Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1914, Page 80
MinningarsjóðurJakobsHálfdanarsonar.
Árið 1882 var Kaupfjelag Þingeyinga stofnað. Enginn
einn maður stendur nær því, að mega kallast stofnandi
þess en Jakob Hálfdanarson — bóndi frá Grímsstöðum
í Mývatnssveit.
F’ví var það, að á fulltrúafundi Kaupfjelagsins 20. Júní
1906, var ákveðið að veita úr sjóði fjelagsins 1,000 krón-
ur, er verða skyldi óeyðanlegur sjóður og nefnast: Minn-
ingarsjóður Jakobs Hálfdanarsonar. Skyldi Jakob Hálf-
danarson sjálfur gera skipulagsskrá sjóðsins og ákveða
hvernig verja skyldi vöxtum hans. F*að gerði hann og
fjekk staðfesting konungs á skipulagsskránni.
Samkvæmt skipulagsskránni er umsjón sjóðsins í hönd-
um þriggja martna: sýslumannsins í F’ingeyjarsýslu, al-
þingismannsins í Suður-F’ingeyjarsýslu og hins þriðja
manns er Jakob Hálfdanarson kýs til þess, meðan hann
lifir.
Vöxtum sjóðsins skal verja til verðlauna til hjúa, jafnt
karla og kvenna, »er sýnt hafa frábæra umhyggju, þrifn-
að og alúð við umhirðu búfjár fyrir húsbændur sína,
hvort heldur vandamenn sína eða vandalausa,« ef þeir
eiga heima í F'ingeyjarsýslu, vestan Jökulsár í Axarfirði.
Umsóknir um verðlaun á að senda sýslumanninum í
F’ingeyjarsýslu og fylgi meðmæli frá húsbændum og
fjárskoðunarmönnum í hreppnum. Ummæli skoðunar-
manna má taka til greina, þó engin umsókn fylgi. Verð-
launin eru 5 — 25 krónur, í hvert skipti, og má veita