Samvinnan - 01.04.1969, Blaðsíða 43

Samvinnan - 01.04.1969, Blaðsíða 43
Henri Langlois, sem franskir kvikmyndamenn sameinuðust um að verja. fylgjandi þessari uppástungu, sem komið hefur fram hjá ýmsum höfundum og leikstjórum með Louis Malle í farar- broddi. Allt eru þetta stór orð og góð, kvik- myndaframleiðsla með samvinnusniði og allt hitt, enda hafa þessar hugmyndir hlotið gífurlegt fylgi. Eins og að líkum lætur, er andstaðan gegn þeim hat- ramleg á hinn bóginn. Fjandmenn þess- ara nýstárlegu kenninga ná alls ekki upp í nefið á sér í offorsinu. Það, sem hinir ungu kvikmyndagerðarmenn hyggja á, fær ekki staðizt til fulls við það þjóð- skipulag sem nú er ríkjandi í Frakklandi. Langlois-forleikurinn Ríkar ástæður lágu til þess, að sam- heldni kvikmyndagerðarmanna var orðin slík í vor, sem naiun bar vitni. Þar komu til atburðir sem gerðust nokkru fyrr. í febrúar 1968 var Henri Langlois, forstöðu- manni franska kvikmyndasafnsins Ciné- matheque Francaise, vikið úrstarfi. Hann var sakaður um að hafa ekki rækt starf sitt almennilega, ekki haft reiðu á skipu- lagi safnsins og ekki hirt um að bókfæra að neinu gaigni fé og eignir safnslns. Freðhausar Parísarborgar höfðu ímynd- að sér, að þessi lausn safnstjóra nokkurs frá starfi yrði þegjandi öll og hljóðalaus, en jafnskjótt rifnaði utan af þessu regin- hneyksli; það varð opinberlega frábært og bergmálar enn. Henri Langlois hafði rekið kvikmynda- safnið einna líkast því sem um einka- fyrirtæki væri að ræða. Hann hafði bjargað ótölulegum fjölda kvikmynda frá glötun; safnið er ótvírætt fremst sinnar tegundar á kringlunni; leikstjórar þeir sem kenndir eru við nýju bylgjuna líta á hann sem einn helzta andlegam leið- toga sinn. Það er á sýningum í kvik- myndasafninu góða, en ekki á kvik- myndaskólunum, sem franska kvikmynd- in hefur orðið til. Þar hafa menn horft, horft, horft og hugsað, og þar hefur þró- unin átt sér stað. Menn þykja fráleitt viðræðuhæfir í hópi fransks kvikmynda- gerðarfólks án þess að hafa eytt fáeinum árum í „gleðihúsi kvikmyndarinnar", eins og það er stundum nefnt. Sá fyrirsláttur, að Langlois skipulegði starfsemina ekki af viti, er næsta undar- legur skratti, þegar þess er gætt, að sýn- ingar eru í safninu daglega í að minnsta kosti tveimur sýninigairisölum, á sex til átta kvikmyndum, — fjörutíu talsins á viku hverri, rúmlega tvö þúsund á ári. Annars hefur Langlois oftsinnis kvart- að undan fruntaskap þeirra, sem ráðin hafa um málefni safnsins. Slík ádeila kom til dæmis fram í viðtali við hann árið 1966 í tímaritinu film. Ekki voru það barbarar, sem gerðu út af við róm- verska ríkið í eina tíð, elskurnar mínar, sagði hann, heldur freðhænsnin. Hann hefur þegar gert grein fyrir bví. um hvað ágreiningur hafi staðið. Honum var gefið það að sök að láta sér úr hófi annt um bandarískar kvikmyndir (var bá löngu búinn að hafa uppi á öllum frönsk- um kvikmyndum sem ekki höfðu verið eyðilagðar). Fávísi stjórnarnefndar safnsins var svo dæmalaus og fáránleg um virðingu þá sem Langlois nýtur og lífsstarf hans. að hún rak hann einfaldlega frá völdum í kasti, kynnti eftirmann hans í leiðinni og sagði fjöldanum öllum af starfsmönn- um safnsins upp vinnu. Vitanlega mót- mæltu allir helztu kvikmyndagerðarmenn bjóðarinnar þessari ósvífni í snatri, efndu til mótmælagöngu og komu í veg fyrir sýningar í kvikmyndasiafnimu. Franskir leikstjórar drógu imyndir sínar allir til baika úr safniuu og erlendir leikstjóirar fóru uimsvifaflu'ust að dæmi þeinra. Andartaki síðar var safnið magnvana og óstarfhæft. Nú var sett á laggirnar nefnd, sem bar nafnið „Nefndin til verndar kvikmynda- safninu“. Heiðursforseti hennar er Jean Renoir, formaður Alain Resnais, varafor- menn Henri Alekan og Pierre Kast, rit- arastöðurnar höfðu á hendi þeir félagar Jean-Luc Godard og Jacques Rivette, gjaldkerar Francöis Truffaut og Jacques Doniol-Valcrose. og í liðssveitum nefnd- arinnar voru menn eins og Marcel Carné, Claude Chabrol, Roger Vadim, Robert Bresson og aðrir stólpar. Eru hér saman- komnir flestir kvikmyndagerðarmenn Frakka, sem hvað mestur töggur hefur þótt í hin síðari ár. Nefndin gekkst fyrir fundahöldum og mótmælaaðgerðum í París og úti á landi. Á kvikmyndahátíðinni í Cannes stóð til að fletta ofan af ofríkisstefnu de Gaulles í menningarmálum frammi fyrir alþjóð heims. Embættismenn de Gaulles gáfust Godard og aðrir kvikmyndamenn mótmœla brottvikningu Langlois. upp. 22. apríl drógu þeir sig úr stjórnar- nefnd kvikmyndasafnsins. Kvikmyndasafnið var nú alfrjálst, en átti ekki grænan eyri. Ríkisvaldið harð- neitaði að veita til þess fé, fengi það ekki óskorað vald yfir málefnum þess. Lang- lois settist aftur í fyrri sess. Kvikmynda- gerðarmenn lýstu yfir stórsigri og það réttilega. Nefndin starfaði af fullum krafti og hóf styrktarherferð að bragði. Langlois-málið gerbreytti andrúmsloft- inu með frönsku kvikmyndagerðarfólki. Nú stóð það loks sameinað — og stútfullt af sjálfstrausti. Loksins hafði sigur unn- izt á stefnu de Gaulles. Það hafði komið áþreifanlega í ljós, að áhrifamiklar stöð- ur í fjölmiðlunartækjum, hornhaukar í ranghölum kerfisins og annað slíkt, fær aldrei komið því til leiðar, sem traust, aflmikil samheldni og einhugur fá valdið. Þetta er ástæðan fyrir því að kvik- myndagerðarmenn eru nú í fararbroddi, á undan málurum, rithöfundum og öðr- um listamönnum, í andstöðunni gegn of- ríkisstjórn, eftirliti, ofbeldi, þvingunum, höftum og banni. Pierre Mendés-France hefur komizt svo að orði, að mótmæla- aldan vegna Langlois-málsins sé í raun- inni mótmæli gegn þeirri stefnu, sem þekkja megi bezt af brottrekstri þeim úr starfi sem nú sé heimsfrægur orðinn. Það eru sveiflur þarna. Þess vegna spyrja menn nú: Er það holskefla í þetta sinnið? Eða tómar hillingar — ládeyða, svikaþytur — 'allsherj'a'r náöskur? ♦ 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.