Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1919, Síða 38

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1919, Síða 38
32 f'þá borgað nema lítið eitt af andvirðinu. Og um haust- ið fór svo, sem fyr er sagt, að allur gjaldeyrir féll og í stað þess að fá peninga hjá umboðsmanni, lenti fé- lagið i skuld hjá honum. Sumarið 1S86 lét Jakob reisa vörugeymsluhús allmikið, því að þegar farið var að taka á móti ull frá félagsmönnum, var ómögulegt að komast af án nýrra húsa. Þá um haustið kom um- boðsmaður timbursalans til Húsavíkur og neyddist Jakob til að veðsetja honum húsið. Margir hinir eldri menn litu hornauga. til þessarar nýju byggingar. Sáu þó að félagið gat ekki án hennar verið. Nú er að segja frá Þórði Gudjohnsen verslunar- stjóra. Hann var maður vel viti borinn, fastlyndur, harðlyndur, bráður í skapi, og kunni sér þá stundum varla hóf. Vinum sínum var hann einkar hlýr og trygg- ur, en grimmlyndur við mótstöðumenn. Honum mun hafa verið hlýtt til Jakobs persónulega, og að líkindum kunnað að meta festu hans og fórnfýsi. Var andstaða þeirra beggja riddaraleg, þó að striðið væri háð með fullri alvöru frá báðum hliðum. Eins og fyr er frá sagt, lét Gudjohnsen kaupfélagsskapinn óáreittan í fyrstu, meðan hann hugði samtökin varla annað en barna- gaman. En er hann sá félagsskapinn færast í aukana, ásetti hann sér að berjast móti hreyfingunni af alefii, ■ og ganga af samtökunum dauðum, ef hann mætti. Al- drei hefir staðið jafn hörð og löng barátta milli nokk- urs eins kaupmanns og samvinnufyrirtækis bér á landi, ■ ein's og sú sem Þórður Gudjohnsen háði við Kaupfélag Þingeyinga. Og að líkindum hefir Þórður verið mest- ur maður fyrir sér af öllum þeim kaupmönnum, sem sett hafa sér það að takmarki, að kefja niður sjálfbjörg þjóðarinnar í verslunarefnum. Samt misti hann sigurs- ins. Verkefnið var ofvaxið jafnvel hans miklu festu og eterka vilja. Fyrsta herbragð Gudjohnsens var það, að umkringja ióð Kaupfélagsins, svo að það gæti ekki fært út kví-

x

Tímarit íslenzkra samvinnufélaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit íslenzkra samvinnufélaga
https://timarit.is/publication/342

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.