Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Side 44
38
Kr.
Að handan . . . 127,411.43
6. Oúthlutaður verzlunarágóði og fjárhæðir til
sjóðauka................................... 25,554.79
Samtals . . . 152,966.22
Hallgrinmr Kristinsson.
* *
*
Athugasemdir.
í Tímaritinu f. á. (bls. 1—8) er greinilega skýrt frá vexti
og viðgangi þessa fjelags og ársskýrsla þess, 1912, er í sama
árgangi (bls. 166). Af skýrslunni hjer að framan sjest, að vel
hefur verið haldið í horfið, árið sem leið. Viðskiptaveltan
hefur enn aukizt um 30 þús. kr. Auk þess, sem fjelagið lagði
í hinn sameiginlega varasjóð, var hægt að skipta 12% í á-
góða á viðskipti fjelag'smanna, árið sem ieið. það er Kaup-
fjelag Eyfirðinga og Kaupfjelagið »Hekla«, sem haga fram-
kvæmdum sínum sem næst því er almennt tíðkast meðal er-
lendra kaupfjelaga. Pessi tvö fjelög eru einnig blómlegustu
kaupfjelögin lijer á landi, nú sem stendur. F*au hafa, að
mestu leyti, losað sig við þann hálfleik og firrur, sem enn
fylgir niörgum okkar kaupfjelögum.
Það er nauðsynlegt, að kaupfjelagsmenn athugi vel hvaða
fyrirkomulag gefst bezt í fjelagsskapnum, nú á tímum, okkar
á meðal, og kynni sjer það vel í öllum atriðum. Tímarnir
breytast, og þá eigi sízt almennir verzlunarhættir. það verzl-
unarfyrirkomulag sem-gat átt sæmilega vel við, fyrir 15 — 20
árum, getur verið óhagkvæmt, nú á síðustu dögum. Og þá
or það hendinni næst, fyrir kauþfjelaga, að líta á innlendu
reynsluna. Þegar það er gert, sýnist Tímaritinu koma í ljós:
að hrein sölufjelög, eða þá hrein pöntunarfjelög beri bezt
úr býtum: hafi mestan ágóða, vinsældir og fylgi. Tviskipt-
ingin: pöntun og söludeild, með tvennskonar verðlagi og.
vandasömu framkvæmdum, er sjáanlega að dragast aptur úr,