Samvinnan - 01.06.1971, Blaðsíða 60
HEIMIUS&
E3
a
Steinþórsdóttir
Bryndís
>3
’S SUIWI3H
Eftirfarandi uppskriftir voru kenndar á sýnikennslunámskeiði, sem
haldið var á vegum Náttúrulækningafélags Reykjavíkur s.l. haust og
hefur formaður félagsins frú Anna Matthíasdóttir góðfúslega gefið
leyfi til að birta þær hér í blaðinu.
Kruska (fyrir tvo).
1 msk byggmjöl
1 msk heilhveiti
1 msk rúgmjöl
1 msk kurlaðir eða skornir hafrar
1 msk hveitihýði
3 msk steinarúsínur
2 bollar vatn
Allt lagt í bleyti yfir nótt og síðan soðið í 3—5 mín. Borið fram með
mjólk og ávöxtum ef vill.
Mólfnógrautur (fyrir 2)
3 brytjaðar gráfikjur
1— 2 msk rúsinur
1 msk hörfrœ
Lagt í bleyti í 4 dl af heitu vatni, klútur er breiddur yfir skálina og
látið standa yfir nótt. Hitað að suðu, 1—2 msk af byggmjöli eða heil-
hveiti hrært saman við og soðið í 3—5 min. Borinn fram með mjólk.
Eftfrfarandi uppskriftir eru ætlaðar handa 4—5 manns.
Bygggrjónagrautur meS ávöxtum
l vatn
1 bolli bygggrjón
1 bolli rúsinur
Vt bolli hveitihýði
V2 bolli saft
2 smáttskorin epli
1 msk hrásykur eða púðursykur
safi úr hálfri sítrónu.
Bygggrjónin eru lögð í bleyti 1—2 sólarhringa. Soðið í um 40 mín.
Rúsínurnar eru soðnar með síðustu 5 mín. Þá er eplum, hveitihýði og
saft blandað saman við og soðið í 5 mín. Bragðbætt með sykri og
sítrónusafa.
Grænkálssúpa
IVi l grœnmetissoð
1 blaðlaukur (púrra)
40 g haframjöl
2— 3 blöð grœnkál
1—2 gulrœtur
% seljurót
1— 2 kartöflur
1 msk smjör eða smjörlíki
frugolajurtakraftur eða annar jurtakraftur.
Grænmetið er rifið eða skorið smátt (að undanskildu grænkálinu)
Látið 1 sjóðandi grænmetissoð eða vatn, og þegar suðan kemur upp,
er haframjölinu blandað saman við og súpan soðin í 5 mín. Að síð-
ustu er smátt skornu grænkálinu, smjörlíkinu og grænmetiskrafti
bætt 1 og suðan látin koma upp.
Grænmetissúpa
IVí l vatn
2— 3 kartöflur
2 gulrœtur
2 laukar
100 g hvitkál
1 msk matarolía
jurtakraftur
Hvítkálið er skorið í ræmur, laukurinn í sneiðar en kartöflurnar og
gulræturnar rifnar með grófu rifjárni. Matarolían er hituð og græn-
metið látið krauma þar til fer að sjatna í pottinum. Þá er vatni eða
grænmetissoði hellt yfir og soðið í um 15 mín. Súpan er bragðbætt með
jurtakrafti og smátt klipptri steinselju.
Grænmetisbuff með osti
100—200 g sterkur ostur
3 kartöflur
5 gulrœtur
2 laukar
% hvítkálshöfuð (meðalstórt)
5 grœnkálsblöð
1 bolli grcenar baunir
IVí bolli mulið haframjöl
1 msk hveitihýði (hveitiklíð)
2 msk kartöflumjöl
2 egg
1 bolli heilhveitibrauðmylsna
1 msk jurtakraftur (vitamon)
1 tsk allrahanda
Miðað er við meðalstærð af grænmeti. í buffin er gott að nýta soðna
grænmetisafganga.
Snöggsjóðið grænmetið, saxið hvítkál og grænkál, rífið laukinn og
ostinn en merjið kartöflur og gulrætur. Blandið vitamon eða öðrum
jurtakrafti saman við eggin, mjölið og mylsnuna og hrærið síðan öllu
saman. Mótið deigið í lítil buff. Brúnið 1—2 stóra lauka í matarolíu,
setjið eina msk af vatni á pönnuna og látið suðuna koma upp. Takið
laukinn af pönnunni og brúnið buffin í matarolíu. Látið laukinn yfir
buffið og berið það fram með heitum kartöflum og grænmetisjafningi
eða kartöflusalati.
Fylltir tómatar með kartöflusalati
6 smátt skornar kartöflur
2 harðsoðin egg
1 laukur
4 msk oliusósa (mayonnesse).
Saxið egg og lauk. Kryddið olíusósuna og blandið síðan kartöflum,
eggjum og lauk varlega saman við. Veljið litla, fallega rauða tómata,
skerið endasneið af þeim og takið tómatkjötið úr með teskeið (saxið
það og setjið saman við salatið). Fyllið tómatana með salatinu og
setjið sneiðarnar yfir eins og lok. Skreytið með steinseljugreinum.
Seljurótarbuff
250 g soðin seljurót
50 g brauðmylsna
250 g soðnar kartöflur
2 egg
jurtakraftur
Seljurótin á að vera snöggsoðin, saxið hana ásamt kartöflunum í kjöt-
kvörn og hrærið síðan með brauðmylsnu, eggjarauðum og jurtakrafti.
Úr deiginu eru mótuð lítil buff sem velt er upp úr eggjahvítu og brauð-
mylsnu og steikt ljósbrún úr jurtaolíu. Buffin eru borin fram með
hrærðum kartöflum og soðnu grænmeti eða hráu grænmetissalati.
60