Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1919, Page 9
3
þjóðkunnugt, að Mývatnsaveit er ein hin fegursta aveit
hér á landi og heilnæmasta. Þar er loftið hreint og
tært. öræfin liggja að sveitinni á þrjá vegu. Þar eru
þokur og dimmviðri sjaldgæf. Lífskjör sveitarbúa eru
bæði erfið og heillandi, vel fallin til að skapa frjáls-
hyggjandi og listelska menn. Ur Mývatni rennur Laxá
niður eftir Laxárdal og Aðaldal út í Skjálfandaflóa.
Hún er tvímælalaust fegursta vatnsfall á íslandi. Tær
eins og hreinasti krystall fellur áin stall af stalli um
óteljandi blómvafðar eyjar og kletta alla leið fram til
sævar. Þar er óendanleg fjölbreytni og fegurð í breyti-
leikanum. Við Mývatn og Laxá hefir hin forna heim-
ilismenning náð mestum blóma hér á landi á síðari
öldum. Þar hafa vaxið upp fjölmargir einkennilegir,
starfandi hugsjónamenn og skáld, svo sem þjóð-
kunnugt er.
Við norðanvert Mývatn er jörðin Grímsstaðir. Það
er stór jörð og erfið; víðáttumikið heiðarland, blautar
engjar og skóglendi mikið. Bærinn stendur því nær á
vatnsbakkanum. En örskotslengd úti í vatninu liggur
eyjan Slútnes, einn hinn fegursti blettur á Islandi.
Fylgir hólminn Grímsstöðum. Þegar Jakob Hálfdánar-
son gerðist forgöngumaður um kaupfélagsstofnun var
hann bóndi á Grímsstöðum, kvongaður og átti nokk-
ur stálpuð börn. Hálfdan faðir Jakobs var einkennileg-
ur snyrti- og gáfumaður, hæglátur, en athugull um
flesta hluti. Hálfdan var fjármaður mikill og einn af
forgangsmönnum á því sviði hér á landi. Hann hirti
fé sitt með þeirri kostgæfni og umönnun, að fáir bænd-
ur munu hafa lengra komist í þeirri grein. Þeir feðg-
ar voru mjög samhuga og eðlislíkir. Jakob var, eins
og Hálfdan faðir hans, hinn mesti þrifa- og umsýslu-
maður í allri búsýslu.
Þau voru einna fyrstu drög kaupfélagshreyfingar-
innar, að á árunum 1847—1867 mynduðu þingeyskir
bændur nokkur smáfélög til að ná betri kjörum hjá
1*