Samvinnan - 01.04.1969, Qupperneq 11
2 " SAM
VINNAN
EFNI: HÖFUNDAR:
3 Lesendabréf og smælki
10 Ritstjórarabb
12 MENN SEM SETTU SVIP Á ÖLDINA: Francisco Franco
19 HÁSKÓLINN í ÞJÓÐFÉLAGI FRAMTÍÐARINNAR 19 Æðri menntun — íslenzk framtíð 21 Háskóli íslands — staða hans í nútíð og framtíð 23 Háskólinn í þjóðfélagi framtíðarinnar 24 Universitas Islandiae (Ijóð) 25 Höfum við efni á því? 26 Þriðja hlutverk háskóla 27 Hugleiðingar um háskólamenn og alþýðumenn 29 Vetur vonbrigða 31 Höll dauðans (Ijóð) 32 Hugleiðing um byggingarmál Háskóla íslands Steingrímur Hermannsson framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins Bjarni Guðnason prófessor Páll Jensson verkfræðinemi Steinn Steinarr Helgi H. Jónsson fornleifanemi, Uppsölum Högni Óskarsson læknanemi Guðmundur J. Guðmundsson varaformaður Dagsbrúnar Evelyn Scherabon Coleman prófessor við Minnesota-háskóla Sigurður Einarsson Hróbjartur Hróbjartsson arkítekt
35 SMÁSAGAN: Hnýflar sumarlambsins Edvard T. Edvardsson
36 Á morgni innrásar og Stríðskveðja (tvö Ijóð) Gísli Gunnarsson
36 Um Jannis Ritsos Sigurður A. Magnússon
37 Bréf til Joliots (Ijóð) Jannis Ritsos
38 ERLEND VÍÐSJÁ: Grikkland og viðsjár valdablakkanna Andreas Papandreú
42 KVIKMYNDIR: Rís önnur bylgja? Ólafur H. Torfason
44 Stúdentaóeirðir og pólitískt ranglæti Henk van Andel
47 SAMVINNA: Atvinnuleysi, kaupfélög og sjávarútvegur Hjörtur Hjartar
48 Undir dómi öreiganna Aage Buchert
49 Fiskimaður (Ijóð) Njörður P. Njarðvík
50 BÓKMENNTIR: Skáldsögur Guðbergs — nýtt raunsæi Eysteinn Sigurðsson
52 BORGRÍKI III: Getsakir Þorsteinn Antonsson
56 Leikhússpjall Sigurður A. Magnússon
60 Heimilisþáttur Bryndís Steinþórsdóttir
TIL ÁSKRIFENDA
Þeir áskrifendur Samvinnunnar, sem hafa ekki komið því í verk að
greiða áskriftargjald síðasta árgangs, eru enn áminntir um að gera það
við fyrstu hentugleika. Heimtur hafa verið góðar, en við þurfum á skilvísi
allra velunnara ritsins að halda, því það er dýrt í útgáfu, svo mjög sem
til þess er vandað. Einnig viljum við hvetja áskrifendur til að kynna það
kunningjum sínum eða reyna með öðrum hætti að afla því nýrra áskrif-
enda, þannig að fjárhagsgrundvöllur þess verði örugglega tryggður.
Höfunda greinaflokksins um háskólann í þessu hefti þarf væntanlega
ekki að kynna umfram það sem gert er í efnisyfirlitinu hér að ofan. Þess
má þó geta, að Evelyn Scherabon Coleman, prófessor í germönskum
miðaldafræðum við Minnesota-háskóla, dvaldist hér í fyrravetur og megin-
hluta liðins sumars á bandarískum styrk og lagði stund á íslenzkunám.
Hún er austurrísk að uppruna, en settist að vestanhafs fyrir tæpum tveim-
ur áratugum. Ljóðið „Höll dauðans" eftir séra Sigurð Einarsson, fyrrum
dósent, birtist í bók hans „Yndi unaðsstunda".
Edvard T. Edvardsson stundar bókmenntanám við háskólann í Lundi,
en var um nokkurra ára bil blaðamaður í Reykjavík. Hann hefur áður birt
sögur og Ijóð í blöðum. Gísli Gunnarsson er gagnfræðaskólakennari og
skrifaði greinina „Kristin trú frá sjónarmiði guðleysingja" í 4. hefti Sam-
vinnunnar í fyrra. Andreas Papandreú þarf ekki að kynna, en erindið sem
hér birtist hélt hann á fimm daga alþjóðaráðstefnu stjórnmálamanna,
skólamanna og menningarfrömuða, sem efnt var til í Princeton í desember
síðastliðnum undir forsæti bandaríska fræðimannsins Carls Kaysens, for-
stjóra „Institute for Advanced Study“ við Princeton-háskóla, og Jean-
Jacques Servan-Schreibers, hins kunna franska rithöfundar og ritstjóra
,,L’Express“, sem Steingrímur Hermannsson vitnar í hér á eftir.
Ólafur H. Torfason er menntaskólanemi sem samið hefur athyglisverðar
smásögur, m. a. í „Núkynslóð”, og fengizt við kvikmyndagerð. Henk van
Andel var kynntur í síðasta hefti Samvinnunnar. Hjörtur Hjartar er fram-
kvæmdastjóri skipadeildar S.Í.S. Aage Buchert er blaðafulltrúi dönsku
samvinnuhreyfingarinnar og kunnur rithöfundur um samvinnumál. Hann
er kvæntur íslenzkri konu. Aðrir höfundar hafa verið kynntir í fyrri heftum.
Marz—apríl 1969 — 63. árg. 2.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður A. Magnússon.
Blaðamaður: Eysteinn Sigurðsson.
Afgreiðsla og auglýsingar: Reynir Ingibjartsson.
Uppsetning: Teiknistofa Torfi Jónsson, Peter Behrens.
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, sími 17080.
Verð: 350 krónur árgangurinn; 75 krónur í lausasölu.
Gerð myndamóta: Prentmyndagerðin Hverfisgötu 4.
Prentverk: Prentsmiðjan Edda hf.