Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1967, Síða 18

Andvari - 01.10.1967, Síða 18
120 JÓHANN I-IAFSTEIN ANDVARI Þó að nú liafi verið lauslega rakinn stjórnmálaþátturinn í æviskeiði Thors Thors og reynt að skilgreina hann nokkuð, skýrist hann einnig betur, þegar litið er til beinna afskipta hans af atvinnulífi landsmanna. Skömmu eftir að hann hafði lokið laganámi í Háskóla Islands og leitað sér framhaldsmenntunar erlendis og kynna af utanlandsviðskiptum íslendinga á Spáni og Portúgal, gerist hann einn af framkvæmdastjórum hlutafélagsins Kvældúlfur á árinu 1927. Eins og kunnugt er hafði faðir hans stofnað Kveldúlf h.f. árið 1912 með elztu sonum sínum, og þeir síðan gegnt framkvæmdastjóra- störfuin með honum í fyrstu, en síðan einir. Thor Jensen mun hafa dregið sig í hlé í Kveldúlfi fljótlega á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar, eftir að hann tók að sér nefndastörf fyrir hönd ríkisins við útflutningsverzlun landsmanna á hin- um erfiðu styrjaldarárum. Þriggja manna nefnd hafði þá það verkefni að annast alla sölu útflutningsafurða, og var Thor Jensen formaður nefndarmanna, en hinir voru Pétur Jónsson, alþingsmaður og hóndi á Gautlöndum, og Ólafur Benjamínsson, framkvæmdastjóri. Að styrjöldinni lokinni mun Thor Jensen hafa tekið lítinn heinan þátt í framkvæmdastjórn Kveldúlfs og sneri sér síðar, sem alkunnugt er, að búskapnum og gerðist mesti stórbóndi landsins með bú- rekstri sínum á Korpúlfsstöðum. Þegar Thor kemur til skjalanna sem framkvæmdastjóri Kveldúlfs 1927, eru þeir þar fyrir eldri bræðurnir, Richard, Kjartan, Ólafur og Haukur, og mætti virðast, að vel væri áskipað og tæpast þörf fleiri framkvæmdastjóra. En hafa verður þá í huga, hvert fyrirtæki Kveldúlfur var. Ellutafélagið Kveldúlfur hafði verið, var þá og varð enn um langa hríð lang stærsta útgerðarfyrirtæki lands- ins, hafði haft með höndum nær alla fisksölu landsmanna, sem þá var mest saltfiskur, seldi t. d. fisk fyrir Samband íslenzkra samvinnufélaga, fyrir Hellyer Bros., meðan það fyrirtæki rak stórútgerð í Hafnarfirði, eignaðist sjálft 7 togara flest, átti 5 stóra mótorbáta, eftir því, sem stærð slíkra báta var þá almennt, og 2 lítil guíuskip, en þessi fiskiskip voru öll notuð til síldveiða frá Siglufirði og alli þeirra saltaður þar, en síldarafli togaranna lagður upp á Hjalteyri og fór allur í salt, enda var Kveldúlfur á þeim árum, 1913—1923, stærsti saltsíldar- framleiðandi landsins, lét oft verka og salta yfir 20 þúsund tunnur á ári. Þá átti Kveldúlfur um skeið 3 millilandaskip samtímis, er notuð voru eingöngu í þágu félagsins til llutninga með eigin afurðir til Miðjarðarhafshafna og flutn- inga á salti og kolum til landsins. Félagið hóf síldarbræðslu á Hesteyri, leigði síldarbræðslu á Sólbakka og reisti síðar síldarbræðslu á Hjalteyri. Hér var því um mjög margþætta og umfangsmikla starfsemi að ræða, fiskveiðar, saltfisk- verkun, síldarbræðslu og fisksölu og jafnhliða töluverða innílutningsverzlun, einkum til eigin þarfa. Hafði svo verið á stundum, að nær öll fisksala frá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.