Samvinnan - 01.04.1969, Side 72
njóta útsýnis úr meir en 2000 metra hæð. Einnig er skroppið í skemmti-
ferð suður yfir fjallaskörðin til ítaliu.
Frá Sviss er ekið hina undurfögru leið um Svörtuskóga og Heidelberg
til Rínarlanda, og dvalið í fjóra daga við Rín í Rudesheim, einum
frægasta skemmtanabæ við sögufræga Rín. Þar hljómar glaðvær söng-
ur svo að segja nótt og dag, og um helgina, sem við dveljum þar, er
„Vínhátíðin", þar sem drottningin er krýnd. Farið er í ökuferðir um
Rínarbyggðir og siglt á fljótinu með skemmtilegum farþegaskipum.
Fararstjóri: Jón Helgason.
EDINBORGARHÁTÍÐIN
Brottför 31. ágúst. 7 daga ferð. — Verð kr. 14.580.—
Þessi vinsæla ferð hefir verið farin á hverju ári í átta ár og jafnan
fullskipuð. Fara allmargir árlega, enda er Edinborgarhátíðin mikilfeng-
legasta listahátíð álfunnar, auk þess sem Edinborg er mjög fögur borg
og ánægjulegt að dvelja þar sólheita sumardaga. Farið er í skemmti-
ferðir upp í hálendi Skotlands og hin fögru vatnahéruð, en jafnan
komið heim á hótel í Edinborg að kvöldi. Hægt er að framlengja dvöl-
ina og skreppa til London. Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson leikari.
ÆVINTÝRAFERÐIN TIL AUSTURLANDA. —
GRIKKLAND — EGYPTALAND — LÍBANON —
LANDIÐ HELGA
Brottför 3. október. 21 dagur. — Verð kr. 39.800.—
Þeir mörgu, sem tekið hafa þátt í þessum vinsælu ferðum SUNNU á
ævintýraslóðir Austurlanda, eiga fæstir nógu sterk orð til að lýsa þeim
undrum og furðum, sem fyrir augun ber. í þessa ótrúlega ódýru Aust-
urlandaferð komast jafnan færri en vilja. Valinn er sá tími árs, þegar
veðrátta og hiti er heppilegastur, og því aðeins farin ein ferð á ári.
Verðið er svona lágt vegna samvinnu við enska ferðaskrifstofu og
vegna hagkvæmra samninga við hótel, en eingöngu er dvalið á fyrsta
flokks og luxushótelum.
Flogið er til London og þaðan til Aþenu, þar sem dvalið er í þriá daga.
Ekið um hinar sögufrægu grísku byggðirtil borgar véfréttarinnar, Delfi.
Verið við sólarlag á Aþenuhæðum við Akropolis. Flogið tii Beirut.
Skoðaðir leyndardómar þessarar frægu borgar vegamóta í Austur-
löndum nær. Skoðaður hinn frægi gull- og skartgripamarkaður, heim-
sóttir persneskir teppasalar f fríhöfninni. Ekið yfir Líbanonsfjöll til
Baalbek og Damaskus. Komið í frægasta næturklúbb og spilavíti
veraldar. Frá Beirut er flogið til Kairo og dvalið á góðu hóteli á bökk-
um Nílar. Siglt á Nfl, farið um margbreytileg hverfi þessarar austur-
lenzku stórþorgar. Skoðuð „undur veraldar", pýramfdarnir miklu í
útjaðri eyðimerkurinnar og komið á bak úlföldum. Farið suður til
Luxor og Karnak og skoðaðar hinar miklu, sögufrægu grafir Faraó-
anna. Ennfremur til Assúan, þar sem mestu vatnsaflsmannvirki verald-
ar rísa í undurfögru umhverfi Núbíu suður við landamæri Egyptalands
og Súdans.
Frá Kairo er flogið til Jerúsalem, með viðkomu á Kýpur. Þar er dvalið
í fimm daga og skoðaðir allir helztu sögustaðir Bibiíunnar. Gamla
Jerúsalem, Via Doiorosa, gröf Krists, leið krossins, Getsemane, Olíu-
fjallið, Betanía, Betlehem, Jeríkó og Dauðahafið, þar sem fólki gefst
kostur á að synda í saltasta vatni veraldar. Frá Jerúsalem er flogið
til London, þar sem dvalið er í tvo daga, og hægt að framlengja dvöl,
ef óskað er. Fararstjóri: Guðni Þórðarson.
MEÐ ÞJÓÐLEIKHÚSINU UM BYGGÐIR
VESTUR-ÍSLENDINGA
16. júní — 18 dagar — kr. 49.700.—
Þetta er ferðin, sem margir hafa beðið eftir. Hæg og þægiieg ferð til
að heimsækja allar helztu byggðir íslendinga í Vesturheimi og taka
þátt í veizlugleði og fögnuði, þegar Þjóðleikhúsið heimsækir Vestur-
íslendinga í fyrsta sinn og sýnir eina af perlum íslenzkrar leiklistar,
,,íslandsklukku“ Laxness. Flogið til Winnipeg og verið þar á þjóðhá-
tíðardaginn. Ferðir um Nýja ísland, Gimli, Ásborg og víðar við Winni-
peg og Manitobavatn. Komið til Norður-Dakota. Flogið til Kyrrahafsins
og sóttar heim fjölmennar byggðir Vestur-fslendinga í Vancouver,
Seattle og víðar þar. Flogið til Miðríkja Bandaríkjanna, Minneapolis,
þar sem íslendingar hafa gert garðinn frægan. Og loks dvalið í New
York síðustu daga ferðarinnar. Fararstjóri: séra Ólafur Skúlason.
í SUNNUFERÐUM
eru eingöngu notuð góð hótel. Á Mallorca notar Sunna nú alls ekki
ódýrustu verðflokkana og öll hótel og íbúðir, sem Sunna ræður þar
yfir, eru með einkabaði, svölum og oftast fylgir sundlaug. Eigin skrif-
stofur SUNNU í Palma á Mallorca og í Kaupmannahöfn, með islenzku
starfsfólki, veita mikilvæga þjónustu. Leiguflug og hagkvæmir samn-
ingar til langs tíma við hótel erlendis er skýringin á hinu ótrúlega
lága verði SUNNUFERÐA. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er
nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn,
en spyrjið þá mörgu, sem reynt hafa SUNNUFERÐIR og velja þær
aftur ár eftir ár. Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða, sem á boð-
stólum eru, og vandið valið. Þér munuð þá eins og þúsundir annarra
íslendinga hafa komizt að því að SUNNA opnar yður ótal ævintýra-
leiðir til ódýrra utanlandsferða. Sunnuferðir eru vinsælar og viður-
kenndar af þeim fjölmörgu, sem reynt hafa, þær eru ódýrar úrvals-
ferðir og þessvegna eru það SUNNUFERÐIRNAR, sem fólkið velur.
SUNNUFERÐIR