Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1919, Blaðsíða 7

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1919, Blaðsíða 7
 Jakob Hálfdanarson. Nú i vetur andaðist sá maður, sem lengi mun verða 'i minnum hafður í sögu þessa lands. Það er faðir sam- vinnuhreyfingarinnar á íslandi, Jakob Hálfdanarson, að- .alstofnandi og fyrsti framkvæmdarstjóri Kaupfélags Suður-Þingeyinga. « Það er að mörgu leyti eftirtektarvert, hvernig sag- an endurtekur sig á þessum sviðum sem öðrum. Fyrstu brautryðjendurnir nálgast markið — en missa þó af .því. Saga þeirra er oft raunaleg einmitt af því, að þeir fórna svo miklu, starfa svo einlæglega, eru því sem nær búnir að vinna sigur — en tapa þó leiknum að lokum. Næsta kynslóð byggir á sigrum og ósigr- um undangenginna kynslóða, stendur svo að segja á íierðum þeirra. Og ekki ósjaldan auðnast þeirri kyn- slóð, að komast upp á hæsta tindinn og horfa inn yfir Mð fyrirheitna land. Jakob Hálfdanarson bar gæfu til þess, að færa sína fórn á þóknanlegum tíma, svo að hann varð bænheyrður. Þess vegna verður aldrei sögð svo saga íslenzkrar verzl- unar, að nafn hans standi þar eigi, sem eins af þeim mönnum, sem við eru tengdir giftudrjúgir atburðir. En á undan honum er Tryggvi Gunnarsson eldri braut- ryðjandi. Hann starfar í sömu átt. Sama hugsjón brennur honum í brjósti. Og þó hrynur bygging hans í rústir, og verk hans í verzlunarmálunum fær ekki nema óbeina þýðingu. í starf Tryggva Gunnarssonai' vantaði ekki nema örlítinn hlekk til þess, að það leiddi 1

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.