Samvinnan - 01.06.1971, Blaðsíða 40

Samvinnan - 01.06.1971, Blaðsíða 40
ríkjastjórn reyndi að reisa um þá, með því að koma á stjórnmálasambandi við sem flest lönd. Á síðasta Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna bar það til í fyrsta skipti á þeim vettvangi, að meirihlutafylgi fékkst við tillögu fulltrúa Albaníu og Alsír um að Kínastjórn beri aðild að Sameinuðu þjóðunum og sætið í Öryggisráðinu sem stjórn Sjang Kaíséks á Taívan skipar nú. Með þessari tillögu greiddu fulltrúar 51 ríkis atkvæði, en 49 voru á móti. Hún náði þó ekki fram að ganga, þar sem Bandaríkjunum tókst að fá sambvkkt með 66 atkvæðum gegn 52, að í bessu máli þyrfti tvo þriðju atkvæða til að samþykkt fengi gildi. Um síðustu áramót hafði Kína stjórn- málasamband við 54 lönd, og síðan hafa verið teknar upp viðræður við sjö önnur um sendiherraskipti, ýmist opinberlega eða í kyrrþey. Eru það Belgía, Luxem- burg, Austurríki, Tyrkland, Perú, Bólivía og Nýja Sjáland. Getur því hugsanlega svo farið þegar á þessu ári, að ógerlegt reynist fyrir Bandaríkin að hindra leng- ur að raunveruleg stjórn Kína taki sæti landsins i alþjóðasamtökunum, og í aðal- stöðvum Sameinuðu þjóðanna er ríkjandi skoðun, að útilokunarstefnan gagnvart Kína hljóti að bíða skipbrot ekki síðar en á Allsherjarþinginu 1972. Þegar af þessari ástæðu er knýjandi nauðsyn fyrir Bandaríkjastjórn að hugsa sitt ráð og reyna að draga úr þeim álits- hnekki, sem óhjákvæmilega verður því samfara, þegar stefna hennar í tvo ára- tugi samfleytt fer út um þúfur. Nú er haft fyrir satt í Washington, að Nixon og ráðgjafar hans hneigist að því að reyna að bjarga sér úr þessari klípu með því að taka upp svokallaða tveggja Kína stefnu, sem felst í því að ekki verði lengur reynt að þvinga bandamenn Bandaríkjanna til að hindra að Kínastjórn taki sæti lands síns hjá Sameinuðu þjóðunum, heldur einungis að koma því til leiðar, að þetta gerist án þess að stjórnin á Taívan hrökklist brott. Á þessu úrræði er þó sá hængur, að hvorki Kínastjórn né stjórnin á Taívan vilja við lausninni líta; báðar gera tilkall til að vera eina löglega stjórn Kma, og er reyndar tilveruréttur stjórnar Sjang Kaíséks í Taípeh háður þeirri kröfu hennar. Fjörbrot fyrri stefnu Nixons En afstaðan til þess, hver fer með um- boð Kína hjá Sameinuðu þjóðunum, er í rauninni aðeins lítið atriði í þeim vanda, sem Bandaríkin eru komin í vegna stefnu sinnar gagnvart Kína á undanfarandi áratugum. Sú stefna mótaðist í öndverðu ekki sízt af því, að harðsnúinn hópur í Repúblikanaflokknum sá sér leik á borði í upphafi kalda stríðsins að koma höggi á stjórnarflokkinn, Demókrata, með því að kenna þeim um að kommún- istar skyldu komast til valda í Kína. Meðal þeirra Repúblikana, sem gátu sér pólitískan orðstír í herferðinni sem náði hámarki með kosningasigri Eisenhowers 1952 og blómaskeiði McCarthyismans sem á eftir fór, var ungur fulltrúadeildar- maður frá Kaliforníu, Richard Milhous Bandaríski borðtennisflokkurinn leemur til Kina. Nixon. Fyrir tilstilli hans og skoðana- bræðra hans var mörkuð sú stefna, sem nú er í fjörbrotunum á blóði drifnum vígvöllum Indó-Kina. Stríðið sem hófst í Suður-Víetnam og nú hefur breiðzt út til nágrannalandanna byggðist á þeirri forsendu, að bandarískt hervald yröi að koma til skjalanna, ef heimskommún- isminn, sem svo var nefndur, og kínversk yfirráð ættu ekki að flæða um alla Suð- austur-Asíu. Eftir áratugs blóðsúthellingar og hern- að sem víða stappar nærri landauðn er deginum ljósara, að