Það, sem menn ( upphafi urðu að gjöra sér Ijóst, var þetta, í hvaða átt Háskólinn ætti að stefna. Upphaflega var það aðeins tilgangurinn að steypa saman þessum þremur embættismannaskólum, sem áður voru til. En þó varð það ofan á, að þar að auki var bætt við kennslu í fslenzkum fræðum og heimspekin greind frá guðfræðinni. Aðrar nýj- ungar voru ekki gjörðar. — En þelr, sem nokkuð hugsuðu fram í tim- ann, voru að bollaleggja hverjum námsgreinum ætti að bæta við næst. Um það voru að vlsu skiptar skoðanir. En það vil ég segja, að það gengur óhæfu næst, að Alþingi fari að skipta sér af þessu máli, án þess að það hafi áður verið rækilega (hugað, hvað Háskólann vanhagar mest um. Er það grlska og latína? Eða eru það ef til vill aðrar menntir þarflegri og notadrýgri? Þetta vil ég biðja nefnd þá, er væntanlega verður skipuð, að íhuga vandlega. Vér verðum ennfremur að hafa það hugfast í þessu máli, að við getum ekki sökum efnaskorts fengið allt það, sem við óskum. Vér getum þvl miður ekki komið oss upp svo fjölskrúðugum háskóla sem stórþjóðirnar. Og einmitt þess vegna verð- um við að hugsa vandlega um hvert spor, sem við stlgum ( þessu máli — og þess vegna er hér um stórmál að ræða. Hér er að velja um tvær stefnur. Eigum vér að hneigjast að málfræðivísindunum og bæta við latfnu og grfsku, og þar á ofan svo ef til vill arablsku og sanskrít? Eða eigum vér að taka upp nytsemdarstefnuna og reyna að efla náttúru- vísindin og reynsiuvlsindin, svo sem fremst er kostur? i því sambandi vil ég aðeins leyfa mér að benda á það eitt, að flest ung og upprenn- andi þjóðfélög leggja aðaláherzluna á hin nýju vísindi." Síðar ( umræðunum komst Guðmundur Björnsson svo að orði: „Þær eru örfáar þær fræðigreinar sem nú eru kenndar hér ( Háskól- anum. Þar vantar enn kennslu í mörgum nytsömustu og merkustu fræðigreinum nútíðarmanna. Eigi að bæta við nýjum kennslugreinum, þá verður að íhuga hver nauðsynlegust sé; ekkert vit í að breyta til eða bæta við af handahófi. En þetta nýmæli er eindæma handahófs- verk — einblínt á grísku og latínu, eins og það eitt vanti eða sá skortur- inn sé langbagalegastur .... Hér í Háskólanum er ekki kennd veraldarsaga, ekki landafræði, ekki jarðfræði, ekki stærðfræði, ekki efnafræði (nema læknaefnum lítils- háttar), ekki grasafræði, ekki dýrafræði, ekki lögum samkvæmt enska, franska eða þýzka, ekki svo mikið sem að nútíðaríslenzka sé kennd, heldur fornmálið eitt, ekki heldur nein mannvirkjafræði, þótt þau séu alstaðar orðin brýnasta nauðsyn nú á dögum. Til að nema öll þessi fræði og mörg fleiri verða íslendingar enn sem fyrr að ganga í erlenda háskóla .... Flestar þessar háskalegu hugsunarvillur í hversdagssökum og þjóð- málum, sem alstaðar eru alkunnar, koma af því, að menn eru yfir- leitt „ónýtir ( reikningi", eins og sagt er í skóla; hafa aldrei eygt eða skilið og lotið með lotningu tölvísinnar einföldu, eillfu, háleitu og óskeik- ulu lögmálum; flestar „vitleysur" og „glappaskot" eru blátt áfram barna- legar reikningsvillur. Og hún er nú líka, tölvísin, alstaðar meðal mennt- aðra þjóða á hraðri leið, það veit ég, ( skólunum, háum og lágum, upp í hásæti vísindanna. Mér er sem ég heyri, hvað sagt verður á Alþingi eftir svo sem 100 ár um þetta tiltæki núna, ef af því verður, að ráða há- skólastúdent til að vaka yfir l(ki latínunnar og grískunnar, en láta Há- skólann vera alveg „ónýtan I reikningi", og eiga þó ágætan íslenzkan fræðimann, Ólaf Daníelsson, ( þeim höfuðvísindum." Guðmundur Björnsson benti á ýmsa fleiri raunvísindamenn í ræðu sinni, menn einsog Bjarna Sæmundsson, Þorvald Thoroddsen og Helga Péturss, en orðum hans var lítill gaumur gefinn, og Alþingi samþykkti hið flausturslega frumvarp með svipuðum hætti og það hefur æ síðan fjallað um málefni Háskólans. Það er satt að segja harla kynlegt, að Háskólinn skuli ekki hafa átt skeleggari málsvara á Alþingi en raun ber vitni, þegar þess er gætt að margir þingmanna koma úr röðum háskólaprófessora, formenn beggja stjórnarflokkanna eru fyrrverandi prófessorar og formaður Framsóknarflokksins er starfandi prófessor. Hefur þessum mönnum verið um megn að leiða flokksbræðrum sínum fyrir sjónir, hve mikið veltur á Háskóla íslands um framtíð þessarar þjóðar, eða eru þeir kannski sjálfir fávísir um það? Seinni kosturinn er því miður sennilegri, því ekki fara neinar sögur af viðleitni flokks- foringjanna eða annarra háskólamanna á Alþingi ( þá átt að bæta fyrir hálfrar aldar vanrækslu á einhverjum brýnustu nauðsynjamálum íslendinga, því án réttnefnds háskóla verður (sland ekki annað en út- kjálki og verstöð. Um það þarf naumast að fjölyrða, að fátt vanhagar þjóðina nú meira um en fullkomna og vísindalega könnun á þörfum þjóðfélagsins, og snertir það Háskólann mjög. Án sllkrar vitneskju verður fræðslu- kerfið að meira eða minna leyti handahófsverk og skipulag Háskólans ámóta lotterí og það sem nú stendur straum af kostnaði við hann. Margt bendir til þess, að sumar deildir Háskólans stundi offramleiðslu, en allt er það samt á huldu, til verulegs tjóns fyrir þjóðfélagið. Könnun á hagnýtingu háskólamenntaðra manna I atvinnulffinu, til dæmis hjá ýmsum stórfyrirtækjum ( iðnaði einsog verksmiðjum S.Í.S. á Akureyri, væri sömuleiðis fróðieg, og mundi sennilega leiða til þeirrar sann- íslenzku niðurstöðu, að enn sem komið er sé bókvit ekki talið vænlegt til raunhæfra starfa. Þeirri hjátrú verður að rýma úr landinu hið fyrsta. s-a-m
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.