Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Page 27
21
hefur nokkurs að gæta og bera ábyrgð á. Þetta skapar
reglusemi og trúmennsku í starfinu.
Borgaraskólarnir ættu hvorki að vera lands-
Skipulag. ins eign nje einstakra manna, heldur sjálf-
stæðar stofnanir: sjálfseign. Gætu þeirengu
síður verið í fyrstu styrktir eða komið á fót af almanna
fje, eða gjöfum velviljaðra manna. Eignin væri: skóla-
jörðin, húsin og áhöldin. Tekjurnar: afgjald jarðarinnar—
frá kennurum —, húsaleiga og kennslugjald nemenda, og
væntanlegur landssjóðsstyrkur. Gjöldin yrðu: Viðhald
bygginga og áhalda, lýsing og hitun húsa og laun kenn-
ara og starfsmanna. Vandi er opt að fá velviljaða og
skynsama skólanefnd, til að hafa stöðuga yfirumsjón
með eigninni, og ættu engir að vera færari um það en
gamlir lærisveinar, búsettir í hjeraðinu, en kosnir með
almennum kosningarrjetti af öllum, sem í skólanum hefðu
verið fullan námstíma. Áreiðanlega mundu gamlir læri-
sveinar bera hlýjan hug til æskuhreiðursins, og vilja hag
þess í öllu, svo framarlega sem það hefir verið styrktar
maklegt.
þannig hugsa eg mjer, að með tímanum
Niðurlag. muni rísa upp efnalega sjálfstæðar andlegar
og likamlegar aýlstöðvarí öllum sýslum lands-
ins; að þar fái unga kynslóðin í landinu hagkvæma sam-
vinnumenntun, sniðna eptir þörfum tímans og okkar
sjerstöku aðstöðu. Sumir hrista höfuðin og spyrja um
kostnaðinn. Við því er svar rómverska hershöfðingjans,
er hann benti á herbúðir óvinanna og sagði: xParna
getið þið fengið vatn.«
Milliliðirnir eru óvinir okkar, og allir nauðungar smá-
kóngar, sem misbeita valdi sínu í stjórn lands og byggða.
Fyrsta sjálfsagða afrek þeirrar kynslóðar, sem menntuð
væri í borgaraskólunum væri að gera alla kaupmenn ó-
þarfa; að hafa eitt allsherjar sölufjelag til að selja allan
íslenzkan varning og samskonar kaupfjelag, til að kaupa
alla erlenda vöru fyrir þjóðina, með trygga íslenzka starfs-