Samvinnan - 01.08.1969, Blaðsíða 22

Samvinnan - 01.08.1969, Blaðsíða 22
nægilegur starfsgrundvöllur fyr- ir karlmenn, en kona þykir með því hafa fullan vinnudag. Búa karlmenn yfir svo miklu meiri starfsorku en konur? Án þess að vilja móðga karlmenn hef ég ekki orðið vör við það á vinnu- stöðum, og benda mætti á í þessu sambandi að karl og kona vinna sömu störf hlið við hlið í veit- ingamálum og á klæðskeraverk- stæðum. Annað dæmi má taka. Setjum svo, að barngóðan pilt langi til að leggja fyrir sig barnagæzlu og fara í Fóstruskólann. Starfs- heitið er ekki til í karlkyni — yrði sennilega fóstri — fremur en embættisheiti ráðherra er til í kvenkyni, og segir sína sögu. Þessi piltur yrði að vera vel brynjaður gegn þeim hleypidóm- um að hann væri að leggja stund á kvennanám. Ég lagði málið undir álit nokkurra karla og kvenna. Karlmönnunum þótti skrýtið, að „tápmikill strákur hefði áhuga á slíku“. Nokkrum nýtízkulegum konum þótti það eðlilegt og sjálfsagt og tvímæla- laust börnunum til góðs. Öðrum meira vanabundnum fannst þetta nú „eiginlega kvenmannsverk". Á einum starfsvettvangi kvenna hafa karlmenn haldið innreið sína og er mikill fengur að, þ. e. í hjúkrunarmálum. Aug- ljóst er, að í sérmenntaðri kvennastétt eru alltaf afföll á starfskröftum, vegna barnaupp- eldis og heimilishalds, og þá get- ur verið nauðsynlegt, eins og í tilvikum sem hjúkrun, að bæði kyn séu í starfsgreininni. Það er óneitanlega þjóðfélaginu í óhag, að sumar starfsgreinar séu yfir- fullar en aðrar hálftómar fyrir þá sök að kvenfólk hefur haft á þeim einkarétt. í ljósi þessa sjálf- sagða réttindamáls karla gerðist sá ánægjulegi atburður fyrir nokkrum árum, að stéttarfélagið breytti nafni sínu úr Félag ís- lenzkra hjúkrunarkvenna í Hjúkrunarfélag íslands. Nóg er af kvenfélögunum samt. Menntaskólanám kvenna Á æðra menntastigi, þar sem þó ríkir fullkomið jafnræði í námi og stúlkur ættu að vera farnar að öðlast örlítið meiri skilning og þekkingu á sínum málum, sýna þær ákveðnar til- hneigingar í námsvali, sem rekja má til þess að þær líta á sjálfar sig fyrst og fremst sem kven- menn með ákveðið sérhlutverk síðar meir í lífinu. Þótt margar séu auðvitað við nám með fast starfsmarkmið fyrir augum, eru piltarnir þó hlutfallslega fleiri, sem gera sér grein fyrir raun- verulegum tilgangi námsins, þ. e. að þess er vænzt af þeim að þeir fari í langskólanám og búi sig undir ákveðin þjóðfélagsstörf. Markmið ungs fólks á námsár- um þess hlýtur alltaf að vera tvíþætt: annars vegar að læra til einhverra starfa og hins vegar að eignast einhvern tíma konu eða mann og stofna bú. Á róm- antískum æskuárum átta stúlk- urnar sig oft ekki á því fyrr en um seinan, að síðarnefnda mark- miðið kann að kaffæra hið fyrra, og hve mikilvægt þeim er sem manneskjum að reyna að sporna gegn því. Piltarnir ráða miklu betur við þetta tvíþætta mark- mið. Vegna sérstöðu þeirra í þjóðfélaginu þarf hjónaband ekki að eyðileggja fyrir þeim námið. Það er talið svo miklu sjálfsagðara að þeir stundi nám. Reyndar þarf það ekki að henda stúlkurnar heldur, ef þær eru nægilega marksæknar og gera sömu kröfur til eiginmannsins og hann til þeirra. Munurinn á námsvali pilta og stúlkna á menntaskólastigi kem- ur fram í því, að meirihluti stúlkna sækir í máladeild, en meirihluti pilta í stærðfræði- eða náttúrufræðideild. Ber þá að álykta að tungumálanám liggi eitthvað betur fyrir stúlkum en raunvísinda- eða stærðfræðinám? Samkvæmt þeirri kenningu, sem