Samvinnan - 01.06.1971, Qupperneq 22

Samvinnan - 01.06.1971, Qupperneq 22
mesta basl að fá kennara und- anfarin ár. í 6 hreppum er kennt í félagsheimilum; í ein- um staðnum, Hofshreppi, er það reyndar gamalt og hrörlegt þinghús, en Hólahreppur, Hofshreppur og Viðvíkursveit eru nú með áform um að reisa sameiginlegan barnaskóla, en þessir hreppar liggja hver að öðrum. Það er viða fárazt mikið yfir félagsheimilabyggingum í sveitum og talað um þau eins og einhver lastabæli, sem jafn- vel sé hættulegt að hafa ná- lægt börnum og unglingum. Talað um, að einu framkvæmd- irnar, sem eitthvað gangi með i sveitunum, sé að koma upp félagsheimilum, og síðan sé keppzt við að halda þar böll, og reyni allir að draga sem mest til sín. En hér í Skaga- firði er hvert einasta þeirra notað fyrir skóla. Við fáum leyfi til að byggja þessi félags- heimili hér í sýslunni. Eru þau lítil, að einu undanskildu; og þeir sem að byggingunum standa greiða 60% af stofn- kostnaði, rikið 40%. Venjulega eru það hreppsfélögin, kvenfé- lög og ungmennafélög sem eiga þessi hús. Svo notum við þau fyrir skóla, því að það er tor- sótt að fá að byggja skóla í sveit, einkum síðustu árin, þegar öll æðstu völd í mennta- málum eru i höndum þeirra sem ekki eru sérstaklega hlynntir fámennum sveitum landsins, þar sem unnin eru framleiðslustörf, sem ekki þykja nú sérlega merkileg. Auðvitað eru stundum sam- komur í þessum félagsheimil- um, erfisdrykkjur, samsæti, leiksýningar, samsöngur og fundahöld. En húsin eru furðu hentug til kennslu, hlýleg og heimilisleg, og ég held að bæði börnum og fullorðnum þyki vænt um sitt sameiginlega hús. í Holtshreppi í Fljótum er kennt í félagsheimilinu að Ketilási. Þar hefur verið komið upp heimavist, því Fljótin eru snjóþung sveit, og keyrslufyrir- komulag hentar ekki vel þar. í Staðarh' eppi er lítið félags- heimili, Melsgil. Það var gam- alt samkomuhús eða þinghús og var lagað mikið til fyrir nokkrum árum. Sömu sögu er að segja í Akrahreppi; þar var gamla þinghúsið, Héðinsminni, endurbætt fyrir nokkru. í Mið- garði í Varmahlið er kominn ofurlítill vísir að skólahverfi. Þar er heimavist fyrir allmarga nemendur í félagsheimilinu og íbúðir fyrir kennara og starfs- lið í húsum þarna í hverfinu. Þarna er barnaskóli fyrir Félagsheiviilið í Varmahlíð í Skagafirði, sem jafnframt er notað fyrir heima- vistarbamaskóla. Heimavistarskólinn að Steinsstaðalaug í Lýtingsstaðahreppi. Reykjaskóli í Hrútafirði. Seyluhrepp og Skarðshrepp, og þar fá unglingar úr Akra- hreppi, Seyluhreppi og Staðar- hreppi kennslu 2 síðustu vetur af skyldunámi. Það eru sem sagt 4 hreppar, sem þarna standa saman að einum skóla. Aðstaða til kennslu er sæmileg og mötuneyti fyrir nemendur og starfsfólk, en þetta er vitan- lega engin framtíðarlausn. Þannig er i aðalatriðum um að litast í skólamálum okkar hér í sýslunni, og er síður en svo glæsilegt, fátt um skóla og stuttur kennslutími. Hér í Akrahreppi fengu börnin 53 kennsludaga s.l. vetur, nema þau sem luku burtfararprófi; þau fengu meiri tilsögn frá áramótum. Skólinn í Varmahlíð Það er útilokað, að svona stuttur kennslutími geti komið að sama gagni og fullkomin skólaganga í kaupstöðum og annarsstaðar, þar sem nem- endur sækja skóla hvern virk- an dag frá því í september þangað til í maí. Þessi börn venjast þá heldur ekki við að sitja að staðaldri á skólabekk og bregður því við þegar þau koma í skóla, þar sem kraf- izt er samfelldrar, látlausrar vinnu. Þá kunna þau ekki að beita kröftunum. Margir af kennurunum við skólana hér hafa ekki kennaramenntun, og það hlýtur að hafa sitt að segja, enda þótt ágætir fræð- arar geti verið í hópi hinna réttindalausu kennara. Nú er okkur sagt að ekki dugi neitt minna en háskólapróf í kennslufræðum; það sé til skammar að bjóða börnunum nokkuð annað en það bezta og fullkomnasta. Það er auðséð, hvað langt er frá þvi að börnum og ungling- um í Skagafjarðarsýslu sé veitt Gagnfrœðaskólinn á Sauðárkróki. 22
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.