Samvinnan - 01.08.1969, Page 16

Samvinnan - 01.08.1969, Page 16
Þessi mynd, sem tekin var nálœgt Genf drungalegan dag árið 1925, sýnir fund tveggfa frá- bœrra vísindamanna, Marie Curie og Alberts Einsteins, meðan þing Þjóðabandalagsins stóð yfir. Árið 1922 kaus framkvœmdaráð Þjóðabandalagsins Marie Curie einróma meölim Samstarfs- nefndar menntamanna, þar sem hún starfaði af miklum áliuga að hagnýtingu vísindanna i þágu jriðar og mannúðar. Áriö 1921 fór Marie Curie til Bandarikjanna til að þakka þarlendum stjórnvöldum fyrir gramm af radium sem henni hafði verið sent að gjöf. Á myndinni situr hún í stól umkringd blaða- mönnum og myndatökumönnum, hlédrœg og feimin einsog lítil stúlka. sinni og ótta. Við sama tækifæri var hún gerð heiðursdoktor við Columbia-háskóla í New York, en samtals voru henni veittar 20 heiðursdoktorsnafnbætur um ævina við háskóla í Bandaríkjunum, Bretlandi, Pól- landi og Sviss. í september 1927, þegar Marie Curie stóð á sextugu og hafði fyrir skömmu gengið undir uppskurð til að stöðva blindu sem fór í vöxt, skrifaði hún systur sinni, Broníu: „Stundum bregzt kjarkurinn mér, og þá finnst mér að ég ætti að hætta að vinna og helga mig í staðinn garðyrkjustörfum. En mér halda þúsund bönd, og ég hef enga hugmynd um hvenær mér muni takast að koma annarri skipan á hlutina. Ég veit ekki heldur hvort ég gæti lifað án rannsókna- stofunnar, jafnvel þó ég skrifaði vísinda- rit.“ Marie Curie lézt hinn 4. júlí 1934 og var þá 67 ára gömul. Banameinið var blóðsjúk- dómur, sem lýsti sér þannig að beinmerg- urinn lamaðist, sennilega vegna geislunar af völdum hinna löngu tilrauna. Undir lok- in heimsótti hún ekki dætur sínar, Iréne eða Eve, eða aðra ættingja. Hún var alein með þeim verkefnum sem hún hafði helgað líf sitt frá æskuárum. Ári síðar var bókinni, sem Marie hafði lokið rétt fyrir dauða sinn, bætt við bóka- safn Radíumstofnunarinnar í Pierre-Curie- stræti. Það var þung bók. Á grárri kápunni var nafn höfundar: Madame Pierre Curie, prófessor við Sorbonne. Nóbelsverðlauna- hafi í eðlisfræði. Nóbelsverðlaunahafi í efnafræði. Titill ritsins var einfaldlega „Geislun". Eve dóttir hennar sagði um hana: „Hún var eilífur nemandi; hún fór um eigin ævi- braut einsog ókunnug kona. Hún var allt til enda heil, eðlileg og nálega óvitandi um furðuleg örlög sín. Hún kunni ekki að vera fræg.“ ♦

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.