Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1964, Page 129

Andvari - 01.06.1964, Page 129
ANDVARl LEIKRIT GUÐMUNDAR KAMBAN 127 setzt Du der ewig regen, der heilsam schaffenden Gewalt die kalte Teufels- faust entgcgcn." Það er nefnilega hinn kaldi hnefi djöfulsins, sem Belford inein- ar, að presturinn hafi þörf fyrir. Hann á að opna augu hans fyrir sannleika lífsins, sannleika þess, sem presturinn kallar s)md. 3) Nietzsche heldur áfram: „Hs gibt eine Art zu verneinen und zu zerstören, welche gerade der Ausfluss jener machtigen Sehnsucht nach Heilung und Rettung ist, als deren erster philo- sophischer Lehrer, Schopenhauer unter uns entheiligte und recht eigentlich verweltliche Menschen trat. Alles Das- ein, welches verneint werden kann, verdient es auch verneint zu werden, und wahrhaftig sein, heisst an ein Dasein glauben, welches iiberhaupt nicht verneint werden könnte und welches selber wahr und ohne Liige ist." Dómarinn segir: „Við skulum vanheiðra refsinguna," hann vill láta meðhöndla lögbrjótana á allt annan, betri og já- kvæðari hátt. Hann vill vekja hinar réttu tilhneigingar og leita faldrar lausnar, sem hann trúir, að búi í hverjum manni. En hann er líka sannfærður um, að afleið- ingarnar muni skaða hann stórkostlega; í samræmi við Schopenhauer-manngerð- ina dregur hann enga dul á það: „Sér- hver sá, sem kveður upp refsidóm sam- kvæmt lögunum, gerir sig sekan um rang- læti, hversu réttsýnn sem hann er. Því lögin hafa mælt út refsinguna, áður en þau vissu orsök glæpsins, sem í sínum innsta kjarna er alltaf ný og ný. Lögin hafa gert upp rúbertuna, — áður en farið var að spila." 4) Schopenhauer-manngerð Nietzsches er rnaður eins og Belford, sem líður af frjálsum vilja, af siðrænum hvötum. Hann getur ekki annað. Hans innsta eðli neyðir hann til þess. Framkoma dómarans í réttarsalnum og á geð- veikrahælinu er dæmi um hið hetju- lega líf, sem Nietzsche leggur áherzlu á hjá hinni misskildu manngerð. 5) Og Níetzsche segir ennfremur: „Er vernichtet sein Erdenglúck durch Tapferkeit." Við sjáum þetta i Marm- ara, þegar dómarinn afneitar eiginlega lífinu. Nietzsche bætir við: „Er muss selbst die Menschen, die er liebt, den Institutionen aus deren Schosse er her- vorgegangen ist, feindlich sein, er darf weder Menschen noch Dinge schonen, ob er gleich an ihrer Verletzung mit- leidet...“ Afstaða Belfords til réttarins sem stofnunar og til bróðurins, sem hann reynir fyrst að hlífa, sýnir að einnig í þessu atriði er fullkomið samræmi með dómara Kambans og skilgreiningu Nietzsches. Nietzsche tekur einnig fram, að Schopenhauer-manngerðin verði misskilin og álitin þjóna öflum og mönnum, sem hann sjálfur fyrir- lítur. En eftir dauða sinn hljóti hann uppreisn. Einmitt þetta er hlutskipti dómarans. Já, Marmari verður fyrst skilinn til fullrar hlítar, þegar verkið er líka skoðað frá þessum sjónarhól. Þá verður augljóst, hversu mikið af hinum misskilda, þver- lynda, djúpa og hjartagóða Kamban sjálfum er falið í persónu dómarans. Hið íslenzka skáld var með öllum sínum mörgu göllum, fljóthugsuðu fullyrðing- um, fráhrindandi skapferli — sem dóm- arinn — Mannkostamaðurinn, fagurker- inn, er hann lýsir í ritgerðasafni með þessu nafni, sem kom út 1941. Persónu- leikinn og hjartalag mannsins er það, sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.