Andvari - 01.10.1967, Page 14
116
JÓHANN HAFSTEIN
ANDVARI
hluta í efri deild, sem átti rætur að rekja til bess, að þar sátu allir 6 landskjörnu
þingmennirnir, en af þeim átti Framsóknarflokkurinn aðeins tvo. Hindraði þetta
flokkinn í að koma fram almennri löggjöf og fjárlögum, því að þá þurfti sam-
þykki beggja deilda á þeim.
Við þessi tímamót í íslenzkum stjórnmálum verður Tbor Thors þingmaður.
Hann býður sig fram í þingkosningum á Snæfellsnesi 1933 og vinnur mikinn
kosningasigur. Kosningabaráttan á Snæfellsnesi var mjög börð. I alþingiskosn-
ingunum 1931 bafði munað aðeins örfáurn atkvæðum á Halldóri Steinssyni,
béraðslækni, sem var Sjálfstæðismaður, og Hannesi Jónssyni, dýralækni, sem
var Framsóknarmaður. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Tímans, víkur að þessari
kosningabaráttu Tbors í minningargrein um hann (Tíminn 14. jan. 1965).
Hann segir svo frá, að Halldór Steinsson hafi notið persónulegs trausts og vin-
sælda og sigurvonir Hannesar Jónssonar því taldar góðar í kosningunum 1933,
þegar Halldór var ekki lengur í framboði. Þórarinn getur þess, að Jónas Jónsson,
sem þá var langáhrifamesti maður Framsóknarflokksins, hafi mætt á mörgum
framboðsfundum með Hannesi. Síðan segir í grein Þórarins: „Eg var eindreginn
fylgismaður Hannesar og því leið mér ekki vel eftir fyrsta framboðsfundinn,
sem ég var á, því að mér var Ijóst, að kosning Hannesar væri vonlítil. Þar bar
margt til. Tbor Jensen og synir hans höfðu kynnzt allmörgum Snæfellingum
og unnið sér vináttu þeirra, en auk þess álitu rnargir, að það yrði héraðinu til
bags, ef þeir feðgar fengju áhuga fyrir málefnum þess. Við þetta bættist svo,
að Tbor Tbors var ekki aðeins rnikið glæsimenni í sjón og framkomu, heldur
reyndist hann snjall og áhrifamikill fundamaður. Það bætti því frekar en veikti
aðstöðu bans, að liann fékk Jónas til að berjast við og sýndi sig ekki fara halloka
fyrir þeim manni, er þá þótti vígfimastur af andstæðingunum".
Nú befst þingmennska Thors í þessu ölduróti. Mjög var á huldu, hvað
framundan biði. Kosið er eftir hinni nýju stjórnarskrá og nýjum kosningalögum
1934, en þá skeður það örlagaríka atvik, að í kosningum í Skagafirði velta úr-
slitin á hlutkesti milli Sjálfstæðismanns og Framsóknarmanns. A úrslitum þessa
hlutkestis byggði stjórnin, sem við tók, undir forsæti Hermanns Jónassonar,
meirihluta sinn, en nú hafði skipazt svo málum, að Framsóknarflokkur og Al-
þýðuflokkur urðu í stjórnarsamstarfi. Tbor Thors var því að heita má allan
þingferil sinn í stjórnarandstöðu, og er erfitt að spá í eyðurnar, bverju það gat
breytt á þingferli jafn áhugasams bugsjóna- og framtaksmanns.
Thor Thors tekur fyrst sæti á Alþingi, sem sett var 2. nóvember 1933
(aukaþingið). En það var einmitt þetta þing, sem fékk til meðferðar stjórnar-
skrárbreytinguna með nýrri og réttlátari kjördæmaskipun, er samþykkt hafði
verið á þinginu á undan og þurfti nú að endurstaðfestast, og jafnframt frv.