Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Page 77
7Í
ar á 167 þús. kr. Par með er þá talið hið nýja kœtihús
í Reykjavík með tilheyrandi vjelum og öllum útbúnaði
og sýnir ársskýrslan þann tilkostnað. f*að var full þörf
á þessum viðauka og þessari kjötgeymsluaðferð, bæði til
þess að hafa þar kjöt, þegar mest var um að vera í slát-
urtíðinni sjálfri, en þó einkum til þess að fjelagið gæti
tryggt Reykjavíkurbæ og fiskiskipunum gott kjöt á öllum
tímum árs. Kælihúsið kom fyrst til nota á síðast liðnu
hausti, og mátti segja, að það væri á heppilegum tíma,
því án kælihússins hefði fjelagið eigi getað tekið á móti
nándar nærri eins miklu sláturfje og raun varð á, en það
hefði orðið fjelagsmönnum til stórskaða, að vera gerðir
apturreka með sláturfjenað til verulegra muna, af því
heyfengur, sunnanlands, var óvenjulega lítill og einkum
skeinmdur, eptir sumarið sem leið. Rað er ánægja að
skoða allan þennan nýja útbúnað í kælihúsinu og þær
miklu vörubirgðir, sem þar má geyma óskemmdar, og
enzt geta sláturtíðanna á milli.
Viðskiptavelta fjelagsins hefur allt af farið vaxandi, sem
mest stafar af auknu fylgi almennings við fjelagið. Að
vísu er það enn svo, að ýmsir menn vilja ekki fjelaginu
fylgja og ber margt til þess, sem óþarfi er hjer upp að
telja. En á ferðalagi mínu varð eg þess greinilega vísari,
að vinsældir sláturfjelagsins höfðu stórum aukizt, meðal
bænda síðast liðið haust. Pá þreifuðu menn svo glögg-
lega á því, hvílík hjálparhella fjelagið reyndist, þegar
stórum meira þurfti að lóga af fje, en venja var til. Fje-
lagið tók á móti miklu meiru, en menn þorðu að von-
ast eptir, útvegaði gott verð fyrir allt saman og stóð í
skilum með allar greiðslur. Kaupmenn hefðu orðið að
gera mikið fje apturreka og þó hefði verðið fallið stór-
kostlega.
Það er eflaust of lágt sett að telja svo, að hvert kíló-
gr. af kjöti og gærum, sem fjelagsmenn Ijetu í sláturfje-
lagið, síðast liðið haust, hafi orðið 10 aurum verðhærra,
en ella mundi verið hafa, ef siáturfjelagið hefði ekki ver-