Samvinnan - 01.08.1969, Síða 48

Samvinnan - 01.08.1969, Síða 48
Fyrir sovézkum ráðamönnum vakir að komast með áhrif sín og hernaðaritök að baki Kína, ef svo má segja. Bandaríkja- stjórn er hinsvegar að stíga fyrstu, var- færnislegu skrefin til að koma sér úr þeirri sjálfheldu sem fastheldni við úrelt mat á aðstæðum hefur sett hana í. Til langframa er það óþolandi aðstaða fyrir stórveldi eins og Bandaríkin að geta á engan hátt notfært sér í skiptum við Sovétríkin tækifærin sem bjóðast í refskák heimsveldanna eftir vin- slit stjórnanna í Moskvu og Peking. Hér er að sjálfsögðu ekki um það að ræða að Bandaríkin snúist eindregið á sveif með öðru hvoru kommúnistiska stórveldinu, geri við það bandalag gegn hinu. Hér er um að ræða hina flóknu list stórveldajafnvægisins í marghliða baráttu um áhrif og aðstöðu, svipaða þeirri sem átti sér stað í Evrópu á dögum Bismareks og Disraelis. Ljósastan vott um að það er mótvægis- stefna af þessu tagi sem fyrir Nixon vakir, ber sú ákvörðun hans að koma við í Rúm- eníu á hnattferð sinni. Með því slær hann að minnsta kosti þrjár flugur í einu höggi. f fyrsta lagi styrkir hann aðstöðu Rúmena í viðleitni þeirra til að bjóða byrgin yfir- drottnunarstefnu sovézku nýstalínistanna. Síðan innrásin í Tékkóslóvakíu var gerð, hefur stjórn Rúmeníu þrætt af mikilli leikni þann gullna meðalveg að ögra sovétmönn- um í engu en vísa jafnframt á bug öllum kröfum þeirra sem skert hefðu sjálfsfor- ræði Rúmena. Með afstöðu sinni í fyrra- sumar gagnvart Tékkóslóvakíu lét stiórn Johnsons í Washington það ótvírætt í ljós. að hún kærði sig kollótta hvað sovétmenn aðhefðust þar í landi. Enginn vafi er á að þessi framkoma Bandaríkjastjórnar styrkti verulega málstað innrásarinnar í Kreml. þegar úrslitaákvörðun var tekin þar. en varð að sama skapi Bandaríkjunum álits- hnekkir um alla Evrópu. Nixon ætlar ekki að gera sömu skyssuna gagnvart Rúmeníu. f öðru lagi leggst Nixon á sömu sveif og Kínastjórn. þegar hann styður við bakið á Rúmenum í taugastriðinu sem sovétstjórnin rekur gegn þeim. Ein af höfuðsyndum Rúm- ena í augum sovétmanna er sú að beir neita þverlega að taka þátt í áróðursher- ferðinni geen Kína, reyndu að miðla mál- um milli Kínverja og sovétmanna meðan nokkur tök voru á og hafa haldið góðri sam- búð við Kína og eðlilegum samskintum við Kommúnistaflokk Kína allt til bessa dags. Þegar mest hætta bótti á að Bresnéffkenn- ingin. um rétt og revndar skyldu Sovétríki- anna til að tukta til hvert bað sósíalistiskt ríki sem ekki vildi lúta í hvívetna fonsið hverra beirra undirmálsmanna, sem í bað og bað skirtið kunna að krafsa sig upn á valdastólana í Kreml. yrði látin koma til framkvæmda gagnvart Rúmenum á sama hátt og Tékkóslóvökum, gaf Kínastiórn út yfirlýsingu sem ekki varð skilin öðru vís' en sem aðvörun til sovétstjórnarinnar um að láta Rúmena í friði. Sá kvittur kom unn í Austur-Evrópu í vor. að Kínverjar hefðu efnt til átakanna við Ussuri sökum bess að um þær mundir hefðu horfur verið sér.stak- lega tvísýnar í sambúð Rúmeníu og Sovét- ríkianna. Engin leið er að segia um hvort nokkuð er hæft í kviksögum sem þessum. en