víetnömsk þjóðernis- barátta undir kommúnískri forustu reyn- ist Bandaríkjamönnum jafn torsótt og Frökkum áður. Striðsreksturinn hefur magnað um allan helming þjóðfélags- vandamál í Bandaríkjunum sjálfum. Ric- hard Nixon komst til æðstu valda við þær aðstæður, að stefnan sem hann sjálfur hafði átt þátt í að móta og koma á haíði leitt Bandaríkin í ógöngur. Nixon hefur sett sér að bjarga því sem bjargað verður, valdaaðstöðu þess hóps í Bandaríkjunum, sem hann er merkisberi fyrir. Það hyggst hann gera með því að binda enda á mannskæðan hernað af Bandaríkjanna hálfu í Suðaustur-Asiu, án þess þó að þurfa að viðurkenna upp- gjöf eða ósigur. Eitt helzta skilyrðið til að þetta takizt er, að afstaða Bandaríkj- anna til Kína, helzta veldis Austur-Asíu, sé skilgreind á ný. Fyrir hálfu öðru ári var í þessum dálk- um fjallað um hnattferð Nixons á fyrsta valdaári hans, og því haldið fram, að hún væri af hálfu Bandaríkjastjórnar viður- kenning á breyttum valdaaðstæðum í stórveldaátökum, þar sem fyrirsjáanlegt væri að þríveldajafnvægi milli Banda- ríkjanna, Kína og Sovétríkj anna myndi taka við af tvíveldakeppni Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna, sem setti svip sinn á fyrstu tvo áratugina eftir heims- styrjöldina síðari. Nú er engum blöðum lengur um það að fletta, að þróunin stefnir í þessa átt. Kunnugt er orðið, að strax á öndverðu ári 1969 fyrirskipaði Nixon endurskoðun á öllum þáttum afstöðu Bandaríkjanna gagnvart Kína. Síðan hefur hann skref fyrir skref linað á hömlum á samskiptum og verzlun Bandaríkjamanna við Kína. Jafnskjótt og Sjá Enlæ heilsaði borð- tennisliðinu bandaríska með þeim orðum, að brotið væri í blað í samskiptum þjóð- anna, svaraði Nixon með því að aflétta ýmsum bönnum á bandarísku liðsinni við kínverska aðila í alþjóðaviðskiptum og samgöngum, jafnframt því sem hann ákvað heildarendurskoðun á ríkjandi banni við beinni sölu bandarísks iðn- varnings til Kína, með stórfelida rýmkun fyrir augum. Þrátt fyrir formlegt sambandsleysi milli stjórnanna í Peking og Washing- ton, er ekki svo að skilja að vinahót þeirra hvorrar í garð annarrar, takmörk- uð að vísu enn sem komið er, séu fálm í blindni. Ýmsar ríkisstjórnir hafa í kyrr- þey gerzt milligöngumenn, komið áleiðis skilaboðum og uppástungum. Þótt allt síkt fari fram með mestu leynd, er opin- bert að stjórnir Frakklands og Rúmeníu hafa þar einkum komið við sögu. Sameiginlegir hagsmunir Þegar grannt er að gáð, kemur á dag- inn að bandarískir og kínverskir hags- munir fara i ýmsu saman, þótt í mismun- andi mæli sé, jafnskjótt og Bandaríkja- stjórn hefur gefið frá sér fyrirætlanir um að gerast drottnunarveldi i Suðaustur- Asíu undir því yfirskini að verja svæðið fyrir kínverskri ásælni. Undanhald bandaríska heraflans frá Indó-Kína er staðreynd; þar og í öðrum löndum í Suðaustur- og Austur-Asíu hefur banda- rísku herliði fækkað úr 740.000 manns í 420.000 á þrem misserum, síðan Nixon- kenningin svonefnda var sett fram. Við þetta rénar mesta hættan sem að Kina steðjaði utanfrá, sem sé að hin stórveldin tvö gerðu sameiginlega atlögu, Banda- ríkin úr suðri, en Sovétríkin úr norðri. Aftur á móti auðveldar það Nixon stór- um að framkvæma og réttlæta stefnu sína um heimkvaðningu herliðs frá Asíu, ef sýna má fram á að sambúð við Kina sé batnandi. Loks er bæði Bandaríkjunum og Kína umhugað um að Sovétríkin fái ekki komið ár sinni fyrir borð að neinu marki í Suðaustur-Asíu, við það að 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.