Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Side 11

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Side 11
5 irmenn hlýddu í blindni. Öll fjelags og borgaraleg mennt- un var óþörf, hefði jafnvel getað verið hættuleg, með því að efla óþarft sjálfræði i þeim, sem urðu að vera undirgefnir. Yfirmenn í þjónustu ríkisins fengu vel flestir einhverja sjermenntun, en aðrir, sem áttu völdin auði eða dugnaði að þakka, treystu á: »að þeim sem guð gefur embætti, gefi hann líka vit til að rækja það«. Frá sjónarmiði hins gamla þjóðfjelags var ekkert út á að setja, þótt alþýðan væri hvorki læs nje skrifandi. Hún hafði þess enga þörf, »skrifaði sjer til skammar,« sögðu menn. Sá, sem hlýddi hinni »æðri stjett«, vann, sparaði, lifði á heimafengnum mat,-eins og hægt var, gekk í heima- unnum fötum, bjó í eins lágum og ódýrum kofum og framast mátti, en geymdi fáeina dali í sjóvetlingsþumli niður á kistubotni, þ'að var sá sanni borgari fyr á tím- um. Jarðbundinn í átthögunum, með sveitina sína fyrir veröld, með kaupmann, klerk og sýslumann fyrir leið- toga fetaði hann troðna braut milli vöggu og grafar. Þetta samræmi hvarf fyrir liðugum hundrað Tvaer bylt- árum. Pá gerðist það sögulegt, að ýmsir ingar. hugvitsmenn í Evrópu gátu búið til vjel, sem gerði gufu að vinnuafli. Þessa vjel þekkja allirnú: gufuvjelina. Hún vinnur óteljandi verk, sem menn unnu áðurálöngum tíma með handafli, sumt sem mönn- um hefði annars verið ofvaxið. Hún lyptir heljarbjarg- inu; í námum: kolum, málmi og vatni. Hún hreyfir hamr- ana, sem smíða stórvirki nútímans. Hún spinnur og vef- ur klæðin á næstum allt mannkyn og gerir mýmargt annað, sem eigi verður hjer talið. En þó að gufuvjelin og þær verkvjelar aðrar, sem fylgt hafa í spor hennar, vinni mikið, þá þurfa þær þó mannlega stjórn. Þess vegna myndaðist með þeim ný stjett: vjelavinnumenn, öreiga verkamenn. Miklar borgir risu upp á stuttum tíma, kring- um verksmiðjurnar: hof gufuguðsins. Framleiðslan óx feiknamikið, þar sem bæði unnu menn eins og áður var og einnig hin máttuga gufa, sem afkastaði meiru en

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.