Samvinnan - 01.06.1971, Blaðsíða 32

Samvinnan - 01.06.1971, Blaðsíða 32
Atli Már: L i FSBLEKKINGIN Við niðandi vötnin, í nánd þess sem er og var í nægtanna heimi, vort agn berst með strauminum bláum. Vér bíðum og vonum til einskis þolgóðir þar, þess eins að fiskar þeir taki, sem aldrei vér náum. , i Og loksins er kvöldar, vér allir öxlum vor skinn og örþreyttir göngum til móts við svefninn og drauminn. Þegar vonbjartur sólmorgunn rís yfir veiðistað þinn, er víst að þar stendur nú annar, og rennir í strauminn, — og sízt myndi hann trúa, þó segðum vér honum þá: „Sjá, — þú færð ekki bröndu í þessari á." G A M L A SKÁLDIÐ MITT Líttu til skýja. Líttu í auga mófugls og munablóms. Sjáðu burknann í brunaskor. Hlustaðu á öldung holbekktri röddu kveða heiðin ævintýr; huldarmál úr steini og hörpu fossbúans. Sjáðu bekrana í bröttu fjalli, drifhvíta jökla, dalalæðuna, og hamingjusól í hádegisstað. Sjáðu líka síðhærðan svalvetur, draugamyrkrið yfir hrundum bæ í heiði, harðspora á hjarni, Glám, í hverri gætt og gjörningaveður... Garún, — Garún. Snússaðu þig Uþþí sólina gamla skáldið mitt, og gældu við hann Glókoll, sem Guð gaf þetta þúsundlitaland álfaskeiða og unaðsdala, hulduheima og hljóðakletta, dynskóga og djúpra vatna, veglausra öræfa og vorhimins ... Þrátt fyrir allt á ísland draum. Svo horfum við aftur í auga mófuglsins. Þrátt fyrir allt er ennþá: tóvinna á tunglinu, þeysireið álfa á nýársnóttu, Ólafur muður og dilla ég þér jóð . . . Mér sögðu þetta álftir, álftirnar sem kvaka. LITLA LEIKSYSTIR Fyrst. Hve tállaust og tryggt var augnaráð þitt í upphafi vega. Ungir dagar ástríðu nætur og augu þín voru aleiga mín litla leiksystir. Þá var söngur í lofti og vor um alla veröld. Seinna. Einsog tvö börn sem heimurinn hefur rænt gullum sínum og eygja í fyrsta sinni hversdagsleika hins gráa dags, einsog tvö börn. Þannig höfum við um stund starað hjálparvana hvort á annað. Hver ertu, leikbróðir minn? Hver ertu, litla leiksystir? Að leiðarlokum. Hægan, hægan opnast augu allra daga. Það er héla á vöngum og hönd mín leitar þinnar. Hve órafjarri orð sem meiddu og tár sem féllu forðum. í hendi mér hvílir hönd þín — litla leiksystir — hnýtt og gömul. • • 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.