Samvinnan - 01.06.1971, Page 27
seint). Tímabilið (50 mínútur)
milli kennslustunda eiga nem-
endur að nota til undirbúnings
næstu kennslustund. Þó er
leikfimi og sundi stundum
komið fyrir i „eyðum“ þessum
og þá ekki hægt að krefja um
heimanám í næstu kennslu-
stund á eftir. Ein almenn
kennslustofa gagnast tveimur
bekkjardeildum með þessum
hætti. Þriggja eða fjögurra
manna herbergi notast sem
eins til tveggja manna lestrar-
stofa allan daginn, þvi að
þannig er raðað á herbergi, að
ekki búa þar fleiri en tveir,
sem „lausir“ eru í einu.
Kostir
a) Nýting húsnæðis og
kennslutækja tvöföld.
b) Námsgreinaskiptum fækk-
ar um helming (eða meir) úr
u. þ. b. 10 á dag, miðað við 5
bóklegar kennslustundir fyrir
hádegi og lestur undir 5 stund-
ir næsta dag síðdegis. Óslitinn
tími, sem nemandinn fæst við
hvert fag, lengist því úr 45
mínútum i 1 y2 tíma og jafnvel
meira, þar sem nokkuð hefur
verið gert að því að kenna svo-
nefnda „partíma", þ. e. kenna
sama fagið i tveimur tímum
með 50 minútna heimavinnu í
faginu á milli. Þannig fást um
3 klukkustundir samfelldar í
sama fagi. Hefur slíkt gefizt
vel.
c) Kvöldin og helgarnar
verða áhyggjulitlar hvað nám-
ið áhrærir; á mánudaginn er
lesið undir mánudaginn. Lík-
legt er, að mánudagarnir verði
notadrýgri en ella, sérstaklega
þegar eitthvað hefur staðið til
yfir helgina, svo sem íþrótta-
keppni, skólaheimsókn o. fl.
Það sama á sér stað, þegar
komið er úr frii, til dæmis jóla-
fríi.
d) Auðvelt er að koma allri
kennslu kennara á 5 daga, ef
þeir svo óska, og litlar sem eng-
ar eyður verða i stundaskrá
þeirra. Þeir kenna ýmist frá
morgni til um kl. 14 eða þeir
byrja þá og kenna til kvölds.
Ef kennari forfallast og annar
kemur í staðinn, þarf ekki að
tilkynna nemendum það nema
með 50 minútna fyrirvara. Þá
geta þeir búið sig undir kennslu
í öðru fagi en á stundaskránni
stendur.
d) Nemendum er haldið bet-
ur við efnið yfir daginn. Þeir,
sem hafa ekki þrek til að lesa
alla lestímana, eiga a. m. k. að
geta mætt hvíldir í næstu
kennslustund.
Ókostir
a) Einstaklingar eru mis-
jafnlega fljótir að tileinka sér
hin einstöku fög. Það sem tek-
ur einn 15 mínútur að nema
tekur annan heila klukkustund.
Reynslan hefur sýnt, að tungu-
mál þurfa yfirleitt mestan
tíma, en lesgreinar minnstan.
Vaknað hefur sú spurning,
hvort ekki sé komin veruleg
skekkja í kennsluvenjur okkar.
Það er ekki einungis, að tungu-
málum eru ætlaðar fleiri
stundir á stundaskrá, heldur
virðist einnig þurfa miklu
lengri undirbúningstima fyrir
hverja slíka stund en undir
flest önnur fög. Er þetta rétt?
b) Vinnudagur nemenda
verður langur og erfitt að koma
við daglegri útivist fyrir alla í
senn, þar sem slíkt mundi
lengja hann enn meir.
c) Kynni þess skólahelmings,
sem saman er i kennslustund-
um, við hinn helminginn verða
sein og stopul, nema auðvitað
um helgar og á kvöldin. Kenn-
arar koma sjaldan allir saman
á kennarastofu og eiga því erf-
iðara með að bera saman bæk-
urnar. Á hinn bóginn væri
hægt að stilla því svo til, að
kennarar, sem t. d. færu mjög
í taugarnar hver á öðrum,
þyrftu aldrei að vera samtímis
á stofunni!
Ekki hefur gætt neinna að-
lögunarvandamála nemenda
gagnvart þessu nýstárlega fyr-
iikomulagi, og kvartanir vegna
þess fyrirfinnast ekki, heldur
þvert á móti. Gamlir nemendur
skólans, sem síðar hafa farið í
aðra skóla, hafa ýmsir haft orð
á því, að þá fyrst hafi þeir
kunnað að meta þetta, þegar
þeir þurftu að fara að búa við
„gamla“ lagið á ný. í skólan-
um hafa undanfarin ár verið
115—130 nemendur á ári i 'nús-
næði, þar sem i hæsta lagi
hefði verið hægt að koma fyrir
90 nemendum við þokkalegar.
námsaðstæður með „gamla“
laginu. Það væri forvitnilegt
reikningsdæmi, hve mikið þetta
hefur sparað ríkinu, að iiús-
næðið hefur verið gjörnýtt, án
þess þó að það virðist hafa
komið að sök, a. m. k. ef litið
er á árangur á landsprófi raið-
skóla og samræmdu gagn-
fræðaprófi, sem hefur verið
mjög góður.