að þær skuli þykja trúlegar sýnir mat manna á samhenginu milli atburða á austur- og vesturmörkum sovézka yfirráðasvæðisins. í þriðja lagi kemst Nixon í Búkarest í beint samband við milligöngumann sem óhætt er að treysta að vill allt á sig leggja til að stuðla að bættri sambúð Bandaríkj- anna og Kína og nýtur sérstaks trausts og virðingar Kínverja. Slíkt getur verið ómet- anlegt, þegar um það er að ræða að koma á tengslum eftir langvinnar og illvígar deil- ur og alger slit á beinum samskiptum, eins og verið hafa síðan fundir sendiherra Banda- ríkjanna og Kína féllu niður eftir að menn- ingarbyltingin komst í algleyming í Kína. Meginatriðið í þessu öllu saman er tví- mælalaust vísbendingin sem það gefur um að í uppsiglingu er stórveldaþríhyrningur í stað hanaslags tveggja drottnunarvelda. Þar sem Rúmenía er hafa Bandaríkin og Kína fundið snertipunkt fyrir stefnur sínar, sameiginlega afstöðu gagnvart einum anga valdstefnu þriðja stórveldisins, Sovétríkj- anna. Ástæða er til að leggja áherzlu á, að hið nýja kerfi valdajafnvægis stórvelda er enn á byrjunarstigi og verður vafalaust lengi í mótun enn. Leifar gömlu tvískiptingar- innar munu reynast lífseigar. Forsenda fyrir að þríveldajafnvægið nái sér á strik er að stjórnmálasamband komist á milli Bandaríkjanna og Kína. Þar eru enn mörg ljón í vegi, hið stærsta heitir Taivan. Ekki þýðir að tala um eðlilegt stjórnmálasam- band milli ríkjanna, meðan bandarísk her- seta er á eynni, sem að alþjóðalögum er fylki í Kína. Hreyfing sú sem upp er komin í Bandaríkjunum fyrir að bæta sambúðina við Kína, hefur efst á stefnuskrá sinni að bandarísku herstöðvarnar á Taivan verði lagðar niður, og telur að við það væri mik- ið unnið. Einnig eru uppi meðal bandarískra á- hrifamanna hugmyndir um að Bandaríkin sleppi hendinni af Sjang Kaisék og Kín- verjar á Taivan og meginlandinu verði látnir jafna sín mál, að því tilskildu að það verði gert með samningum en ekki vopna- viðskiptum. Kínverjar hafa fyrir sitt leyti margoft látið í það skína, að þeir séu til viðtals við Kuomintang-yfirvöldin á Taivan jafnskjótt og bandarísk hernaðarítök á eynni séu úr sögunni og yfirráð stjórnar- innar í Peking yfir öllu kínversku landi viðurkennd. Það er svo í samræmi við annað á mynd- unarskeiði þríveldakerfisins, að á síðustu mánuðum hefur sovétstjórnin sýnt veruleg- an áhuga á að ná sambandi við yfirvöld á Taivan, einkum þó son og næstráðanda Sjang Kaiséks. Freistandi er að leiða getum að því, hver áhrif breytingin frá hólmgöngukerfi tveggja drottnunarvelda til jafnvægiskerfis þriggja stórvelda kann að hafa á aðstöðu annarra máttarminni ríkja. Slíkt verður ekki gert til neinnar hlítar enn sem komið er, til þess er breytingin of skammt á veg komin og hinar óskráðu leikreglur sem gera valda- kerfið virkt enn ómótaðar. Nokkur atriði liggja þó í hlutarins eðli frá öndverðu, og það helzt að þríveldakerfi er þegar á allt er litið stöðugra en tvívelda- kerfi. Þegar tvö reginveldi bera ægishjálm yfir alla aðra í alþjóðlegu samfélagi, er ætíð hætta á að jafnvægið raskist skyndi- lega með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Annað