Samvinnan - 01.06.1971, Síða 46
Túristarnir koma! Túristarn-
ir koma!
Allir í nýjar stellingar. Hótel-
in máluð. Steypt yfir svöðin
fyrir framan hótelanddyrin.
Þjónarnir skafa undan nöglun-
um og mylja matarleifarnar úr
hálstauinu, láta jafnvel hreinsa
búninginn. Hótelstjórarnir
raunar búnir að koma sér upp
nýjum svip og tilkynna þeim
þjónum, sem búnir eru að vera
á því i allan vetur, að ef þeir
láti ekki renna af sér áður en
túristatímabilið hefst, þá verði
þeir látnir fara. Búið að gera
við brotnu handlaugarnar og
pissvaskana á Hressingarskál-
anum, og meira að segja búið
að mála yfir klámvísurnar á
klósetthurðunum, að ekki sé nú
talað um myndlistina; pen-
ingakassarnir stemmdir af
(eða er það ekki það sem það
heitir?); sætar litlar skóla-
stelpur ráðnar til að ganga um
beina á héraðsskólunum sem
reknir eru sem gistihús yfir
sumarið; reglum um viðeigandi
klæðaburð breytt; sólin hækk-
uð á lofti; langferðarútur bón-
aðar; kynningarbæklingar
prentaðir; minjagripaverzlanir
fylltar af lopapeysum sem ör-
vasa kellingar eru búnar að
vera að prjóna í allan vetur
(konan mín segir mér að þær
fái milli tvö og þrjú hundruð
krónur fyrir hverja peysu, þvi
trúir maður nú varlega; hún
er nefnilega rauðsokka).
Vertíðin er að hefjast. Túr-
istarnir eru að koma.
Og nú kemur mergurinn
málsins, góðir hálsar. Tekjurn-
ar af túristunum s.l. ár voru
hvorki meira né minna en rétt
tæpur milljarður, og það sem
meira er: tölfróðir menn telja
að full ástæða sé til að ætla,
að tekjurnar aukist allverulega
þetta ár, og talið er fullvíst að
þáttur ferðamála í gjaldeyris-
öflun þjóðarinnar verði á þessu
ári hvorki meira né minna en
tiundi hluti af öllum gjaldeyr-
istekjum landsmanna.
Þetta hljóta að vera unaðs-
legustu peningar, sem i rikis-
kassann koma, einkum þegar
það er haft i huga, hve sára-
litlu er til kostað að afla hverr-
ar krónu. Ef við berum saman
tekjurnar af ferðamönnum og
tekjurnar af elsku hjartans
fiskinum, þá er sannarlega vert
að hafa það hugfast að til þess
að afla þeirra tekna þarf að
eyða stórfé i umboðslaun,
flutningsgjöld, tolla, auglýsing-
ar og guð má vita hvað, en
tekjur af túristum renna til
landsmanna, án þess að nokkru
verulegu hafi verið til kostað.
Nú mætti ætla að ríkisstjórn-
in (hver sem hún nú verður,
þegar þetta blaö kemur út)
væri himinlifandi yfir tekjum
sem þannig er til stofnað, en
eftir þvi sem næst verður kom-
izt er því ekki að heilsa. Það
verður að teljast furðulegt að
ekki skuli vera varið nema
0,2% af útgjöldum fjárlaga til
ferðamála, og er í því sam-
bandi vert að hafa hugfast að
ekkert af þessari gjaldeyris-
öflun er greitt niður, og kostn-
aður við að afla þessarar val-
útu nemur ekki nema 0,026% af
framlögum til samgöngumála.
Auk þess er svo greiddur fullur
söluskattur af vörum og þjón-
ustu, sem seld er erlendum
ferðamönnum, en ekki er
greiddur söluskattur af neinni
annarri gjaldeyrisöflun. Þá er
rétt að taka undir það sem
Lúðvík Hjálmtýsson segir í
skýrslu Ferðamálaráðs, að er-
lendir ferðamenn sem hingað
koma eru forsenda þess, að ís-
lendingar geti sjálfir haldið
uppi jafntíðum samgöngum til
meginlanda tveggja heimsálfa
og raun ber vitni.