við aðhyllumst nú til dags, að kynin standi jafnt að vígi í and- legu atgjörvi frá náttúrunnar hendi, er þessa tilhneigingu kvennanna ekki að rekja til þess. Að sjálfsögðu hefur hver ein- staklingur sína sérhæfileika, sem falla betur að einni námsbraut en annarri. Þetta á jafnt við um pilta og stúlkur og kemur kyn- ferði þeirra ekki við, að öðru leyti en því, að þeim hefur verið beint inn á ákveðnar brautir sem kynverum í uppeldinu. Nær- tækari skýring er í fyrsta lagi sú, að tungumálakunnátta þykir henta konum einkar vel. Ég geri mér ekki vel ljóst hvers vegna það á að vera svo, því það er þægilegt fyrir alla, karla sem konur, að kunna tungumál. í öðru lagi, og það er mergurinn málsins, eru framamöguleikar í tækniþjóðfélagi miklu augljósari að loknu stærðfræði- eða raun- vísindanámi en með málanám að baki. Þessu gera piltarnir, eða þeir sem hafa áhrif á þá, sér að einhverju leyti grein fyrir. Aftur á móti hugsa stúlkurnar oft ekki lengra en til stúdentsprófs og eru óráðnar í hvað þær gera að því loknu. Það getur alltaf eitthvað gerzt! Þarna leika þær kven- hlutverk sitt en ekki framar hlut- verk þjóðfélagsþegnsins, sem æskilegt væri að legði þjóðfélag- inu eitthvert lið með menntun sinni, fyrir utan það að stýra heimili og eignast börn. Hver getur láð þeim þennan hugsun- arhátt, þegar meira að segja for- ráðamenn benda þeim á sérstöðu í námi og þjóðfélagi? í fylgiskjali Vlb í frumvarpi til laga um menntaskóla, sem lagt var fyrir Alþingi í vor, er fjallað um þá kosti, sem því fylgi að gera Kvennaskólann í Reykja- vík að menntaskóla, og er reynd- ar sérálit tveggja nefndarmanna í menntaskólanefndinni, eftir að meirihluti hafði skilað áliti um ókosti þess. Þar segir m. a. „Ef Kvennaskólinn í Reykjavík fengi réttindi til að brautskrá stúdenta, myndi námsefni hans, þegar fram liðu stundir, vafalaust verða þannig, að auk þess að veita þá menntun, sem krafizt er til inn- göngu í háskóla hér og erlendis, yrði áherzla lögð á námsgreinar, sem sérstaklega væru við hæfi kvenna . . .“ Hvaða námsgreinar í menntaskóla ættu að vera sér- staklega við hæfi kvenna og hvers vegna einkum við hæfi kvenna? Mér dettur ekki annað í hug en barnasálarfræði — af vanahugsun — og þá af því að konan annast barnsburðinn um- fram karlmanninn og hefur fram til þessa sinnt barninu meira fyrstu árin. Á það má benda að karlmenn hafa ekki síður en kon- ur lagt stund á rannsóknir í barnasálarfræði. Frá mínum bæj- ardyrum séð er konunni stórlega misboðið þegar henni er boðið upp á að draga hana út úr venju- legu þjóðfélagsumhverfi, þar sem karlar og konur vinna saman, og að setja hana í nokkurs konar hjónabandsgeymslu, við að stunda sérstaklega „kvennafög" í æðra námi. í eftirmála sömu greinargerð- ar stendur ennfremur: „Einkum verður að teljast mikilvægt að til sé stúdentaskóli á landi hér, sem lokar ekki augunum algjör- lega fyrir þeirri staðreynd, að flestar stúlkur, er stúdentsprófi ljúka, eiga fyrir sér að verða mæður og húsmæður. Verði Kvennaskólinn í Reykjavík efld- ur og gerður að stúdentaskóla, er að nokkru ráðin bót á stórri vanrækslusynd menntaskólanna, sem fyrir eru, að því er varðar hinar sérstöku menntunarþarfir kvenna“. Hvers eiga piltarnir að gjalda að ekki er minnzt á menntunarþarfir þeirra í sam- bandi við fjölskyldulíf? Ef stúlk- urnar eiga að fá að sérmenntast í menntaskólum sem mæður, eiga þeir fullan rétt á að sérmenntast 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.