veldið kann að telja sig hafa náð hernaðaryfirburðum og því aðstöðu til að ganga nær hagsmunum hins en það vill sætta sig við, ókyrrð á öðru valdasvæðinu kann að freista til íhlutunar af hálfu hins keppinautsins í valdataflinu, og þannig mætti lengi telja. Skjót og afdrifarík rösk- un jafnvægis er mun ólíklegri, þegar þrjú veldi eru um hituna. Þá ríkir tilhneiging til að tvö taki höndum saman gegn hinu þriðja að því marki sem nægir til að af- stýra að það vaxi þeim báðum yfir höfuð. Aftur á móti verða samningar sem varða viðkvæmustu hernaðarhagsmuni, svo sem takmörkun vopnabúnaðar eða afvopnun, þeim mun vandasamari sem aðilar eru fleiri. Óhugsandi er að þríveldakerfi verði hald- ið lokuðu til langframa, jafnvel þótt öllum aðilum væri það kærast. Fjórða veldið og fimmta hljóta að geta rutt sér til rúms með tímanum, hvenær sem þau kunna að mynd- ast í heimshlutum eins og Vestur-Evrópu, Rómönsku Ameríku eða Afríku, svo nefnd séu jafnt þau svæði sem líklegust eru og ólíklegust til stórveldamyndunar í náinni framtíð. Svigrúm smærri ríkja er meira í þrívelda- kerfi en þegar tvö veldi drottna. Tvö veldi eiga tiltölulega auðvelt með að koma sér saman um að deila og drottna, verða ásátt um áhrifasvæði. Eftir að þriðja veldið kem- ur til sögunnar er slíkt miklu torveldara og reyndar ógerlegt til langframa, þar sem breytingar á valdahlutföllum innan kerfis- ins eru því örari sem aðilar eru fleiri, enda þótt einstök breyting geti trauðla orðið eins afdrifarík og í tvíveldakerfi, eins og lýst var að framan. Þróun þríveldakerfis fyrst í stað er mjög háð ríkjandi aðstæðum hvers stórveldis um sig, bæði heimafyrir og út á við. Áður var að því vikið, hversu stríðið í Vietnam hefur verið Bandaríkjunum til trafala að notfæra sér að nokkru ráði deilu Sovétríkjanna og Kína. Reynslan þar gerir Bandaríkin treg- ari en áður að grípa til hervalds út um allar jarðir til að skipa málum að sínum geðþótta. Á hinn bóginn hefur innrás Sov- étríkjanna í Tékkóslóvakíu styrkt aðstöðu Bandaríkjanna í Vestur-Evrópu, þar sem ítök þeirra höfðu farið stöðugt rénandi um nokkurra ára skeið. Eftir innrásina í land Tékka og Slóvaka, þjóða sem frá fornu fari hafa borið vinar- hug til stóra frænda í austri, eru Sovétríkin ámóta vinsæl í Austur-Evrópu og Banda- ríkin í Rómönsku Ameríku. Áhrifasvæðin valda báðum þessum stórveldum erfiðleik- um, sem allar horfur eru á að ágerist eftir því sem tímar líða. Kína stendur að því leyti betur að vígi, að það hefur ekkert áhrifasvæði að burðast með. Ljóst er að fyrir valdhöfum í Peking vakir að hasla sér völl á alþjóðavettvangi sem forusturíki og málsvari þjóðanna sem byggja vanþróuð lönd Asíu, Afríku og Rómönsku Ameríku. Hér er ekki rúm til að rekja ástand inn- anlands í stórveldunum þremur, enda helztu vandamálin sem öll eiga við að stríða nokk- uð kunn hverjum þeim sem fylgist með heimsfréttum. En ástæða er að leggja á það áherzlu, að framvinda innanlandsmála á- kvarðar að verulegu leyti utanríkisstefnuna, hjá stórveldum jafnvel enn frekar en öðrum ríkjum. 4 48

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.