Samvinnan - 01.08.1969, Qupperneq 5
Það hefur verið mjög í tízku
undanfarna mánuði, sérstaklega
eftir forsetakosningarnar, að
gagnrýna stjórnmálaflokka og
stjóramálamenn fyrir að seilast
til of mikilla áhrifa í þjóðfélag-
inu. „Flokksræðið" hefur verið
skotspónn ungra manna í öllum
stjórnmálaflokkum og margra
þeirra, sem standa utan allra
flokka, en hafa bersýnilega mik-
inn áhuga á að komast til áhrifa
í stjóramálum.
í greinum þeim, sem Samvinn-
an birti í síðasta tölublaði sínu
um þetta efni, kom að mínum
dómi fátt nýtt fram. Eins og all-
ar umræður um þessi mál ein-
kenndust þær mjög af algerri
einstefnu og ýkjum úr hófi fram.
Læsilegust og málefnalegust
þótti mér grein Ólafs Jónssonar
og ég get tekið undir margt af
því, sem þar kom fram. Skrif
Hjalta Kristgeirssonar báru þess
glögg merki, að hann er ekki
fremur en ýmsir aðrir skoðana-
bræður hans í tengslum við hinn
„íslenzka veruleika". Hjalti sér
íslenzkt þjóðfélag í svo furðulegu
ljósi, að í rauninni er hann ekki
viðræðuhæfur um þessi mál —
né önnur. Það er vissulega tími
til kominn að ræða „flokksræð-
ið“ frá dálítið öðrum sjónarhóli
en yfirleitt hefur verið gert fram
til þessa og reyna þar með að
fá meira jafnvægi í þá mynd,
sem við okkur blasir.
Öllum er ljóst, að stjórnmála-
flokkar og stjórnmálamenn hafa
óhófleg völd í okkar þjóðfélagi
— en er það allt þeirra sök?
Það er t. d. alkunna, að þing-
menn og frambjóðendur í kjör-
dæmum úti um land gætu haft
fullt starf af því einu að annast
fyrirgreiðslu fyrir kjósendur
sína. Að nokkru leyti er ástæðan
sú, að svo margar þjónustustofn-
anir eru í Reykjavík, að fólkinu
úti á landsbyggðinni er í raun-
inni nauðsyn að hafa fulltrúa í
Reykjavík, sem getur annazt ýmis
mál, sem úrlausnar krefjast. En
veigamikil ástæða er líka sú, að
í áratugi hefur þetta fólk vanizt
þeim hugsunarhætti, að þing-
maðurinn sé betur til þess fall-
inn að slá víxil í banka en sá
sem á láninu þarf að halda. í
þessari fyrirgreiðslustarfsemi
þingmannanna birtist sú trú
fólks, að einungis þeir, sem hafi
stjórnmálalega aðstöðu, geti
komið málum fram. Er þessi of-
urtrú á stjórnmálamennina á
rökum reist? Ég dreg það í efa.
Mér þykir trúlegt, að banka-
stjórinn sé orðinn heldur þreytt-
ur á því að fá stöðugar upp-
hringingar frá þingmanninum
og að áhrifaríkara sé að maður-
inn, sem á láninu þarf að halda,
sýni sig sjálfur. En með þeirri
venju, sem skapazt hefur í þess-
um efnum, er verið að troða upp
á þingmanninn meiri áhrifum en
hann raunverulega hefur.
Það er oft sagt, að lýðræði í
stjórnmálaflokkunum sé of lítið
BlllatalaEtilalaliElalalalalglB
Í ÖLLUM
KAUPFÉLAGSBÚÐUM
*
BBIilalaBIaliIalalalalglalilalg
FRYSTIKISTUR
250
350
450 LÍTRA
NÚ ER
RÉTTI
TÍMINN
AÐ PANTA
FYRIR
HAUSTIÐ
FRYSTISKÁPAR
275 LÍTRA
SÍFELLT
VINSÆLLI
MEÐ
HVERJU
ÁRINU
jO/ut££a^élc^t A /
Raftækiadeild - Hafnarstræti 23 - Sími 18395
5