Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Side 62
Fyrirlestraferðalag 1914.
Á nú gildandi fjárlögum er heitið styrk til þess — eins
og á síðustu fjárlögum—að haldnir verði fyrirlestrar um
samvinnumál á ýmsum stöðum á landinu, gegn jafnmiklu
framlagi annarstaðar frá. Er Sambandi íslenzkra samvinnu-
fjelaga veittur styrkurinn og því falið að koma málinu
til framkvæmda: að útvega fyrirlesarann og tiltaka fyrir-
lestrasvæðið í hvert skipti, með samþykki stjórnarráðsins.
Á þessu ári bárust böndin að mjer, eins og áður, með
starf þetta. Oskir komu fram um það frá Austurlandi,
Vesturlandi og Suðurlandi að fyrirlestrar yrðu haldnir á
þeim svæðum í ár. En ýmsra ástæðna vegna var ráðið
svo fram úr, að ferðast um Suðurlandsundirlendið í þetta
skipti. Eg lagði því af stað í slíkum erindum í fyrri hluta
Marzmánaðar og kom heim aptur seint í Maímánuði.
Efni fyrirlestranna var á líka lund og áður, en þó með
nokkurri tilbreytni í útfærslu, eptir því sem breyttir tímar
og starfsemi samvinnufjelaganna gefur tilefni tik Aðallega
lagði eg til grundvallar: fjelagsskipun, alþýðusamtök og
samvinnufjelagsskap, með heimfærslu til erlendrar og inn-
lendrar reynslu í þessum efnum. Jafnframt leitaðist eg
við að sýna fram á, í hvaða greinum fjelagsskap okkar
væri einkum ábótavant, og hvernig þyrfti að breyta til>
eptir því sem efnahag og aðstöðu er almennt háttað nú
á dögum í hinum ýmsu hjeruðum landsins.
Optlega var talað um ýms atriði er snertu fyrirkomu-
Iag og framkvæmdir hinna einstöku fjelaga, eigi að eins á
fundastöðunum, heldur og þess á milli, bæði við einstaka