Samvinnan - 01.04.1969, Blaðsíða 70
MALLORCA (LONDON)
15—17 dagar frá kr. 11.800.—
Brottfarardagur annan hvern miðvikudag frá 2. apríl með tveimur dög-
um í London á heimleið og að auki beint þotuflug annan hvern föstu-
dag frá 18. júlí.
Þessar ótrúlega ódýru ferðir til hinna sólríku Spánarstranda og Lon-
don getum við haft svona ódýrar, vegna þess að vinsaeldir þeirra
leyfa okkur að taka á leigu heilar flugvélar og hafa þær eingöngu í
förum 'með Sunnufarþega beint á milli áfangastaða eins og í áætlun-
arflugi á ákveðnum vikudögum. Sunna hefir vegna mikilla viðskipta
og samninga til margra ára náð hagkvæmum samningum við hótel
á Spáni. Þessvegna eru Mallorcaferðir SUNNU nú orðnar frá íslandi
jafnvel ódýrari en ferðir í sama gæðaflokki frá Kaupmannahöfn.
í þessum ferðum búið þér í tvær ógleymanlegar vikur á góðum
hótelum eða íbúðum á Mallorca, víðfrægustu ferðamannaparadís
Evrópu í meira en 100 ár. Tónskáldið Chopin var þar „túristi" 1838,
einn af mörgum orti hann landinu mikinn óð í tónum og gaf Mall-
orca nafnið „Paradís á jörð“. Það var fyrir meira en 100 árum og enn-
þá er Mallorca vissulega búin sömu náttúrutöfrum og veðursæld, sem
hvergi á sér lika við Miðjarðarhaf. Um það er reynslan ólygnust. Á
Mallorca er miklu öruggari og jafnari veðursæld en nokkurs staðar
á meginlandi Spánar. Þar er alltaf hlýtt og notalegt en aldrei ofsahiti
sá sem oft kvelur fólk á Suður-Spáni [ júll, ágúst og september. Þess-
vegna er Mallorca ilangvinsælasti ferðamannastaðurinn í Evrópu, sótt-
ur af nærri fjórum milljónum gesta á sl. ári. Paradís sumar, vetur, vor
og haust nú eins og á tímum Chopins.
Allir þeir, sem eitt sinn komast til Mallorca, vilja þangað ólmir aftur.
Þar er veðrið himneskt, sjórinn, sólskinið og skemmtanalifið alveg
eins og fólk vill hafa það. Þar er góð þjónusta og glæsileg hótel, sem
ekki eru byggð fyrir atvinnubótafé spánska rikisins, eins og viðast á
meginlandi Spánar, því allir aðrir landshlutar Spánar öfunda Mallorca
af ferðafólkinu og veðursældinni, og Mallorca er eini ferðamanna-
staðurinn á Spáni, sem Spánverjar sækja sjálfir i ríkum mæli. Það
eru kannski öruggustu meðmælin fyrir ókunnuga, því þekkir nokkur
betur Spán en Spánverjarnir sjálfir? Mallorca er líka staður fyrir yður;
þangað sér enginn eftir að fara.
Fararstjórn og fyrirgreiðsla: Skrifstofa SUNNU í Palma, sími 235334.
NÝIR STAÐIR SUNNU Á SPÁNI: — IBIZA —
SITGES — BENIDORM — COSTA DEL SOL
SUNNA mun í sumar gefa farþegum kost á því að velja um fleiri
dvalarstaði á Spáni en verið hefur. Yfirgnæfandi meirihluti fólks, og
allir þeir sem til þekkja, velja Mallorca aftur ár eftir ár. Þessvegna mun
leigufluginu beint þangað, en farþegum dreift þaðan til annarra nær-
liggjandi staða, sem eru um hálftíma flugferð frá Palma.
Þannig verður hægt að fá hálfsmánaðardvöl á eyjunni IBIZA, sem er
að verða vinsæll skemmtiferðastaður, ekki langt frá Mallorca og meg-
inlandi Sþánar. Einnig hefir SUNNA tryggt sér nokkurt pláss fyrir
gesti sfna á hótelum í Sitges, sem er fallegur baðstrandarbær um 30
km sunnan við stórborgina Barcelona.
