Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1919, Page 11

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1919, Page 11
5 Sigurðssyni á Gautlöndum. Þeir voru löngum þing- menn og þóttu á þingi hinir mestu skörungar sökum vitsmuna og þekkingar. Koma þeir mjög við sögu í verzlunarmálinu. En þar skaust Ben. Kristjánssyni nokkuð í fyrstu, þótt af góðum hug hafi verið gert. Margir bændur heimtuðu, að Gránufélagið kepti við kaupmenn um íslenzku vöruna, jafnvel þó að greiða þyrfti óeðlilega hátt verð, eftir því sem markaður var erlendis. En af því leiddi, að jafna varð hallann með því að leggja því meira á innufluttu vöruna. Þykir margt benda til, að Ben. Kristjánsson hafi mjög átt sök á því, að Tryggvi Gunnarsson tók upp þennan sið, og gerði Gránufélagið þar með að gróðastofnun fyrir hlut- hafana. En við það var spilt hinum upprunalega til- gangi félagsins. Þriðja stoðin, sem hin almenna framþróun skaut undir kaupfélagsskapinn, var útflutningur lifandi pen- ings til Englands. Fyrstu hugvekju um það efni fengu bændur í »Nýjum félagsritum«. Um 1866 var Þorlák- ur 0. Johnson, sem seinna varð kaupmaður í Reykja- vík, búsettur í Englandi, en kom til íslands og ferðað- ist um Þingeyjarsýslu. Samdist þá svo um með Þor- láki og bændum, að hann skyldi útvega enskan fjár- kaupmann með skip til Akureyrar seint i sept. ,um haustið, en þeir vera þar fyrir með ákveðna sauðatölu. Hafði Tryggvi Gunnarsson umsjón með sáuðatökunni. En skipið frá Englandi kom aldrei það haust, og þótt- ust bændur grátt leiknir. A næstu árum fóru að koma hingað enskir kaupmenn, bæði til að kaupa sauðfé og hesta. Hét einn hinn fyrsti Askam. Var Tryggvi Gunnarsson forgangsmaður af hendi héraðsbúa í þess- um málum öllum. Hélt hann markaði allvíða í Þing- eyjarsýslu. Leið svo fram um 1880. Bær einn í Mývatnssveit heitir Haganes. Það varð að venju einn vetur um þetta leyti, að halda þar sam- komu á hverju sunnudagskveldi. Gerðu menn ýmist

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.