Samvinnan - 01.08.1969, Síða 62
PAPPÍ RSVÖRUR
Eftirfarandi pappírsvörur höfum vér nú fyrirliggjandi
í mörgum stærðum og gerðum:
Stílabækur
Reikningsbækur
Glósubækur
Teikniblokkir
Skrifblokkir
Spíralblokklr
Spíralbækur
RúSustrikaðar blokkir
Rissblokkir
Vinnubækur og blöð
Teikniblaða-möppur
Blýanta
Strokleður
Yddara
Kúlupenna
Skólapenna
Vaxliti
og fleiri skólavörur.
Heildverzlunin
RÚSSNESKAR
DRÁTTARVÉLAR
Fullkomnustu,
sterkustu
og jafnframt
ódýrustu
dráttarvélarnar
sem nú eru á
markaðnum.
Fullkomin
varahluta-, viðgerða- og tækniþjónusta.
Fléiri og fleiri bændur kaupa nú
rússneskar dráttarvélar.
LeltiS upplýsinga og spyrjiS þá sem reynt hafa.
BJÖRN & HALLDOR H.F.
SlÐUMÚLA 9 — SIMI 36930.
Framhald af bls. 9.
En mér er þó nær að halda,
að þar ráði ekki illgirni, heldur
hitt, að menn vilja höggva stórt
til þess að ýta við, knýja fram
andsvör og umræður. Slíkur mál-
flutningur getur því verið rétt-
lætanlegur frá sjónarhóli þess,
sem vill fá umræður um þátt
stjórnmálaflokka í uppbyggingu
íslenzks þjóðfélags.
Kjarni umræðna um flokks-
ræði, eða flokksræði ekki, er sú
spurning, hvort hugsanaháttur í
íslenzkum stjórnmálum sé rétt-
ur eða ekki. Hvort tveggja hjá
hinum almenna kjósanda jafnt
sem leiðtogum þjóðarinnar, og £
framhaldi af því, er það ekki
kerfið sjálft sem er rangt?
Ég er þeirrar skoðunar, að nú-
verandi flokkakerfi sé úrelt, og
það standi nauðsynlegri hugar-
farsbreytingu fyrir þrifum. Ég er
sammála þeim greinarhöfundum,
sem telja að nauðsyn sé, að upp
rísi öflugur jafnaðarmannaflokk-
ur studdur af verkalýðshreyfing-
unni, en ég er jafnframt þeirrar
skoðunar, að Alþýðuflokkurinn
hljóti og eigi að vera kjarni þess
flokks.
Ég tel, að stuðla beri að dreif-
ingu valdsins og þar með auknu
lýðræði og meiri þátttöku fjöld-
ans í allri umsýslan þjóðlífsins.
Þetta ásamt fleiri atriðum, sem
of langt mál yrði upp að telja,
tel ég nauðsynlega forsendu
þeirrar hugarfarsbreytingar, sem
er nauðsynleg til að unnt verði
að brjótast út úr hinu títtnefnda
kerfi eða flokksræði eins og það
hefur verið nefnt.
RITZ
saltkex
léttog
Ijúffengt
Fæst í
kaupfélaginu
62