Ennfremur hefir SUNNA hótelpláss fyrir gesti sína í Torremolinos og
Benidorm á meginlandi Spánar og halda SUNNUFARÞEGAR, sem
velja þá staði, beint áfram ferð sinni til annarra áfangastaða, eftir að
leiguvélar SUNNU hafa lent á Mallorca. Dvalarkostnaður er hinn sami
á öllum þessum stöðum og á Mallorca, samkvæmt hliðstæðri verð-
flokkun hótela. f sambandi við ákveðnar ferðir verða fararstjórar frá
skrifstofu SUNNU í Palma með ferðahópum, sem fara til annarra
staða á Spáni.
KAUPMANNAHÖFN — BORGIN VIÐ SUNDIÐ
24. 6. — 19. 7. — 2. 8. — 16. 8. og 30. 8. 15—22 dagar,
verð frá kr. 11.800.—
Þessar ferðir eru skipulagðar með leiguflugi á svipaðan hátt og Mall-
orcaferðirnar vinsælu. — SUNNA hefir nokkur undanfarin ár haft
slikar ferðir með leiguflugi milli íslands og Kaupmannahafnar og not-
að sæti í flugvélum, sem flytja hingað erlenda ferðahópa. Einnig verða
nú sérstakar hópferðir fyrir „lokaða" hópa og félög, þar sem SUNNA
kaupir á lækkuðu verði samkvæmt nýjum reglum minnst 50 sæti í
áætlunarflugi. Þessar ferðir eru ýmist 8—15 eða 22 daga ferðir og er
hægt að velja um margskonar ferðatilhögun. Dvöl í Kaupmannahöfn
og ferðir þaðan til ýmissa landa og staða. Er þetta vinsæll og hag-
kvæmur ferðamáti. Þannig bjóðast italíuferðir, Norðurlandaferðir,
Austurríkisferðir og sitthvað fleira miklu ódýrar en áður hefir þekkzt.
Meðan dvalið er i Kaupmannahöfn, geta farþegar tekið þátt í skemmti-
og skoðunarferðum, sem skrifstofa SUNNU í Kaupmannahöfn efnir til
með islenzkum fararstjóra reglulega í hverri viku. Alla sunnudaga er
heilsdagsferð um Norður-Sjáland. Strandleiðin fagra meðfram Eyrar-
sundi um vatna- og skógahéruð Sjálands og skoðaður Krónborgar-
kastali og Friðriksborgarhöll og margt fleira. Á hverjum mánudegi er
heilsdagsferð yfir til Svíþjóðar til Málmeyjar og Lundar, ásamt öku-
ferð um Suður-Svíþjóð. Alla laugardagseftirmiddaga er ferð um fs-
lendingaslóðir í Kaupmannahöfn. Skoðaður Gamli Garður, Árnasafn,
hús Jóns Sigurðssonar, Jónasar Hallgrímssonar og ótal margt fleira.
Annan hvern miðvikudag er lagt upp í tveggja daga ferð til Hamborgar.
Fararstjórn og fyrirgreiðsla á skrifstofu SUNNU í Kauþmannahöfn,
Vesterbrogade 31. sími 310555.
KAUPMANNAHÖFN OG FRAMHALDSFERÐIR
TIL MARGRA LANDA
Ef fólk velur tveggja vikna dvöl í Kaupmannahöfn, er hægt að skipta
tímanum og taka þátt i hópferðum, sem SUNNA skipuleggur frá Kaup-
mannahöfn til eftirtalinna staða: Noregs og Svíþjóðar. Svartahafs-
strandar Búlgaríu, Feneyja og Rímini við Adríahaf, Júgóslavíu, Austur-
rikis, Rómar og Sorrento, og átta daga bílferð með dvöl í Rínarlöndum.
Eru ferðir þessar mjög ódýrar og farnar í samvinnu við danskar ferða-
skrifstofur. Sumar þeirra verða með íslenzkum fararstjórum.
KAUPMANNAHÖFN — RÓM — SORRENTO
16. ágúst og 30. ágúst — 15 dagar, kr. 22.800.—
Þetta er Norðurlanda- og Italiuferð, sem er örlítið breytt frá fyrri ftalíu-
ferðum, þar sem meira er flogið en áður og lengur stanzað á ftalíu.
Flogið beint til Kaupmannahafnar og þaðan til Rómar. Dvalið í Róm og
Sorrento við Napoliflóann. Skoðaðir merkir staðir og sögufrægir, siglt
SUNNUFERÐIR