Samvinnan - 01.04.1969, Síða 34
tengja alla hluta háskólans á
sem beztan hátt og fulhisegja
áðumefndum kröfum um
vaX'tarmöguleika, er eðlilegt að
gert sé ráð fyrir mjög þéttri
byggð. Byrjað er á byggingu
kjairna er fullnægir öllum
helztu þörfum, en síðan byggt
við í útjöðrum hans eftir
ákveðnu kerfi. Til eru margs-
konar form á slíku kerfi. Ef
flétta þarf kerfið inn í byggð,
sem er fyrir hendi, verða
mö'guleikarnir margbreytilegri
og lausnirnar erífiðari.
Við skulum nú líta á eitt er-
lent dæmi, til að gera okkur
betur grein fyrir við hvað er
átt með slíku kerfi.
Fyrir rúmu ári lauk tveggja
hluta noirænni samkeppni
meðal arkítekta um skipulags-
áætlun fyrir nýstofnaðan há-
skóla í Oulu í Norðúr-Finn-
landi. Margar tillögur er bár-
ust þykja sýna fram á mjög at-
hyglisverðar lausnir á ýmsum
grundvallaratriðum háskóla-
skipulags, þótt flestir þátttak-
endur og dómarar væru
reynslulitlir. Fyrstuverðlauna-
hafinn, arkitektinn Kai Virta,
var aðeins 28 ára. Skólinn á að
skiptast í 3 aöaldeildir, heim-
spekideild, tæfcnivísindadeild
og læknavísindadeild. Þetta eru
einskonar yfirdeildir, en að
þeim standa undirdeildir og
kennslugreinar, sem aftur
styðjast við mismörg „institut"
eða stofnanir.
Skólimn var stofnaður 1959
með 412 sitúdemtum, en miðað
er við 3840 árið 1970 og 8000
árið 1980.
Við athuganir á 1. verð-
launa-tillögunni sjáum við, að
gert er ráð fyrir mjög þéttri
byggð. Stúdentaíbúðir eru fyr-
irhugaðar í turnum, er standa
við háskólagötuna (yfirbyggð
göngugata), en hún liggur eftir
hverfinu emdilöngu, Meðfram
götunni raðast á svipaðam hátt
kennslusalir og félagslegar
stofmanir, en í lægri bygging-
um. Út frá götunni vaxa síðan
lágar byggingar með vinnu- og
æfingasölum á j'arðhæð, en
skrifstofum og rannsóknastof-
um stofnananna á 2. og 3. hæð
(sjá mynd 2 og 3).
Sjá má á mynd 3 hvernig
„mikróvöxtur" á sér stað með
mögulegri útvíkkun stofnana,,
en „makróvöxtur" með heild-
arstækkun háskólans, þ. e.
miðsvæðis, íbúða, stofnana,
o. s. frv.
Þetta er aðeins eitt dæmi um
hvernig slíkt vaxitarkerfi getur
verið. Auðvitað hafa ýmsar
aðrar leiðir verið farnar. Ef við
nefnum kerfið í Oulu „línu-
lagagerð", þá má tala um „net-
gerð“ „einingagerð" o. fl., allt
eftir því hvernig vaxtarþörfum
er fullnægt.
NÝJAR AÐFERÐIR
En hvað er þá rétt að gera
hjá okkur? Augljóslega erum
við svo fjárhagslega vanmegn-
ug og lítil þjóð, að við munum
alltaf verða á eftir hvað við-
víkur að sjá Háskóla íslands
fyrir nægilegu húsnæði, miðað
við hvað æskilegt væri. Þeim
mun meira atriði er að hafa
fyrirhyggju og gæta þess, að
þeir fjármunir, sem ráðstafað
verður til nýbygginga hans á
ókomnum árum, nýtist til fulls.
Fjöldi þjóða eyðir í það tals-
verðum kröftum að rannsaka
á hvern hátt megi ná sem
mesturn árangri á þessu sviði.
Með allflestum þjóðum Vest-
ur-Evrópu hafa viðkomandi
yfirvöld iagt inn á þá braut að
efna til hugmyndasamkeppna
um gerð skipulags- og bygging-
aráætlana. T. d. hafa hinar
Norð'urlandaþjóðimar allar
efnt til norrænna samkeppna
meðal arkítekta um nýskipu-
lag og endurskipulag háskóla
sinna. Sjálfsagt er fyrir okkur
að taka upp sama fyrirkomu-
lag og reyndar um mörg fleiri
viðfangsefni, þar sem mikið er
í húfi að vel takist til. Þaö
hleypir fram þróuninni, gefur
af sér góða yfirsýn yfir mögu-
leikana, sem fyrir hendi eru,
leiðir af sér aukna getu Oig
þekkingu og er vænlegast til
árangurs.
Viðurkennd staðreynd er, að
því óháðari sem skapari ein-
hvers verks er kaupanda þess
eða umbjóðanda sínum, þeim
mun betri verður árangurinn
af starfi hans. í okkar tilfelli á
þetta við um tvo aðila:
í fyrsta lagi þann aðila, sem
meta á hlutverk háskólans,
starfssvið og aðferðir, þ. e. gera
þróunaráætlun. Til þess er ekki
hægt að nota háskólamennina
sjálfa; þeir hafa of mikilla
hagsmuna að gæta hver á sínu
sviði og hafa ekki hlutlausa
yfirsýn. Til þess þarf hina fær-
ustu menn, óháða og framsýna.
í öðr.u lagi þann aðila, sem á
grundvelli niðurstöðunnar af
vinnu hins fyrri, er fenginn til
að skapa þann byggingarlega
ramma, er fullnægir ýtrustu
kröfum um áramgur af erfiði.
Kemur þar til kasta þekkingar,
skynsemi og hugmyndaauðgi,
er bezt verður nýtt með þvi
frelsi, er felst í forrni opinnar
hugmyndasamkeppni.
Hróbjartur Hróbjartsson.
Mynd 2: Háskólinn í Oulu. Fyrstu verðlaun samkeppninnar. Líkanið sýnir fullbyggt hverfið frá suðvestri.
Mynd 3: Háskólinn í Oulu. Grunnmynd í mœlikvarðanum 1:10.000. Aðalhœö með háskólagötu. Strikuð lína
afmarkar fyrirhugaðan fyrsta áfanga. Litlar örvar sýna „mikróvöxten stórar örvar „makróvöxt“.
34