Samvinnan - 01.08.1969, Side 4
Singer verksmiðjurnar leitast stöðugt við
oð bjóða betri kjör og nýjungar. Einu
sinni enn bjóðum við vélar undir kjör-
orðinu „Singer er spori framar". Með
Singer Golden Panoramic fylgir nú
saumastóll og með Singer 677 getið þér
saumdð sjólfkrafa 8 gerðir hnappagata.
Singer Golden Panoramic gefur gullna möguleika, meSal
annarra kosfa: hallandi nál, frjáls armur, lárétt spóla
fyrir framan nálina, sjálfvirkur nálarþræSari, ósýni-
legur faldsaumur, teygjanlegur faldsaumur, keSjuspor,
„overlokspor", tveir ganghraSar, 5 ára ábyrgS, 6 tima
kennsla innifalin, auk þess sem hún vinnur sjálfkrafa,
allt frá þræSingu upp í 8 gerSir hnappagata. MeS
Slnger Golden Panoramic fylgir sem nýjung, saumastóll.
QSSSS2D 31 | ifoSsir’pf;' Singer 237 cr ódýrasta
. HL* {? Singer vélin. Zig Zng -,él
u ' jS I fösku, saumar beinan
'>* Í41 /I (—————1 •? saum aftur á bak og
áfram. Saumar rennilás,
WjJ'ljF* mSSSSSm • . ~~~~~ ■'i fcstir tölur, faldar, rykkir.
fellir og gerir hnappagöt.
é. w mÆf ’.. ■ VerS kr. 11.275,—
Singer 670, Zig Zag vél saumar nú sjálfkrafa allt
frá þræSingu upp f 8 gerSir hnappagata.
Allir, sem eiga gamla saumavél,tegund skiptir ekki máli,geta nú látið hana sem
•greiðslu við kaup á nýrri Singer.Kaupum gömlu vélina á allt að 7.000.—kr.
Singer sölu- og sýningarstaðir:
Liverpool Laugavegi, Gefjun ISunn Austurstræti, RafbúS SÍS Ármúla 3, Kaupfélag BorgfirSinga, Kaupfélag
ísfirSinga, Kaupfélag Húnvetninga, Kaupfélag SkagfirSinga,Kaupfélag EyfirSinga, Kaupfélag Þingeyinga, Kaup-
félag HéraSsbúa, Kaupfélag Skaftfellinga,Kaupfélag Rangæinga, Kaupfélag Árnesingo, Kaupfélag SuSurnesja,
Kaupfélag HafnfirBinga.
fólks, enda von. Hvert sem aug-
um er rennt í þjóðfélaginu gefur
að sjá erfiðleika og jafnvel öng-
þveiti, ekki sízt í atvinnu- og
efnahagslífi, misrétti og spillingu
í fjármálum og embættaveiting-
um, og ráðamenn eru ósparir á
haldlítil loforð. Allt þetta hlýtur
að vekja andúð og særa réttlæt-
iskennd heilbrigðs æskufólks.
Oft eru orsakir þessa ástands
afgreiddar með því að kenna
hinu svokallaða flokksræði um
eitt og allt, og hinir fáu útvöldu,
sem ráði öllu, hugsi um það eitt
að hygla sínum. En svo einfalt er
vandamálið því miður ekki.
Stjórnmálaflokkarnir eru einn
hlekkur af fleirum, sem mynda
keðju stjórnkerfisins. Utan
þeirra liggur einnig mikið vald.
Á vissan hátt er því eins farið
um flesta þá sem fjalla um
flokksræðið í síðasta hefti Sam-
vinnunnar, sjónarmið þeirra eru
of einhæf og sú mynd, sem dreg-
in er upp af viðfangsefninu, sýn-
ir aðeins fáa fleti. Engu að síður
eru þessar endurvöktu umræður
um þjóðfélagsvandann og flokk-
ána, bæði nú í Samvinnunni og í
þjóðlífinu almennt, mjög mikils
virði. Auðvitað er mjög margt
við flokkana að athuga, starfs-
hætti þeirra og venjur, og hjá
þeim fer margt aflaga og eðli-
lega þarf að aðhæfa þá breyttu
þjóðfélagi.
Mér virðist því kjarni þessa
máls sá, hvernig hægt sé að um-
breyta stjórnmálaflokkunum á ís-
landi í starfshæfari lffrænar
heildir, sem megni að leysa ís-
lenzk vandamál. Ég tel, þrátt
fyrir allt, að skipulag flokkanna
sé tvímælalaust það lýðræðislegt
að forminu til, að slík umbreyt-
ing þeirra sé möguleg, enda verð-
ur hún að fara fram innan
þeirra. En slík endurbót og jafn-
vel umsköpun flokkakerfisins
sjálfs krefst bæði mikils tíma
og óeigingjams starfs, sem því
miður fáir úr hópi gagnrýnenda
eru reiðubúnir að leggja fram.
Það er auðveldast að hrópa bara:
eldur, eldur.
Án þess að útrýma félagslegu
afskiptaleysi velgengnisáranna
verður ekki hægt að hefja fram-
sókn þjóðarinnar á ný. Æskilegra
hefði því verið að flokksræðis-
greinarnar hefðu einnig fjallað
um hið alhliða og öfluga félags-
lega átak, sem hér verður að
gera, og hverjir væru líklegir til
að hrinda því í framkvæmd, eða
hve lengi ætla menn aðgerðar-
laust að horfa á Róm brenna?
Baldur Óskarsson.
4