Samvinnan - 01.06.1971, Blaðsíða 63
takendum (frá 1 til 113; með-
altal 39) í þeim hluta umræðn-
anna, sem birtur er. Þetta mun
vera vegna stærðar hópsins,
eins og bent er á.
Nokkur atriði gríp ég á lofti
og útlegg eftir mínu höfði:
Árið 2000 verðum við nær þvi
markmiði, að frelsi einstakl-
ingsins sé ekki i beinu hlutfalli
við peningabuddu hans. Fólk
fær haglaun (50% af vinnu-
launum) fyrir að vinna ekki.
„Minnihlutarnir", konur og
nemendur (frá 7 til 30 ára),
hafa náð pólitískum völdum til
jafns við karlmenn yfir 30.
Framf arasinnuðu innfly tj enda-
lögin frá 1975, sem urðu til að
auka fjölda landsmanna uppí
500.000 og auka mátt þjóðar-
innar í milliríkj asamningum á
tvennan hátt, eru talin einn
merkasti viðburður aldarinnar
sem leið. Stefnt er að því, að
fjöldi landsmanna verði 1
milljón fyrir 2025. Tvöfaldur
ríkisborgararéttur er viður-
kenndur. Deilt er um, hvort
gera eigi hrein-íslenzku eða
talmál að ríkismáli.
Upplýsingamálaráðuneytið
færir enn út starfsemi sína.
Helztu verkefni þess: Sýna
fram á, að enn séu a. m. k. tvær
stéttir í landinu, en hægt sé
að breyta því, ef menn vilji.
Sýna fram á að trygg undir-
stöðulaun séu greidd, en það
megi bara ekki eyða þeim í að
kaupa heimilisrafreikni, þótt
nágranninn eigi einn. Ýta und-
ir gagnrýnandi umræður um
land og þjóð, svo allir séu
ánægðir eftir að þeir hafi feng-
ið sína skoðun á prent, og kom-
ast þar með hjá að framkvæma
meira en þægilegt er.....
Búið er að reisa plasthimin
yfir Reykjavík fyrir alls 450.000
milljónir króna (25.000 á fer-
metra) og fella gengið um
100% í staðinn.
Lokið er við að virkja allar
ár, svo þær skemmi ekki landið
(!); ennfremur að bræða giært
plast yfir allar strendur lands-
ins vegna ágangs sjávarins.
Talað er um að „reisa“ osta-
kúpu yfir landið til verndar
gegn veðri ....
Um umhverfishönnun vil ég
gera nokkrar athugasemdir og
bæta nokkru við:
Vandamálið við að koma 10
milljónum manna fyrir í borg
er fyrst og fremst félagslegs
eðlis og þá fjárhagslegs eðlis.
Tæknilegu hliðina má leysa án
sérstakra erfiðleika. Bifreiöin
verður orðin úrelt i núverandi
mynd og Aðalskipulag Reykja-
víkur og margra annarra borga
því tálmi frekar en úrlausn.
Enn sem komið er telja fé-
lagsfræðingar ekki heppilegt
fyrir einstaklinga þjóðfélagsins
að skipa þeim niður eftir aldri
í sérstök hús eða borgir, enda
þótt mikið hafi verið gert af
slíku, t. d. í Bandaríkjunum.
Það verður lúxus að byggja
úr ekta trjáviði árið 2000. Hins-
vegar munu gerviefni taka við
af öðrum byggingarefnum að
miklu leyti fyrir það herrans
ár. Færanleg gerviefnahús
(íbúðareiningar), sem hengd
eru á lyftuturna, eru sennilega
ekki langt undan (sjá Tókíó).
Farið hefur fram skoðana-
könnun á vegum Dr. med. Otto
Haseloff, sem er prófessor í
sálfræði við Kennaraháskóla
Berlínar. Hún er í formi spurn-
ingalista, og getur hver og einn
athugað hvort hann er bjart-
sýnn eða svartsýnn á framtíð-
ina hvað snertir umhverfis-
hönnun og fleira með því að
svara honum og bera svo sam-
an við meðaltal útkomanna.
Þátttakendur voru beðnir að
athuga, hverjar af eftirfarandi
fullyrðingum væru orðnar
veruleiki 1987, með því að gefa
hverri spurningu eina af fjór-
um hlutfallseinkunnum.
í mesta u. þ. b. 30%
lagi 5% fremur
nærri ósennilegt
ómögulegt
1. Notkun gerviefna hefur
orsakað byltingu í húsbygging-
um.
2. Færibönd og stóllyftur eru
þýðingarmikil umferðartæki í
stórborgum.
3. Meirihluti fullorðinna hef-
ur þegar aflað sér menntunar í
tveim atvinnugreinum, og
stunda báðar jöfnum höndum.
4. Áhugi á góðri heilsu er
svo mikill, að varla nokkur
reykir eða drekkur lengur.
5. Löggjafinn hefur sett ný
lög fyrir jarðeignir, er tryggir
betri nýtingu þeirra fyrir al-
þýðuheill.
6. Laun þjónustu- og iðn-
verkamanna eru orðin tvöfalt
mjög nærri
sennilegt öruggt
hærri en 1967.
7. Ónæði af hávaða og and-
rúmsloftseitrun umferðarinnar
er að mestu leyti horfið, þar
sem flest ökutæki ganga fyrir
rafvélum.
8. 32-stunda vinnuvikan er
orðin algeng.
9. í mörgum stórborgum eru
stórhýsi fyrir 6—8000 manns,
með íbúðum án eldhúsa, en í
stað þess veitingahúsamiðstöð
innan hússins.
10. Með auglýsingaherferðum
Þeir, sem í dieifbýlinu búo, geta ekki skroppið •milli staða í strætis-
vagni. þess vegna verða þeir að eiga eða hofa til afnota farartæki, |
sem þeir geta treyst á íslenzkum vegum og í íslenzkri veðráttu.
Farartæki, sem getur fullnægt kröfum þeirra og þörfum.
AUir þeir, sem þurfa traustan, aflmikinn og þægilegan bíl, ættu að
athuga. hvort það sé ekki Land' Rover, se m uppfyllir kröfur þeirra
Líkindi að rætist
u. þ. b. 60% a. m. k. 90%
63