Valgreinar — leiðbeinenda-
nám
Hvert skal vera hlutverk
héraðsskóla? Á hann að vera
réttur og sléttur gagnfræða-
skóli í sveit, alveg eins og
kaupstaðarskóli i öllu nema
því, að við hann er heimavist
og hann er staðsettur í dreif-
býli? Á hann ef til vill að sníða
í einhverju starf sitt og fræðslu
við þarfir hinna dreifðu
byggða, með það fyrir augum
að þaðan komi sá efniviður sem
mótaður er í skólanum og
þangað fari hann aftur?
Til þess að koma til móts við
síðustu spurninguna á jákvæð-
an hátt sótti skólinn árið 1968
um leyfi til starfrækslu leið-
beinendadeidar samhliða námi
í 4. bekk gagnfræðastigs og
fékk það. Er hér um kjörsvið
að ræða, sem tekur til fjögurra
kennslustunda i viku. Aðrar
valgreinar eru þýzka og handa-
vinna. í deild þessa veljast að
jafnaði nemendur með áhuga
á íþróttum og félagsmálum. í
vetur völdu 24 (af 52) þennan
valkost, og hafa aldrei verið
fleiri. Það er von skólans, að úr
þessum hópi komi einstakling-
ar, sem geti hagnýtt sér námið
til eflingar félags- og æsku-
lýðsstarfi í heimabyggðum sín-
um.
Mánaðarpróf
í stað miðsvetrarprófa hafa
við skólann verið haldin mán-
aðarpróf, með 4—5 vikna milli-
bili. Prófin fara fram á mánud.
og standa fram að hádegi á
þriðjudögum. Helgina á undan
nota nemendur til undirbún-
ings. Prófað er í öllum bókleg-
um fögum, nema stærðfræði,
ritgerð og réttritun. í þessum
fögum eru sérstök próf i
kennslustundum. Allar eink-
unnir eru færðar inn á eyðu-
blöð og reiknuð út aðaleinkunn
hvers nemanda. Próftími er
stuttur, í sumum tilfellum
jafnvel prófað í þremur fögum
i einu á iy2 klst. Þetta er hægt
með þvi að nota krossa- eða
eyðuútfyllingapróf. Reynslan
sýnir, að þetta gefur bæði
kennurum og nemendum afar
góða yfirsýn yfir það, hvernig
náminu miðar áfram yfir vet-
urinn, og verkar hvetjandi
jafnt fyrir þá beztu sem hina,
er þurfa að taka sig á.
Lokaorð
Hefur nú verið gerð grein
fyrir þeim atriðum skólastarfs-
ins hér, sem helzt horfa til
nýjunga eða eru óvenjuleg í ís-
lenzkum skólum. Verkefni því,
sem mér var falið, er því lokið.
Þó get ég ekki stillt mig um að
nota tækifærið og „segja örfá
orð að lokum“:
1. Nú er á döfinni ný skóla-
löggjöf, sem sumir hefja til
skýjanna, aðrir fordæma. Mik-
ið er rætt og ritað um „kerfi“,
gamalt og úrelt „kerfi“, þörf-
ina á nýju og fullkomnu
,,kerfi“. Nýtt kerfi er gott og
blessað og sjálfsagt nauðsyn-
legt. En „kerfið“ sem slíkt bæt-
ir þó lítið úr skák ef ekki er
jafnframt stuðlað að bættri
menntun kennara og þó um-
fram allt sterku aðstreymi
góðra starfskrafta inn í kenn-
arastéttina. Ekkert kerfi er
betra eða verra en það þjóð-
félag sem skapar það, þeir
nemendur og síðast en ekki sízt
þeir kennarar sem eftir því
starfa.
2. íslenzkum skólum er oft
fundið það til foráttu að þeir
séu ekki nógu „hagnýtir". Skól-
unum beri að skila atvinnulíf-
inu allt að því verkþjálfuðu
fólki til hinna ýmsu fram-
leiðslustarfa. Víst þarf verkleg
kennsla að eiga sinn sess. Það
er hinsvegar rangt að ætla
skólunum að kenna við „gervi-
aðstæður“ það, sem betur verð-
ur kennt við raunverulegar
kringumstæður. Verklegt nám
þarf því að vera í sem nánust-
um tengslum við vel rekin fyr-
irtæki og stofnanir. Auk þess
liggur það hreint ekki í augum
uppi, hvað sé hagnýtt þegar um
nám og andlega þroskaleit er
að ræða. Hvort er til dæmis
hagnýtara fyrir þjóðfélagið, að
unglingur tileinki sér jákvætt
lífsviðhorf eða þá að slíku sé
lítill gaumur gefinn, en ungl-
ingurinn þjálfaður í því t. d.
að reka nagla eða saga horn-
rétt?
3. Skýrsluöflun og tölfræði er
góð og nauðsynleg vegna áætl-
unargerðar ýmiskonar. En
gleymum því aldrei að hver
einstaklingur er veröld út af
fyrir sig, heimur fullur af til-
finningum, óskum og þrám.
Gleymum aldrei hinum sígildu
orðum Einars Benediktssonar:
„Aðgát skal höfð i nærveru sál-
ar“.
Vilhjálmur Einarsson.
Skýringarmyndir:
A : nemandi í A-bekk. B : nemandi í B-bekk.
[AABB]: fjögurra manna herbergi.
[A-bekkur]: A-bekkur í kennslu (B-bekkur í heimanámi).
Kl. 7.50 á mánudagsmorgni: [A-bekkur] [ BB]
Kl. 8.40 á mánudagsmorgni: [B-bekkur] [AA ]
Kl. 9.30 á mánudagsmorgni: [A-bekkur] [ BB] o. s. frv.
Á þriðjudag byrjar B-bekkur kl. 7.50 o. s. frv.
27