Samvinnan - 01.08.1969, Side 45
Bíllinn, sem börn Isadoru
og barnfóstra drukknuðu í,
dreginn upp úr Signu.
Isadora með börnum sínum,
Deirdre (7 ára)
og Patrick (3 ára)
í París 1913.
Isadora og Ésenín, sem hún
giftist í mai 1922.
Ættleiddi yfir 50 börn
Isadora Duncan eyddi ekki sérlega miklu
fé í sjálfa sig. í Þýzkalandi kom hún á fót
skóla fyrir 20 fátækar stúlkur sem áttu að
hljóta uppfræðslu samkvæmt kenningum
hennar um danslist og líkamsrækt. Hún
vildi veita þeim betra og auðugra líf. Seinna
stofnaði hún fleiri slíka skóla, meðal ann-
ars í Moskvu og París. Samtals ættleiddi
hún yfir 50 börn, sem hún hafði með sér á
ferðalögum sínum um heiminn — þegar
foreldrarnir féllust á það. Þegar hinar fyrstu
af þessum stúlkum voru orðnar nægilega
leiknar, mynduðu þær dansflokk, sem varð
kunnur undir heitinu „The Isadorables"
og dansaði í mörgum löndum Evrópu auk-
þess sem hann ferðaðist um Bandaríkin.
Þrjú hamingjurík ár — og harmleikur
Árið 1910, einmitt þegar hún stóð á há-
tindi frægðar sinnar, hitti hún Paris Singer,
erfingja hinna miklu saumavéla-auðæfa.
Hann var kvæntur og fimm barna faðir.
Með honum eignaðist hún soninn Patrick.
Með Singer, tveimur börnum sínum og
nemendunum átti hún þrjú hamingjurík ár
á Riviera-ströndinni. Hún hafði nú fengið
allt sem hún gat óskað sér, ást, börn og
frægð.
En þá kom reiðarslagið. Hinn 19. apríl
1913 áttu Deirdre, sem nú var orðin 7 ára
gömul, og Patriek, sem var 3 ára, að aka í
bíl með barnfóstrunni frá París til Versala.
Á beygju hjá brú einni yfir Signu drap
bíllinn alltíeinu á sér. Bílstjórinn steig út
úr bílnum til að snúa hann í gang aftur.
En hann hafði gleymt að setja handhemil-
inn á, þannig að stjórnlaus bíllinn þeyttist
yfir háan vegg og steyptist í ána, sem var
12 metra djúp á þessum stað. Bæði börnin
og barnfóstran drukknuðu.
Harmurinn og söknuðurinn eftir börnin
vörpuðu Isadoru útí æðiskennt flökkulíf,
og hún ferðaðist um þvera og endilanga
Evrópu og Suður-Ameríku.
Hjónabandsógæfa
Isadora fór aftur til Moskvu þar sem
hún kynntist ljóðskáldinu Sergei Ésenín,
einu vinsælasta skáldi byltingarkynslóðar-
innar. Hún vildi að hann kæmi með sér í
dansferðalag um Ameríku, en hann fékk
ekki vegabréfsáritun þangað nema hún
giftist honum. Þau gengu í hjónaband árið
1922. Hún var 44 ára og giftist manni sem
var 17 árum yngri. Þau áttu saman funheita
ástarvímu sem lauk með hörmulegum hætti.
Ésenín var ákaflega eigingjarn maður og
sólginn í lífsnautnir, konur og áfengi.
Heima í Rússlandi hafði honum verið hamp-
að og hossað, en þegar hann var orðinn
eiginmaður Isadoru, varð hann að láta sér
lynda, að hún fengi alla aðdáunina. Hann
sakaði hana um smáborgaraskap og skort á
lífsskoðun, en hún ásakaði hann að sínu
leyti fyrir drykkjuskap og hórlifnað.
Þau hlutu fyrr eða síðar að slíta sam-
vistum, og það varð líka með eins sögu-
legum hætti og hugsazt gat. Árið 1923
hengdi Ésenín sig í sama herbergi á Angle-
terre-hótelinu í Leníngrad og þau höfðu
haft til umráða hveitibrauðsdagana. En fyrst
hafði hann skorið sig í úlnliðinn og skrifað
hinzta ljóð sitt með eigin blóði: „Vertu sæl,
vina mín, vertu sæl. Þú býrð enn í brjósti
mér, ástin mín.“
Hún dó ekki fyrr en hún dó
Isadora var enn ekki nema 45 ára gömul,
en var farin að bera merki hins órólega
lífs sem hún hafði lifað í nærfellt 30 ár.
Hárið, sem eitt sinn hafði verið logarautt,
var farið að grána; hún lét lita það og það
hékk í fjólubláum strimlum yfir herðar
henni. Fagurt andlitið var orðið rist sorgar-
rúnum. Hún hélt áfram að dansa, en áhug-
inn á list hennar var farinn að dvína. Það
var því ekki að undra þó hún tæki það sem
síðustu ástargjöf lífsins til sín, þegar hún
kynntist hinum unga „gríska guði“.
Isadora Duncan hefur verið nefnd harm-
söguleg persóna. Vanessa Redgrave, sem
fer með hlutverk hennar í kvikmyndinni,
er þar á öðru máli: „Mér fyndist ekki líf
mitt hafa verið harmsögulegt, ef ég fengi
að lifa einsog hún. Nokkur hörmuleg atvik
komu fyrir hana, en samt finnst mér hún
ekki hafa verið harmsöguleg. Hún lifði í
réttri merkingu orðsins, hún dó ekki fyrr
en hún dó, ef þér skiljið hvað ég á við.“
Hvað sem öðru líður er eitt víst: Isadora
var brautryðjandi. Hana dreymdi fagran
draum, og hún gerði hann að veruleik. Hún
lifði lífi sínu heil og frjáls og olli byltingu
í hugsunarhætti og lifnaðarháttum önd-
verðrar 20. aldar. Hugsjónir hennar, hug-
myndir og hæfileikar voru 40 árum á undan
tímanum. En hún breytti heiminum fyrir
konur okkar tíma. 4
45