Og nú hugleiða menn — og
ekki að ástæðulausu — hvað
það sé helzt, sem laðar erlenda
ferðamenn hingað til lands.
Um þetta atriði þykist ég geta
talað af nokkurri reynslu, þar
sem ég hef haft það fyrir stafni
i sjö sumur að lóðsa útlenzkar
kellingar um allar jarðir á
hestbaki. Hver slikur hópur er
með mér á ferðalagi í viku, og
hefur mér gefizt gott tækifæri
til að kynnast sjónarmiðum
túristanna allnáið. Það er bezt
að byrja á því að hugleiða,
hvað það er, sem helzt getur
orðið til þess að laða erlenda
ferðamenn hingað til lands. Ég
get fullyrt að það eru ekki
lúxushótel eða annað slikt. Það
fólk, sem fær eitthvað útúr því
að eyða stórfé i að lifa í vel-
lystingum praktuglega og moka
út stórfé fyrir svokallaðan lúx-
us, leggur leið sina svo sannar-
lega eitthvað annað en til ís-
lands. Allt kjaftæðið um hótel-
menningu og betri þjónustu
fyrir fina útlendinga á sér
sáralitla stoð í raunveruleikan-
um. Túristar, sem koma til
landsins, koma til að sjá eitt-
hvað hinsegin, eitthvað sem
önnur lönd hafa ekki uppá að
bjóða. Það er ekkert til, sem
gleður hjarta túristans meira
en það að finnast hann ekki
vera túristi. Þetta hefur ísland
uppá að bjóða. Þjónar með
hundshaus, hótel sem kölluð
eru lúxushótel en eru það ekki,
fáheyrðir prisar, þjóðvegir
huldir rykmekki og betur falln-
ir til þess að hrista farþegana
sundur en að koma þeim á leið-
arenda, heimsfrægir goshverir
sem ekki hafa gosið í meira en
tuttugu ár, dónalegir leiðsögu-
menn og fólk sem ekkert hefur
gert til að gera dvöl ferða-
manna í landinu skemmtilega
á einn eða annan hátt.
Túristum finnst stórgaman
að geta sagt vinum og kunn-
ingjum heima frá því undar-
lega landi íslandi þar sem
flestir hlutir eru öðruvísi en
þeir eiga að vera. Á lúxushótel-
unum er ekki hægt að fá drink,
en i höfuðborginni eru þrjár
vöruskemmur, sem selja áfengi
í lítravís og það fyrir hvorki
meira né minna en nærri tvær
milljónir króna á dag allan
ársins hring. Bjór hinsvegar
bannaður með lögum, og bann-
að að veita vín á þeim hótelum
sem hafa vínveitingaleyfi á
miðvikudögum. Þá fá menn
ekki inngöngu á helztu veit-
ingastaði höfuðborgarinnar, ef
þeir eru klæddir samkvæmt
nýjustu tizku, en litlu sætu ís-
lenzku stelpurnar, sem hanga
löngum á vínstúkunum, alltaf
til i að koma i partí uppá her-
bergi og jafnvel að leyfa mönn-
um að gera hitt fyrir enga
þóknun. Mikið hlýtur útlend-
ingum að þykja gaman að því
að segja frá þessari þjóð, sem
þeir hafa sótt heim, þjóðinni
sem hugkvæmdist að setja
verksmiðju ofan i mitt Mývatn,
sem af mörgum er ekki ein-
göngu talinn fegursti staður á
landinu, heldur einhver mesti
unaðsreitur á jarðriki.
Sem sagt, það er full ástæða
til að ætla, að það sé misskiln-
ingur hjá þeim, sem um ferða-
mál fjalla hérlendis, að það sé
eitthvað áríðandi að hafa betri
þjónustu, fínni hótel, eða skapa
túristum hagkvæmari skilyrði
til að ganga örna sinna. Það
riður á þvi fyrir íslendinga að
halda áfram að vera kynlegir
kvistir, sem útlendingar geta
skoðað sem slíka, og þá mun
ferðamannastraumurinn auk-
ast jafnt og þétt. +
46