Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Síða 32
26
samkeppni. Þaðan af síður mundu þær standast sam-
keppni við aðra eins ofjarla og kaupfjelögin geta verið,
þegar þau hafa komið á hjá sjer náinni samvinnu, safn-
að fje og tekið að sjer heildsöluna. Pá mætti margur
halda á spöðunum, sem ekki vildi rýma hólmann.
Jeg vildi þó ekki æskja þess, að öll verzlun einstakra
manna ætti fyrir höndum að hverfa með öllu. Hagsýnir
og duglegir kaupmenn, sem hvorki skortir þekkingu nje
fje, mundu geta spjarað sig í lengstu lög, í heiðarlegri
samkeppni. Samkeppni er samvinnufjelagsskapnum hreint
bráðnauðsynleg, ef hann á ekki að sofna og verða verri
en enginn.* Samkeppnin knýr samvinnufjelagsskapinn til
þess, að verða ekki á eptir tímanum í &Tekník«, knýr menn
til þess að leggja fram sitt ýtrasta til að gera fyrirkomu-
lag og rekstur sem ódýrast og hagfelldast. Drengilegir
keppinautar eru opt þörfustu velgerðamenn.
* *
*
Svo var enn Iagt af stað. Drangarnir hurfu í kólguna.
Farþegar leituðu skjóls undir þiljum.
Á skipinu var margt Englendinga, sumt skipbrotsmenn.
Hinn 26. Ágúst var óvenju glatt yfir Englendingum. Við
vorum komnir í nánd við Skotland. Á bakborða voru
Orkneyjar, en fyrir stafni skozka ströndin. Hjer eru flest
örnefni íslenzk, en afbökuð eptir enskri málvenju. Pað
færist líka móður í Landann á þessum menningarstöðv-
* Hjer getur Tímaritið ekki verið sammála. f*ó eigi væri við kaup-
menn að etja yrði sá frumlegi grundvöllur samkeppninnar eptir:
að fá sem mest með sem minnstum tilkostnaði. Þó keppir fjelag
við fjelag í hagsýni, með hag einstaklings og almennirtgs fyrir
augum, án áhrifa ríkisvaldsins á viðskipti þjóða á milli. Á ann-
ari samkeppni er ekki sjáanleg þörf. Nútíðarsamkeppnin er að
eyðileggja fjöldann. Henni þarf því að afneita alveg, en finna
nýjar aðferðir, og þar gefa samvinnufjelögin margar góðar
bendingar í rjettláta og holla stefnu. En þá mega fjelögin eigi
vera að hálfu maður og að hálfu steinn, eins og konungurinn
yfir svörtu eyjunum í ævintýrinu. ™ ,